Heimilisritið - 01.03.1947, Side 29

Heimilisritið - 01.03.1947, Side 29
höfðu margar lokur í skipaskurð- um verið opnaðar, til þess að koma af stað flóðum sunnan og vestan við borgina. Eftir einn eða tvo daga gerðu þessi flóð jörðina hæfi- lega gljúpa til að trufla umferð skriðdreka. Og til allrar óhamingju fór sjórinn að síast ofan í alla brunna svo vatnið varð salt. Þetta jók skjótlega á erfiðleika hermanna okkar, sem urðu drykkjarvatns- lausir, síðustu hitadagana, sem bardaginn stóð. Að kvöldi þessa dags tilkynnti þýzka herstjórnin fréttariturum erlendra blaða, sem voru með þýzka hernum, „að hringnum utan um brezku, frönsku og belgísku herina væri algjörlega lokað“. Sunnudaginn 26. maí kveiktu sprengjur óvinanna í olíugeymum í Dunkirk, og þeir héldu áfram að brenna það sem eftir var barátt- unnar. KI. 6.57 þetta kvöld hófust framkvæmdir á hinum áformaða brottflutningi liðsins frá Dunkirk. Nokkuð af setuliðinu var flutt til Englands, og strandliðið undirbjó flutning fleiri hermanna innan skamms. Þessar aðgerðir hlutu nafnið: „Rafallinn“. Calais féll næstum því í sama mund. Þann 27. gáfust hinir belgisku bandamenn okkar upp, eftir stór- kostlegt manntjón, í baráttunni við miklu betur útbúinn her. Þessi uppgjöf skildi vinstra fylkingar- arm okkar eftir óvarinn gegn ó- vinaárásum. Alxrif hennar á frönsku þjóðina voru mjög alvar- leg. Herinn okkar var nú að hörfa inn í sjálfa Dunkirk-borg, þar sem náttúran og mannshöndin í sam- einingu höfðu skapað sterkt varn- arkerfi á milli sjávarins og hinna mörgu skipaskurða. Þessi varnarstöð takmarkast að norðaustan af skurðum og virkj- um á milli Nieuport og Furnes. Að suðaustan er hún varin virkjum og skurðum frá Bergues til Dun- kirk. Stór skipaskurður, sem tengir saman Bergues og Furnes, mynd- aði varnarlínuna landmegin. Allt svæðið, sem þannig er umlukt af sjó og skurðum, er auk þess mjög sundurgrafið af smáskurðum og kvíslum. J>etta varnarsvæði .hafði einn meginkost. Hin víggirtu frönsku landamæri skiptu því í tvennt, þannig að við gátum látið eystri helminginn falla í hendur óvin- anna, en samt haldið sterku virki á vestri helmingnum. Þetta hafði mikla þýðingu undir lokin. Ytri takmörk þess varnarsvæðis voru nú treyst með öllum þeim fallbyssum, sem til náðist. Ráð- stafanir voru gerðar til þess að 1. herfylki B.M.H. héldi inn í vestur- hlutann, en 2. herfylkið inn í aust- urhlutann. HEIMILISRITIÐ 27

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.