Heimilisritið - 01.03.1947, Síða 31

Heimilisritið - 01.03.1947, Síða 31
nrisstu sjálfir aðeins 87 flugvélar. Að loknum þessum inngangsorð- um, er hægt að hefja frásögnina af brottflutningnum. Herinn okkar og Fyrsti franski herinn voru að hörfa inn í Dunkirkhringinn. Flot- inn okkar var að hefja björgunar- starfið. Dunkirk. DUNKIRK er ævaforn hafnar- borg. Höfnin er djúp, með allmörg- um skipakvíum, nokkrum skipa- smíðastöðvum og dráttarbrautum, og þar eru mynni þriggja stórra skipaskurða. Borgin er umgirt gömlum virkjum, sem öll eru vel varin skurðum og gryfjum. Að ut- anverðu er strandlengjan, sem ligg- ur f aust-landnorður til belgisku landamæranna og Nieuport. Hin fyrrnefndu eru í átta mílna fjar- lægð, en hin síðari sextán. Strandlengjan er svipuð á öllu þessu svæði. í flæðarmálinu er breiður, hallandi sandur. Þangað sótti fjöldi af baðgestum á friðar- tímum. Ofan við fjöruna eru sjó- varnargarðar, hlaðnir úr tígul- steini, en hið efra sandöldótt land- ið vaxið marhálmi og stöku ösp. Nokkrar vindmyllur eru þar og margir framræsluskurðir. Sandfok og blástur breyta landslagi oft til muna í illviðrum. Upp af sandhól- unum er mílu breið spilda, sprott- in hrísi og lágum runnum. A síðustu fimmtíu árum hefur þarna verið endurbætt mjög, til að þóknast sumargestum. Það eru gistihús, skemmtistaðir og góður akvegur meðfram sjónum. Austan við múra Dunkirkborgar, niðri við sjóinn, stendur útborgin Malo-Ies- Bains. Þar er mikið hressingarhæli og spilabanki. Lengra austur með ströndinni er minni háttar skemmtistaður, Dray Dunes. Þar var líka stór spilabanki. Nokkru aust-landnorðar er þorpið La Panne. Þangað sóttu listmálarar mjög um skeið. Þorpið hlaut frægð í fyrri heimsstyrjöldinni, vegna þess að Albert Belgíukonungur hafði þar höfuðstöðvar sínar. Þó að ströndin sé heillandi að sumrinu, getur hún verið ákaflega hættuleg bæði sæfarendum og landmönnum.- Þeir, sem ganga meðfram ströndinni í hvössu vetr- arveðri, hljóta að undrast ofsann í briminu og stærð brotsjóanna. Fjörunni hallar smátt og smátt í sjó fram með allri ströndinni. Ná- lægt þrem mílufjórðungum út frá fjöruborði er Dunkirkvíkursundið. Þar er alltaf fjörutíu til fimmtíu feta dýpi, en breiddin er um hálfa mílu. Utar eru sker og sandrif. Sum eru upp úr, þegar lágsjávað er. Þau eru öll einskonar sjóminja- söfn, auðug af leifum skipa. „Oh, combien de marins, com- bien de capitaines“. Þessir grandar mynda gott var handa skipum, sem liggja við akkeri á víkinni. HEIMILISRITIÐ 29

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.