Heimilisritið - 01.03.1947, Page 40

Heimilisritið - 01.03.1947, Page 40
hlýtur að taka tillit til þess. En eflaust þorir þú ekki að setja ykk- ar — ykkar ofurást í slíka eld- raun“. „Jú, því ekki það“, sagði hann eftir litla umhugsun“. „Viltu gera það nú þegar, í við- urvist minni?“ T,Eins og þér þóknast!“ „Agætt! Bíddú þá hérna, þang- að til að ég kem með hana“. Þegar Vera var farin kveikti hann í sígarettu. Þá var drepið á dyr; það var einn af þjónunum. „Gjörið svo vel, herra forstjóri. Dyravörðurinn bað mig um að færa yður þetta“. Og hann rétti honum símskeyti. Gústaf Ernberg opnaði það, las og stakk því í vasann. Aldrei fyrr hafði hann reykt svo ört. Rúmar fimm mínútur liðu, og þá kom Vera með Víbekku. Augnaráð ungu stúlkunnar bar vott um þrjózkublandinn kvíða. „Ernberg forstjóri og ég höfum talað lítið eitt saman. Hann þarf að segja þér dálítið, á meðan ég er viðstödd“. Víbekka leit til hans með vand- ræðabrosi, en hann hristi höfuðið. „Það er bezt að ég sé heiðarleg- ur“, sagði hann tónfausri rödd. „Móðir þín hefur talað við mig og samvizku mína. Ég er hræddur um, að þú hafir tekið það allt of alvar- lega. Ég meinti ekkert með þessu, og aldrei hvarflaði að mér að gift- ast þér. Ef satt skal segja var ég aðeins í leit að smágamni — og — þú ert of góð til slíks gamans“. Víbekka einblíndi á liann. Varir hennár opnuðust, en ekkert hljóð heyrðist. — Augun urðu rök, var- irnar herptust og fingur féllu í lófa. Kveneðli hennar hafði hlotið fyrsta áfallið. En æskuþrek hennar beitti orku sinni til að bugast ekki. „Þá er mér það ljóst", sagði hún rámrödduð og gekk í burtu. Vera vissi ekki sitt rjúkandi ráð og starði á Gústaf. „Gústaf, þetta var fallega gert af þér“. „Vitleysa!“ svaraði hann ónota- lega. „Mannúð mín stjórnaði þessu ekki. Það var hræðsla, ragmennska. — Ég fékk símskeyti! Hrun erlends banka hefur gert mig gjaldþrota. Þessi saklausa og hættulitla til- raun, sem þú ætlaðir að gera, hefur breytzt í kaldan raunveruleika — og ég þorði ekki. ... “ „Þú þorðir ekki hv^rju?“ „Að vísu efaðist ég ekki um tryggð Víbekku, en — innst inni leyndist grunur um, að án peninga gæti slíkt ekki blessazt milli okk- ar. „Spilarinn“ þorði ekki að tefla í slíka tvísýnu“. Vera fann ljúfan straum fara um sig. Eldrei hafði hún séð mann taka hrakförum jafn stórmannlega. Hún gekk til hans og tók undir arm hans. 38 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.