Heimilisritið - 01.03.1947, Síða 55

Heimilisritið - 01.03.1947, Síða 55
FRAMHALDSSAGA VOÐI á ferðum effir HiQnon 0. fberherf Nýir lesendur geta byrjað hér: IVAN GODDEN hefur fundist myrtur í íbuð sinni sama kvöldið sem hann kemur heim af sjúkrahúsi, en þar hafði BLAKIE læknir, vinur fjölskyldunnar, hrifið hann úr greipum dauðans. Kona Ivans, MARCIA, er grunuð um morðið. Hún hefur verið mjög óhamingjusöm í hjónabandinu, því Ivan og BEATRICE systir hans hafa kúgað hana og kvalið andlega í þau þrjú ár, sem hún hefur verið gift. Marcia, Blakie og Beatrice liggja öll undir grun. Einnig þjónustufólkið í húsinu, ANCILL, EMMA og DELIA. Ennfremur hefur Iögreglan augastað á GALLY, frænda Marciu og nágrönnum hennar, þeim ROB og móður hans, VERITY COPLEY. Rob og Marcia elskast á laun. Sama daginn hefur Rob skrifað henni ástarbréf, sem komist hefur í hendur Beatrice. Það vitn- ast, að Ivan hefur arfleitt Beatrice að öll- um eignum sínum. Litlu síðar er Beatrice einnig myrt, meðan Marcia er inni í her- bergi, sem aflæst hefur verið að utan verðu. Blakie segir henni að halda kvrru fyrir og sendir eftir hjúkrunarkonu til að vera yfir henni um nóttina. Þær eru að tala saman þetta sama kvöld. Hún varð vandræðaleg, en Marcia sagði rólega: ,,Eg veit, að þér hafið verið ein af þeim hjúkr- unarkonum, sem önnuðust mann- inn minn á meðan hann var í sjúkrahúsinu. Er það ekki?“ „Jú, ég heiti Wurlitz. Ég hjúkr- aði honum lengst og var hjúkrun- arkona hans, þegar hann fór heim af spítalanum“. Hún hikaði, en hélt svo áfram ópersónulega og kurteislega: „Blakie gerði sann- kallað kraftaverk. Hann vann að því nótt og dag að bjarga lífi hans — vildi blátt áfram ekki láta hann deyja. Þér ættuð að vita, hvernig hann var útleikinn, þegar hann var lagður inn. Og rnánuði síðar var hann svo að segja orðinn ah heill. Ég minnist þess, að þegar ég færði hann í sokkinn utan yfir um- búðirnar á fæti hans, þá var hann heilbrigður, að fætinum undan- skildum. Það munu fáir geta gert sér í hugarlund, hversu hætt hann var kominn. Ef Blakie hefði ekki notið við —■. Ég hef aldrei séð hann leggja sig eins fram“. Hún varð hugsi á svip. „Hann hlýtur að hafa mikið dálæti á yður“. „Já, það' hefur hann“, sagði Marcia innilega. HEIMILISRITIÐ 53

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.