Heimilisritið - 01.10.1948, Side 36
andi sig kurteislega fyrir fögrum
konum.
Hann og amma komu ávallt
til Sandringham í vikunni sem
9. nóvember bar upp á, en þá
var afmæli hans.
Hátíðahöld.
Nokkrum dögum áður fór að
færast fjör yfir hið mikla hús,
eins og tröll, sem er að vakna af
svefni, og síðar ætlaði allt að
rifna af lífi og fjöri. Fyrst kom
smáher af þjónustufólki, og svo,
hinn ákveðna dag, lifnaði yfir
húsinu með ljósaflóði. Síðan
heyrðist marr í mölinni og hófa-
dynur barst til eyrna. Það gaf
til kynna komu afa míns með
20—30 gesti. Hver karlmaður
var með sinn einkaþjón og hver
frú með sína þernu. I heila viku
var hátíð í Sandringham.
Hundruð akurhænsna féllu
fyrir skotum veiðimanna dag-
lega og eftir kvöldmat var spilað
á spil, leikið á hljóðfæri og tal-
að um stjórnmál. Ef við' Bertie
vorum búnir að læra undir skóla
fyrir næsta dag (Mary var ávallt
búin), fengum við að skreppa
upp á hæðina, eftir tedrykkju,
og dvelja í þessum glaða hópi
klukkustund eða svo.
Það var ekki þar fyrir, að við
værum ekki ánægðir heima, en
heimsókn til afa og ömmu var
eins og vegabréf til annars heims,
og það fór jafnan gleðitilfinn-
ing um mig, er ég sá ljósin í
Stóra húsinu á hæðinni, í kvöld-
rökkrinu.
Inni í því stóru anddyri, sem
gekk undir nafninu „Salurinn“,
var mikið af fríðu fólki og loftið
hljómaði af röddum þess. I öðr-
um enda salsins var hljómsveit
Gottliebs, sem sótt hefði verið
til London, og hún lék dillandi
Straussvalsa, til að sefa æsta
veiðimenn eða draga úr von-
brigðum þeirra yfir slæmum spil-
um á hendi.
Hér fékk ég fyrst kynni af hin-
um stóra heimi, í tiltölulega
þröngum hring konungsfjöl-
skyldunnar og hirðarinnar.
Hin þröngu húsakynni okkar
leyfðu ekki slík boð, og þeir
gestir, sem okkur sóttu heim,
voru einkum úr prestastétt, eða
meðal skipsfélaga föður míns.
Frægir menn.
I húsi afa míns komu hins
vegar frægir menn, eins og t. d.
Albert Mensdorf greifi og de So-
veral greifi, tveir ambassadorar
af eldri skólanum frá Vínarborg
og Lissabon; Salisbury lávarður
og Rosebery lávarður, báðir for-
sætisráðherrar andstöðuflokka,
sá síðarnefndi er eini maðurinn,
sem sigrað hefur í veðreiðum,
á meðan hann bjó í forsætisráð'-
herrabústað Breta í Downing
34
HEIMILISRITIÐ