Heimilisritið - 01.08.1951, Side 44
FLUG. — Sjá Loft, Flugvél.
FLUGA. — Ef þig dreymir að þú sért áreitt(ur) af flugum, boðar það þér
óþægindi í hversdagslífinu. Flugur í draumi eru oft merki um það, að
ekki er alit gleymt sem gengið er, og að þú átt á hættu að ýfð verði
upp gömul sár. Að drepa flugu er fyrir sigri á mótlæti, en að vera
stungin af flugu í draumi er oft fyrir veikindum eða gremju, jafn-
vel sorg. Broddfluga f draumi táknar hættulegan óvin.
FLUGDREKI. — Að dreyma flugdrcka boðar dreymandanum upphefð og
virðingarstöðu, ef flugdrekinn flýgur hátt og vel, enkum ef dreym-
andinn stjórnar honum, en falli drekinn til jarðar er það slæmur fyrir-
boði. Oft boðar fljúgandi flugdreki ferðalag og góðan búskap. í ást-
um er slíkur draumur fyrir góðu.
FLUGELDAR. — Dreymi þig að þú sjáir flugelda springa er það oft fyrir-
boði farsóttar. Sjá flugeldum skotið er aðvörun til þín um að spenna
bogann eki of hátt.
FLUGFISKUR. — Sjáirðu þennan kynlega fisk í draumi, skaltu gæta þín
á tímanum í kringum miðnætti, því að hann boðar þér ekkert gott.
Þinn hjartfólgni (eða þín hjartfólgna) ætti að vita um þessa aðvör-
un.
FLUGVÉL. — Að dreyma flugvél merkir breytingu. Vera í flugvél: hagn-
aður, eða nýir vinir og nýtt umhverfi. Hafa flugvél beint fyrir ofan
sig: gerbreyting, jafnframt því sem það cr viðvörun um að gæta ná-
kvæmni og varúðar í áætlunum sínum. Að fljúga um loftið er yfir-
lcitt talið boða upphefð og velgengni.
FLUTNINGUR. — Skyldi þig dreyma að þú sért að flytja búferlum,
skaltu vera á varðbcrgi. Þú átt ófyrirleitna óvini, sem einskis svífast.
FLÝTIR. —-v Ef þig dreymir að þú sért að flýta þér ákaflega mikið, skaltu
vera varkár, einkum varðandi eld.
FLÆKJA. — Ef þig dreymir band- eða snærisflækju, er sennilegt að þú
munir ciga í einhverjum útistöðum við samstarfsmenn þína fyrr en
varir, eða tengdafólk, sértu gift(ur) — það er að segja ef þú stillir
ekki skap þitt og forðast deilur.
FOLALD. — Dreymi þig folald, mun brátt fjölga í fjölskyldu þinni og
það verða tilefni til mikillar gleði.
FOR. — Sjá Óhreinindi, Mýri.
FORELDRAR. — Það er mjög góður fyrirboði að dreyma foreldra sína
vel klædda og ánægða. Venjulega táknar það, að þú munt eiga mjög
hamingjusamt líf fyrir höndum.
FÓRN. — Dreymi mann að hann sjái fórnarathöfn eða sé sjálfur að færa
fórn, er það fyrirboði veizlufagnaðar.
FORSETI. — Ef þig dreymir að þú mætir forsetanum, boðar það upphefð.
Ef þér finnst hann vera þér óvinveittur, munu fyrirætlanir þínar
-bregðast.
v.-------------------------------------------------------------------------------J
42
HEIMILISRITIÐ