Heimilisritið - 01.09.1951, Síða 14

Heimilisritið - 01.09.1951, Síða 14
og við höfðuni ekki fyrr hringt, en hræðilegt öskur barst. um allt húsið, og stórt tígrisdýr, sem hafði legið úti í einu horni for- stofunnar, spratt á fætur og skreið hægt í áttina til okkar. Við hörfuðum skelfdir aftur á bak, en í sama bili hrópaði of- urstinn, sem nú kom á vettvang: „Hann er alveg hættulaus — hefur hvorki klær né tennur!!“ Því næst fór hann að ávíta mal- ajiskan þjón, sem nú var einnig kominn, fyrir að láta dyrnar standa opnar og dýrið liggja í forstofunni. Malajinn tók skömmunum með auðmýkt, og stór api, sem stóð við hlið hans, hermdi eftir vesaldarlegu lát- bragði Malajans á hinn skopleg- asta hátt. Ofurstinn tók afar vingjarn- lega á móti okkur og veitti okk- ur svalandi drykki af rausn, en eftir hálftíma fórum við. Það var vinur minn, sem réð því, og hann vildi vera kominn heim í gistihúsið, þegar ungfrú Lee kæmi heim úr ferð, sem hún og frænka hennar höfð'u farið um daginn. Margrét Lee var falleg stúlka, og hún hafði hrifið vin minn. Hún og frænka hennar, ungfrú Patter, frumleg, roskin kona, sem ætíð kom til kvöld- verðar hlaðin gimsteinum, höfðu búið eina viku í gistihúsinu. Þær komu heim um svipað leyti og við, og þar eð ég sá, að Wynd var með hugann annars staðar, skildi ég við hann og fór upp í herbergi mitt. Þegar ég gekk upp stigann, hljóp maðúr hratt niður hann, og mér virtist það helzt vera malajaþjónn ofurst- ans, en ekki var ég alveg viss um það, því nú var tekið að rökkva. Um klukkan átta næsta morg- un vaknaði ég við hroðalegan gauragang í gistihúsinu. Fólk hljóp hálfklætt fram í ganginn og spurði, hvað um væri að vera, en enginn gat gefið aðrar upplýsingar en þær, að skelfileg óp hefð'u heyrzt ofan frá þriðju hæð Eg var alklæddur og þaut strax upp, og Wynd á hæla mér. A þriðju hæð þustu allir í sömu átt, að herbergi, sem sneri út að bakhlið hússins; við fylgd- umst með straumnum og kom- um að hurð, sein stóð á nr. 90. „Herbergi ungfrú Patters“, taut- aði Wynd, „hvað getur hafa komið fyrir?“ Hann ruddist gegnum hópinn, sem stóð' skelf- ingu lostinn við dyrnar, og ég fór á eftir honum. Aldrei gleymi ég þeirri sýn, er ég sá þar inni. A gólfinu lá ungfrú Lee — dáin, eða alger- lega meðvitundarlaus, og í rúm- inu, með höfuðið lafandi fram yfir stokkinn, lá lík frænku hennar. Þar var ekkert um að 12 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.