Heimilisritið - 01.09.1951, Side 23
r
--------------------
Hvað dreymdi þig
í nótt ?
Ýtarlegar draumaráðningar
GAMALMENNI. — Það er talið mjög gott að dreyma gamalmenni og
boðar manni ávallt gott gengi í heiminum.
GAMANLEIKUR. -— Dreymi þig að þú horfir á gamanleik í Ieikhúsi er
viðbúið að áhyggjur og kvíði setjist í huga þér, og að þú verðir fyrir
einhvcrjum álitshnekki, ef til vjll af völdum einhvers úr fjölskyldu
þinni.
GAMMUR. — Dreymi þig að þú sjáir gamm, mun einhver vera að skapa
þér áhyggjur. Ef þú crt ástfangin(n) skaltu vara þig á skæðum keppi-
nauti. Slíkur draumur getur líka táknað það, að einhverju mun verða
stolið frá þér.
GARÐUR. — Ef þig dreymir að þú sért á gangi um fagran garð, munu
miklir atburðir vera framundan í lífi þínu, sem veita þér fyllstu á-
nægju til fagnaðar og hamingju. Það er einnig fyrir góðu að dreyma
að maður sitji í garði eða sé að vinna í honum, getur jafnvel boðað
þér göfugt verkefni. (Sjá SkrúSgarSur, AldingarSur).
GARMAR. — Sjá Tötrar.
GAS. — Ef þig dreymir að gas lek'i út, eða þú finnir gaslykt, er það að-
vörun til þín um, að ástrfður og freistingar munu brátt verða á vegi
þínum, og að þú munt þurfa á öllu viljaþreki þínu að halda, til þess
að láta ekki bugast.
GANGA. — Dreymi þig að þú sért á gangi getur það boðað þér giftingu
ef þú ert ógift(ur), en giftum er það stundum fyrir ósamlyndi, jafn-
vel skilnaði. Ganga aftur á bak: tap. Ganga á vatni: veikindi. Það
er fyrir ánægju og gleði að dreyma, að maður sé á gangi með vini
sínum. (Sjá Vegur).
GÁTA. — Sé lögð fyrir þig gáta, eða ef þú ferð með gátur í draumi, mun
einhver venzlamaður þinn biðja þig mjög undarlegrar bónar. Hugs-
aðu áður en þú framkvæmir.
GEÐSHRÆRING. — Ef þig dreymir að þú komist í mikla geðshræringu,
en ekki þó þér til fagnaðar, er þér óhætt að reikna með því, að bjart-
ar vonir þínar rætist.
^-------------------------------- ’___________________ J
HEJMILISRITIÐ
21