Heimilisritið - 01.09.1951, Page 31

Heimilisritið - 01.09.1951, Page 31
Lew fleygði pening á borðið og byrjaði að renna sér ofan af stólnum, en hann vissi, að það var um seinan, því stóri maðurinn kallaði nú til hans: „Er nokkuð, sem ég get gert fyrir yður, karl minn?“ Lew leit burt eins og hann hefði ekki heyrt, en sá stóri stóð upp, klappaði sefandi á öxlina á stúlkunni og gekk hægt og ógnandi í átt til hans, ofurlítið yaggandi í göngulagi. „Er yður eitthvað á hönd- um?“ sagði hann ertnislega. „Eitthvað, sem amar að yður?“ Lew hló óstyrkum hlátri. „Nei nei,“ sagði hann. „Jæja, á hvað varstu ‘að glápa?“ Maðurinn gnæfði yfir hann eins og kjötfjall. „Ég var bara — bara —“ Lew leitaði að réttum orðum. „Þér voruð bara hvað?“ Stóri maðurinn gekk fast að honum, og Lew fann, að fólk leit við til að horfa á þá. Hann renndi sér niður af stólnum, og hann sá að dauft fyrirlitningar- bros lék um varir stúlkunnar, og hann fann yínlykt fram úr manninum. Honum fannst hann ósköp lítill. „Þér voruð bara hvað?“ endurtók stóri maðurinn. „Hún var svo falleg,“ sagði Lew allt í einu, og vissi þó um leið og hann sagði það, að þetta voru ekki réttu orðin. Stóri maðurinn dró djúpt andann. „Allt í lagi, komdu þá.“ Lew færði sig hægt aftur á bak. „Áfram,“ sagði sá stóri og færði sig alveg að honum. „Bíðið andartak við,“ sagði Lew rámur. „Svona. Komdu þá!“ „Hvað er —?“ Lew ætlaði að mótmæla, en það var of seint; stóri maðurinn réðist á hann, og einhvers staðar í þögulli stof- unni heyrðist hæðnishlátur, og hann langaði að forða sér á flótta. En allt í einu varð hann grip- inn heitum, blindum ofsa, og hann barði báðum hnefum í tryllingi í þúsund fögur and- lit og ásakandi augu, og högg- in hittu manninn í kviðinn. Og þegar stóri maðurinn hraut aft- ur á bak að barnum og velti um glasi, sneri Lew sér við og gekk út, eins hægt og hann þorði og hvarf samstundis í fólksstrauminn. Hann leit ekki einu sinni við, þegar hann heyrði rödd kalla langt fyrir aftan sig, en gekk hratt að neðanjarðarbrautar- stöðinni og fór heimleiðis með lestinni. Marta sat og hlustaði á út- HEIMILISRITIÐ 29

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.