Heimilisritið - 01.09.1951, Page 32

Heimilisritið - 01.09.1951, Page 32
varpið, þegar hann kom. Hún horfði á hann taka af sér hatt- inn, og það fyrsta, sem hún sagði, var: „Þú gleymdir rjóma- ísnum enn einu sinni, Lew.“ „Æ, fyrirgefðu, Marta,“ sagði hann. „Viltu, að ég fari aftur?“ „Nei, það gerir ekkert til,“ sagði hún hægt og leit undan. „Fyrirgefðu,“ sagði Lew aft- ur. Hann fór inn í svefnher- bergið og tók af sér bindið, og honum var raunar sama, því hann vissi, að Marta hafði meiri ánægju af, að hann skyldi hafa gleymt ísnum, en hún hefði haft af að fá hann; þannig er nú sumt fólk. Allir áttu sér leynd ánægjuefni. Hann settist á rúmstokkinn og starði á skóna sína. ENDIR HATTURINN Einn af aðstoðarritstjórunum við víðlesið tímarit, var með nýjan hatt, þegar hann kom í skrifstofu blaðsins einn morguninn. Meðan hann sat á fundi meðal ritstjóranna grandskoðaði einn af starfsmönnum tíma- ritsins hattinn og fór þvínæst út og keypti nákvæmlega samskonar hatt — lét jafnvel sctja sama fangamarkið á svitaskinnið. Það var aðeins einn mismunur á —- þessi hattur var þrcmur númerum stærri en hinn fyrri. Þegar í skrifstofuna kont, skipti hann um hatta. Svo þegar að- stoðarritstjórinn fór, varð hann furðu lostinn, er hatturinn féll niður yfir eyrun. Kyndugur á svip athugaði hann hatrinn gaumgæfilega, en þegar hann sá að jafnvel fangamarkið var rétt, gat ekki verið um annað að ræða en að þetta væri hans hattur. Daginn eftir kom hann aftur með hattinn, sem nú virtist hæfilega stór. Óðara og ritstjórjnn var farinn inn í annað herbergi, tók blaða- maðurinn hattinn og athugaði hann. Það kom í ljós, að undir svita- skinnið hafði verið troðið dagblaðapappír. Blaðamaðurinn tók þá papp- írinn og tróð honum undir svjtaskinnið á hatrinum, sem ritstjórinn hafði fyrst komið með. Þegar svo ritstjórinn ætlaði að fara, seinna um daginn, og lét á sig hattinn, sat hann ofan á hvirflinum. Enn leit hann inn í hattirjn — og fór sjðgn rakleiðis tjl læknis. 30 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.