Heimilisritið - 01.09.1951, Side 39
LJÓSMYNDANÁM O. FL.
Sp.: i. Hvað tekur langan tíma að
læra ljósmyndun, og þarf maður að hafa
náð vissum aldri til að byrja slíkt nám?
2. Hvernig er „ég elska þig“ á
frönsku, spænsku, rússncsku og ítölsku?
3. Ég er 17 ára, 165 sm á hæð og 56
kg að þyngd. Er ég of létt?
4. Ég svitna svo voðalega undir hönd-
unum. Geturðu gcfið mér nokkuð ráð
við því?
5. Hvernig er skriftin? Browny.
Sv.: 1. Ljósmyndanám er venjuleg
iðngrein og tckur þrjú ár. Lágmarks-
aldur er víst 16 ár.
2. Á frönsku: „ Je t’aime“, á spænsku:
„Te quiero“, á rússnesku: „La Vas
Lioubliou" og á ítölsku „Ti amo“.
3. Nei, þú ert alveg hæfilega þung.
4. Það fást svitavamarlyf f lyfjabúð-
um og víðar, sem þú skalt nota.
5. Skriftin er prýðileg.
TILBOÐ MERKT
„VORHUGUR 294“
Sp.: Kæra Eva. Ekki alls fyrir löngu
las ég auglýsingu í dagblaði, þcss efn-
is, að einstæðingskona óskaði eftir að
kvnnast karlmanni, með vináttu fyrir
augum. Tilboð átti að senda, merkt
„Vorhugur 294“. Ég sendi tilboð um
kynningu ásamt nafni og heimilisfangi.
Svarbréf fékk ég nokkru síðar, en trún-
aðartraust mitt var misnotað, þvf að
undirskriftin var aðeins „Reykvísk
kbna“. Og svo ávarpaði hún mig í
þokkabót: „Góði drengur“. Mér fannst
ég vera cins og barnið hennar! Hvert
er svo álit þitt á öðru eins og þessu?
Ég er stórhneykslaður og hef ort kvæði
um atburðinn, sem þú mátt bjrta ef
þú vilt. Björgvin.
Sv.: Líklega hafa fleiri svipaða sögu
að segja og þú. Við þessu er ekkert að
gera. Fólk ætti bara að varast slíkar aug-
lýsingar. Æskilegt væri hinsvegar að
hægt yrði að koma á einhverskonar
miðlunarsambandi fyrir ógift fólk, þar
sem fulls trúnaðar yrði gætt, en það er
víst ekki gott hér í okkar fámenna
landi kunningsskaparins. Um kvæðið
skulum við sem minnst tala.
UNGLINGARNIR EIGAST VIÐ
Til „Ingu ': — Það væri harla óráð-
legt af þér að fara að eltast við hinn
strákinn aftur. Þú verður að hafa það
eins og hvert annað hundsbit, að hann
lítur ekki við þér, fyrst þú fórst að
skemmta þér með öðrum. Þú vildir
ekki fyrirgefa honum, þótt hann lyfti
sér upp með annarri meðan þú varst í
burtu — og nú vill hann ekki fyrir-
gefa þér. Svona gengur það. Sá sem vill
ekki, þegar hann fær, fær ekki, þegar
hann vill!
„ÁSTFANGINNI STÚLKU"
SVARAÐ
Ég hef ekki mjög mikla trú á „ást
við fyrstu sýn“. Hún er að vísu falleg,
en hætt er við að hún fái aðrar afleið-
HEIMILISRITIÐ
37