Heimilisritið - 01.09.1951, Síða 40

Heimilisritið - 01.09.1951, Síða 40
íngar cn vonir standa til. Roleg yfirveg- un verður árciðanlega farsælli, og bezt er að þetta tvennt fari saman. Auðvitað er ekki hægt að elska eða hætta að elska eftir eigin geðþótta, en ef maður einbeitir viljanum, er hægt að byrgja ást sína þar til skynsemin segir til sín. Og það er engin hætta á því, að ástin bíði hnekki við að vera svolítið undir stjórn. Áður en þú ákveður að giftast, skaltu atliuga það, að samkvæmt reynslunni verða hjónabönd bezt, þegar hjónin standa jafnt að vígi á sem flcstum svið- um. Þú skalt kynna þér skoðanir mannsefnis þíns á þýðingarmiklum gmndvallarmálum varðandi framtíð ykk- ar, svo sem börnum og barnauppeldi, stöðu konunnar, val vina, þýðingu kyn- ferðismála, félagsmál o. fl. Konan hcf- ur efni á því að vera vandlát í vali sínu á eiginmanni nú, síðan hún hefur hlot- ið sín auknu réttindi og frelsi. BRÉFASKIPTI ÓSKAST Óska eftir bréfaviðskiptum við 15— 20 ára pilt eða stúlku. Hejðbjört Jóns- dóttir, Mýlaugsstöðum, Aðaldal, S.- Þing. SVÖR TIL ÝMSRA Til „Ungrar blómarósar': — Reyndu að bera á þig sólarolíu. Hæðin á -14 ára stúlku er ákaflega mismunandi, þótt þyngdin sé 50 kg —- um það eru engar reglur. Skriftin er ágæt. — Það kostar ekkert að spyrja mig, og ég svara flest- um spurningum, a. m. k. ef fullt nafn fylgir. Til „B. G." — Bréfið þitt, sem kom mcð krossgáturáðningunni, var mjög svo kærkomið. Það er gott fyrir ritið að fá svona upplýsingar. — Islenzkur texti við „Wilhelmina" kom í júníheftinu og hefur verið sunginn talsvert á skemmt- unum. Við höfum því miður ekki að- gang að umgetnu crlendu blaði að svo stöddu, en vildum gjarnan mega njóta þeirrar vinsemdar af hálfu bréfritarans að fá þau lánuð Iitla stund, gegn ein- hverri þóknun. — Varðandi þéringar, þá vildi ég helzt að allir þúuðu mig. Heim- ilisfang mitt er Garðastræti 17, Reykja- vík. Til „Ö. S.": — Þú skalt varast að syngja, meðan þú ert í mútum, og hlífðu þá röddinni yfirleitt sent mcst. Skriftin er barnaskólaskrift. Til „Tótu": — Brjóstið stækkar mcð Iíkamsæfingum og sundi. Dökkhærðum, brúneygum og fölum stúlkum fara vel ýmsir bláir og rauðir litir, en hinsvegar ættu þær að forðast græna liti, einkum ef þær eru mjög fölleitar. Til „Löllu Björk": — Yfirleitt mun þurfa gagnfræðaskólapróf til þess að ger- ast hjúkrunarnemi, eða ganga í Hjúkr- unarkvennaskólann. Lágmarksaldur er 19 ár. Til „Ljóshœrðrar": — Við mjög Ijóst hár, blá augu og skæra húð eiga fyrst og fremst ljósir litir. Fötin eiga ekki að vera áberandi. Ljós, himinblár litur á vel við augun, og einnig fjólublár. Sterk- rauðir litir geta farið þér vel, ennfrem- ur hunangsgult og sumir brúnir og grænir litir, þó ekki mjög ljósleitir, nema þú litir kinnarnar. Til „Skrifstofustúlku": — Þegar mið- aldra forstjóri fer að gefa skrifstofu- stúlku undir fótinn, er einfaldast fyrir hana að koma kurteislega og ópersónu- lega fram við hann, án þess þó að sýna honurn beinlínis kulda. Þótt þetta kunni stundum að reynast örðugt gagnvart elskulegum og viðfelldnum húsbónda, mun hann fljótlega skilja meininguna og láta stúlkuna væntanlega í friði. Eva Adams 38 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.