Heimilisritið - 01.09.1951, Side 43
sínar á afþurrkunartuskunni
og ýtti sér síðan fram fyrir bar-
inn. Á bakka, sem var komið
fyrir á öðrum armi hjólastóls-
ins, var salt, pipar, hnífapör og
pentudúkur.
„Já,“ svaraði hann, „ég get
hæglega komizt af þannig.
Meiri hluti viðskiptavina minna
eru ferðamenn á leið til Look-
out Mountain, Þetta er að vísu
engin gullnáma — en ég kemst
af.“
„Það er ekki meira en svo,“
hugsaði Mollison. Bæði húsið
og útbúnaður allur var gamall
og slitinn. Skyrtan hans var
trosnuð og leit út fyrir að vera
allt of lítil. Það vantaði hnapp
á skyrtuna, og það var stórt gat
á hælnum á öðrum sokknum
hans.
„Þetta hlýtur að vera leiðin-
legt líf,“ sagði Mollison. „Það
myndi vera yður mikil hjálp
að hafa kvenmann."
Shorty kom borðbúnaðinum
fyrir og brosti gleitt. „Ég kemst
af,“ sagði hann.
„Ég er sennilega fyrsti gest-
ur yðar í dag?“
„Ja-á,“ svaraði Shorty. „Það
hefur verið lítið að gera í dag.“
Mollison tók aftur að hamra
hm'fnum á borðið.
Mjög þægilegur staður fyrir
glæpamann á flótta, hugsaði
hann. Eigandi veitingahússins
lamaður — engin hjálp — al-
gjörlega einangraður. Hann
þyrfti ekki einu sinni að fela
sig — aðeins að ryðja Shorty
úr vegi og halda sig í hjóla-
stólnum, þar til leitinni yrði
hætt. Ágætur dulbúningur. Ef
svo færi, að einhver, sem þekkti
hinn raunverulega eiganda
veitingastofunnar, rækist inn,
gæti hann bara sagt að Shorty
væri veikur og hann væri send-
ur í hans stað frá örkumla-
deild hersins.
Hjarta Mollisons fór að slá
örar af spenningi. Þetta gæti
slunginn glæpamaður gert.
í sama bili heyrðist hávær
barsmíð frá bakdyrunum. Molli-
son reis upp og sagði með upp-
gerðar rósemi:
„Það er verið að berja á bak-
dyrnar!“
Shorthy leit brosandi um
öxl.
„Það er bara Snotra — veiði-
hundurinn minn. Hún er dálítið
rómantísk — á þessum árstíma,
svo ég hef hana bundna og lok-
aða inni. Ég hef enga þörf fyrir
hóp af hvolpum núna.“
Hann sneri sér aftur til vinnu
sinnar, og Mollison hafði vak-
andi auga með honum. Leikni
hans í að skera brauðið og
skenkja kaffið var mjög eðli-
leg, en það gat hver einasti
maður með vit í kollinum fljót-
HEIMILISRITIf)
41