Heimilisritið - 01.09.1951, Page 48
— og mér finnst full snemmt
að ..."
„O, hann venst því,“ sagði
Jim í sannfærandi tón.
Það varð hljótt í eldhúsinu,
og Donald hlustaði spenntur,
unz hann heyrði hæga rödd
föður síns.
„Tja — það gerir hann lík-
lega!“
Svo heyrði hann föður sinn
fara út. Donald sneri við og
gekk inn í herbergi sitt, þar
sem hann stóð úti við glugga
með kreppta hnefana. Faðir
hans hefði getað bannað Jim
að setja upp gildrur, en það
hafði hann ekki gert. Faðir
hans skildi heldur ekki þetta
með vatnið.
Það hafði komið fyrir einu
sinni áður, að friðlandi þeirra
hafði -verið ógnað. Veturinn áð-
ur hafði einn af nágranna-
drengjunum sem sé uppgötvað,
að vatnið var fullt af otrum
og bísamrottum.
„Það er ekki nema eðlilegt,
að drenginn langi til að setja
upp gildrur,“ hafði faðir hans
sagt. „Við Jim gerðum það
sjálfir, þegar hann var smá-
patti.“
„Svo lengi sem ég lifi, skal
ekki nokkur lifandi maður fá
að fara á veiðar eða setja gildr-
ur niðri hjá vatninu!" hafði
mamma sagt í afar einbeittum
tón. „Vatnið tilheyrir mér og
Donald. Og dýrin sem þar eru,
eru vinir okkar. Við leyfum
aldrei, að þeim sé gert mein.“
En nú yar mamma hans ekki
framar og gat ekki hindrað
Jim í að setja gildrur. Hann
hné niður á rúmið og beit á
vörina til að stöðva grátinn.
SKÖMMU síðar stóð hann
upp og' dró lítinn kassa undan
rúminu. Hann leitaði í honum
innan um fjölda af teikningum
af dýrum og fuglum, unz hann
fann gamalt leðurveski. Hann
taldi peningana sína og flýtti
sér niður. Jim var rétt búinn
að borða.
„Hvað ertu með?“ spurði Jim.
„Sex dollara og þrjátíu sent,“
svaraði Donald og lagði pen-
ingana á borðið fyrir framan
bróður sinn.
Jim leit fyrst á peningana og
svo á bróður sinn.
„Þú mátt líka fá allar bæk-
urnar mínar,“ sagði Donald, „og
sjálfblekunginn og teikningam-
ar og myndirnar — og reiðhjól-
ið.“
Rödd Donalds brast af ör-
væntingu. Hann hafði boðið
fram allt, sem hann átti, en
þótt bróðirinn skildi ef til vill
meininguna, lét hann að minsta
kosti ekki á því bera. Og Don-
ald gat ekki útskýrt þetta fyr-
46
HEIMILISRITIÐ