Heimilisritið - 01.09.1951, Side 59

Heimilisritið - 01.09.1951, Side 59
þér ekki okkur svarta Doyle 200 þús- und eða meira, ef við vildum hjálpa yður burt frá Muava?' Er það ekki rétt?“ „Það er alveg rétt,“ svaraði Joan ró- lega, „og ég hefði líka staðið við loforð mitt við ykkur. En þér gleymið að skýra Sterhng frá einu, og það er ráða- gerð ykkar, sem gekk út á það, að þegar þér og Doyle hefðuð lokkað Sterling til bústaðar ykkar, ætluðuð þér að ráð- ast á hann og láta hann í hendur þeim innfæddu, eða með öðrum orðum í hendur mannætum, og taka svo í ykkar hendur eignir hans hér, húsið, perlu- veiðistöðina og hvað það er nú fleira, sem hann á hér. Ég átti aðeins að vera nokkurskonar tálbeita, en það var alls ekki ætlunin að gefa mér frelsi. Þvert á móti höfðuð þið orðið ásáttir um að skipta mér á milli ykkar. En ég get sagt yður, að vinur yðar, svarti Doyle, ætlaði að „pretta“ yður og eiga mig sjálfur. Hann gortaði af því, að þér væruð aðeins verkfæri sitt.“ Þó að andlit Howes væri þakið ó- hreinindum, mátti samt sjá, að hann skipti litum og vætti varirnar með tungubroddinum órólegur. „Þetta er ekki rétt, það hlýtur konan að vita,“ mótmælti hann. „Ég meina hvað því vjðvíkur, að við höfum ætlað að gera út af við Sterljng og ekki ætlað að gefa yður frelsi. Það var ekki ætlunin, að minnsta kosti ekki frá minni hendi. Slík þorparabrögð myndi ég aldrei hafa tekið í mál að eiga nokkurn þátt í. Ég gef yður drengskaparorð mitt upp á það. Og ef svarti Doyle hefur leyft sér að tala þannig um mig, skal ég að mér heilum og lifandi hryggbrjóta hann. Það getið þér rcitt yður á.“ „Jæja, svo þetta var þá ætlun ykkar!“ sagði Hilary brosandi, en það var hörku- legt bros og augu hans leiftruðu ógn- andi. „Mér datt í hug að þessu væri þannig varið, eða eitthvað svipað, og nú er ég í rauninni gramur sjálfum mér fyrir að hafa ekki leyft Ugi að afhöfða hinn virðulega glæpafélaga yðar. Því meira, sem ég hugsa um þetta, því meiri löngun hef ég til að haga mér gagnvart yður eins og þér ætluðuð að breyta gagnvart mér og afhenda yður þeim innfæddu, þorparinn yðar!“ „Nei — nei, heyrið þér, það gæti yður aldrei til hugar komið, Sterling!“ svaraði Howes bersýnilega mjög hrædd- ur. „Ég hef aldrei gert neitt á hluta yðar, svo ég viti, og ég hef heldur aldrei haft í hyggju að gera konu yðar — konunni þarna — nokkurt mein. Lofið mér að fara, og ég skal lofa yður því, að hálsbrjóta svarta Doyle fyrir það, að hann ætlaði að gabba mig. Munið hverju þér lofuðuð mér. Þér sögðuð ákveðið, að þér skylduð sleppa mér, ef ég segði yður hvar þér gætuð fundið konuna og þér fengjuð hana aftur. Þér hefðuð aldrei fundið hana, ef ég hefði ekki sagt yður hvar hún var. Við tölum hér saman eins og tveir hvítir menn, og þér getið ekki svikið loforð, sem þér hafið gefið mér.“ „Hvítur maður —; þér kallið sjálfan yður hvítan mann!“ sagði Hilary hvasst. „Ef þér eruð hvítur maður, vil ég heldur vera dökkur. Annars hef ég hugsað mér að halda yður hér og afhenda brezku yfirvöldunum yður við fyrsta tækifæri. Ef skipstjórinn á kaupskipinu, sem kemur hingað einhvern næstu daga, HEIMILISRITIÐ 57

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.