Heimilisritið - 01.11.1951, Side 10
Hugsar blaðið héðan á veg
í hendi að lenda þinni,
og þá á bréfið betra en eg.
Bagi er að fjarlægðinni.
Kveð eg svo væna veigabil,
verndin guðs þér hlífi.
Ann eg þér meðán er eg til,
eins og mínu lífi.
Guð'brandur biskup tók kvon-
bænum Páls fjarri og bar því
við, að Páll væri kvæntur. Kast-
aði Páll þá fram þessari stöku:
„Giftur ertu, gáðu að því“,
galapín nokkurt sagði.
En hvorki sæng né sessi í
sést mín kona að bragði.
Var þar með lokið kvonbæn-
um Páls. Um Halldóru Guð-
brandsdóttur er það að' segja, að
hún synjaði fjölda biðla. Var hún
mjög elsk að föður sínum, svo
að hún mátti ekki við hann skilj-
ast. Stundaði hún hann af hinni
mestu umönnun í veikindum
hans, þá er hann var kominn í
kör, og stjórnaði raunverulega
Hólastól af miklum skörungs-
skap. Hún var ágætlega mennt-
uð, hafði m. a. lært þýzku, en
það var þá nálega óþekkt um
íslenzkar konur. Var henni jafn-
an við brugðið um atgerfi til
sálar og Hkama, höfðingsskap og
manngæði. Halldóra varð fjör-
gömul, andaðist 1658, hálfníræð.
Af Staðarhóls-Páli er það að
segja, að hann lét nú af öllum
kvonbænum, enda átti hann fá
ár eftir ólifað. Hann lézt í önd-
verðum aprílmánuði 1598. Börn
hans og Helgu voin þrjú. Eitt
þeirra var Ragnheið'ur, móðir
Brynjólfs biskups Sveinssonar.
Margar sögur ganga af Stað-
arhóls-Páli, er sýna ýmsar hlið-
ar á skaplyndi hans. Bera þær
með sér, að hann hefur verið ó-
venjulega skarpgáfaður og fjöl-
menntaður maður, en jafnframt
stórorður, ákaflyndur og of-
stopafullur. Hann hefur verið í
röð fremstu skálda sinnar kyn-
slóðar, og fór þar ekki troðnar
slóðir. Með aldrinum hefur farið
vaxandi sérvizka hans og und-
arlegt háttalag. Segir á einum
stað, að hann hafi verið „ofbjóð-
anlegur í orðum og lét fátt ótal-
a'ð“, en því er hins vegar bætt
við, að hann hafi verið „allra
manna ófalskastur“. Þess er og
getið í sömu heimild, að innræti
Páls hafi verið miklu betra en
stóryrði hans þóttu benda til.
Og hvað sem göllum hans líður,
en þeir voru vafalaust margir,
verður því ekki á móti mælt, að
hann hafi verið einn einkenni-
legasti og athyglisverðasti per-
sónuleiki sinnar samtíðar.
ENDIR
8
HEIMILISRITIÐ