Heimilisritið - 01.11.1952, Page 45
vitað ekki fyrr en ég er klæddur.
Það gæti verið gaman að skreppa
þangað aftur — bara einn dag.“
FRU Bunting var einstök kona.
Hún hafði verið eina konan í lífi
hans. Það er varla of mikið sagt,
að það hafi verið hún, sem skap-
aði hinn volduga verzlunarhring,
því hringurinn var Bunting og
Bunting var hringurinn. Það var
hún og enginn annar, sem stóð
á bak við allt saman — lúxus-
bílinn, húsbrytann, fasteignina í
Dorset og höllina hér í Wimble-
don, ásamt giftingu Apithiv dótt-
ur þeirra og hins háæruverðuga
Sir Anthony Crede. Þetta var ein-
göngu verk frú Buntings. Hann
vildi láta sér nægja að láta son
þeirra hljóta nafnið John, en það
var frú Bunting, sem ákvað, að
hann skyldi heita Vernon. Það
var einnig hún, sem réði því, að
drengurinn skyldi í Oxford. Já,
hún hafði verið einstök kona.
,.Þetta var bara hugmynd, sem
ég fékk,“ sagði Bunting. ,,Auð-
vitað — ef þú kærir þig ekkert
um það . . .“
,.Ju-ú,“ sagði frú Bunting. ,,£g
hef ekkert á móti því.“
,.En langar þig ekkert?“
,.Þetta er bara — svo kyndug
hugmynd.“
..Kyndug ?“
,,Ég á við — Linfield. Robert
finnst það áreiðanlega undarlegt.
Honum finnst það sjálfsagt í frá-
sögur færandi.“
Robert, það var bílstjórinn.
,,Þá getum við farið þángað
með lestinni. Þegar við fórum
þangað forðum, tókum við lest-
ina. Og þegar við höfðum keypt
farmiðana og fengið okkur kaffi
þar út frá, áttum við ekki eyri
eftir.“
Þetta var farið að verða full-
mikið af því góða fyrir frú Bun-
ting. Hvað gekk eiginlega að
honum ? Og það sjálfan afmælis-
daginn hans í þakkabót.
,,Hvað amar að þér í dag, vin-
ur minn ?“ spurði hún.
,,Ja, það veit ég ekki,“ sagði
Bunting. ,,Ég verð fimmtíu og sex
ára í dag. Það er kannske það.
Að minnsta kosti getur það verið
orsökin að einhverju leyti. Nú
skal ég segja þér, hvað það er.
Það er fyrirtækið. Það er Bun-
ting. Mér verður það allt í einu
ljóst.
,,Bunting ?“
,,Heyrðu góða. Veiztu hvað
gerist á morgun ?“
,,Nei,“ sagði frú Bunting.
,,Jú, víst veiztu það,“ sagði
hann. ,,Og það veit ég líka. Og
það er stóra málið.“
,,Ég er ekki alveg með á nót-
unum . . .“
,,Jú, sjáðu til. Fyrir þrjátíu ár-
NÓVEMBER, 1952
43