Heimilisritið - 01.11.1952, Page 59
með yfirborðsmennsku og fágun
í framkomu — menn, sem voru
að kaupa verkfæri til þess að
reisa við hrynjandi hefðarsæti
sitt með því að fá ríkt kvonfang
— menn, sem höfðu ekki einu-
sinni geð í sér til þess að látast
vera ástfangnir, eins og Jean Sel-
igny.
„Þú ert ekki gift, er það ?“
Hann bar fram spurninguna svo
fyrirvaralaust að hún vissi í fyrstu
ekki hvaðan á sig stóð veðrið.
,,Nei, af hverju spyrðu að
því ?“
,,Eg veit það ekki. Að vísu
ertu ung, en þú ert ein af þeim,
sem hið ólíklegasta getur hent.
Það er eitthvað dularfullt við þig.
Eg veit aldrei hvar ég hef þig.
Stundum held ég, að ég þekki
þig, en fyrr en varir veit ég, að
það er þvert öfugt."
Hún^hló aftur. Hann minntist
þess, þegar hann heyrði hana
hlæja fyrst, og hversu örfandi á-
hrif það hafði haft á hann. Nú
hreif hlátur hennar hann svipað.
,,Hver veit nema þú kynnist
mér betur, þegar við erum orðin
— ja — hjón — ógift að vísu.“
„Heldurðu það?“ spurði hann
seinlega.
Nú greip hættulegur, þving-
andi hugblær þau aftur. Andar-
tak var hún hrædd við að taka
þátt í þessu ævintýri með honum,
en fyrr en varði vissi hún, að
ekkert gat afstýrt því. Hún sá
að hinar stóru, sterklegu hendur
hans titruðu, og hannmyndieinn-
ig sjá, að hendur hennar skulfu
líka, ef hún hefði ekki spenntar
greipar fyrir aftan bak. Hún
neyddi sig til að segja í léttum
tón :
,,Já, það gerirðu áreiðanlega.
Jæja, en heldurðu ekki, að það
væri rétt, að þú segðir mér hrein-
skilnislega, hvað þú ætlast til af
mér ?“
Hann fór með hana til lands
og heim til Wymans í myrkrinu.
Ef þau hefðu beðið til morguns,
myndu strandverðirnir ef til vill
hafa séð þau, og þeim hefði sjálf-
sagt veizt örðugt að komast í land
án vegabréfs. En nú fyndist
Sammy einn í bátnum.
Hún beið frammi í forstofunni,
meðan hann fór inn í setustofu
Wymanshjónanna til þess að
reyna að skýra fyrir þeim, hvern-
ig í öllu lá. En strax frá upphafi
vissi hann, að þetta var ekkert
áhlaupaverk.
,,Það er stúlka hérna með mér
— eh — hún heitir Katrín —
hm —.“ Sér til skelfingar upp-
götvaði hann, að hann vissi ekki
ættarnafn hennar. Einhvern tíma
hafði hún kersknislega sagt, að
ættarnafn sitt væri Jones, enhann
vissi að það var uppspuni, enda
NÓVEMBER, 1952
57