Heimilisritið - 01.11.1952, Side 52
f--------------------------------------------------
SÆLGÆTI. — Ef þig dreymir að þú sérc að eta sælgæti, einkum ef það
er sætc súkkulaði, boðar það að þeir, sem þú umgengst, eru margir
hverjir óhreinlyndir í þinn garð og ekki þcss virði að þú treystir þeim.
Oft er slíkur draumur fyrir heppni í ástamálum.
SÆTI. — Sjá Stóll.
SÖNGUR. — Fuglasöngur í draumi boðar kátínu og ánægju. Dreymi mann
að hann syngi sjálfur, mun hann gráta áður en langt um líður.
Heyrist manni í draumi einhverjir vera að syngja, veit það á hvass-
viðri, getur líka táknað skilaboð frá einhverjum látnum. Sjúkum er
það fyrir bata, dreymi þá að þeir heyra sungið.
TÁ. — Dreynn þig að þú standir á tá, boðar það þér aðskilnað við kær-
komna persónu. Það cr talið boða lát góðs vinar, dreymi mann að
hann missi tá.
TAFL. — Ef þig dreymir að þú sért að tefia skák, muntu ciga rökræður
við einhvcrn, scnr hafa mun mikil áhrif á lífsskoðanir þínar. Margn-
telja það boða stormasamt líf, og að það sé undir sigri eða tapi í
taflinu konuð, á hvorn bóginn hallast fyrir þér í lífinu.
TALA. — Það er álitið góðs viti að dreyma, að maður sé að telja. Og ef
hann man tölu, sem hann dreymir, getur það orðið honum mikið
happ.
TANNLÆKNIR. — Að drcyma tannlækni er fyrir veikindum eða öðru
slæmu. Sértu að fara burt frá tannlækni, þarftu eiigu að kvíða, þótt
eitthvað vcrði að.
TANNPINA. — Ðreymi þig að þú hafir tannþínu, muntu öðlast mikla
og óvænta gleiði. Dcvmi þig að þú brjótir hcila tönn, muntu brátt
flytja í nýja íbúð cða fá nýja stöðu.
TÁR. — Ef þig dreymir að þú sért að gráta, boðar það þér mikla hamingju
og fögnuð. Því mcir sem þú tárfellir því mciri nnin fögnuður þinn
verða. Erfiðleikar þínir eru brátt á enda og þú munt fagna gæfunni
ásamt vinum þínum.
TE. — Dreymi þig að þú drekkir te, muntu brátt lenda í einhverjú, sem
veldur þér áhyggjum, nema þú sért því varkárari. Margir telja þenn-
an draum boða ógiftum skjóta giftingu, en giftum ánægju og alls-
nægtir.
TEIKNING. — Ef þig dreymir að þú sért að tcikna, muntu verða mikils-
virt(ur) í elHnni.
TENGDAFAÐIR. —- Að dreyma tengdaföður sinn, dauðan eða lifandi,
er slæmur draumur. Ógni hann þér eða sým rciðivott, máttu búast
við hinu versta.
TENGDAMÓÐIR. -—■ Dreymi þig tengdamóður þina, mun betiá vinátta
brátt takast með þér og einhverjum þc-r tengdum cða skyldum en áð-
50
HEIMILISRITIÐ