Heimilisritið - 01.11.1952, Side 62

Heimilisritið - 01.11.1952, Side 62
höfum ekkert sagt, sem þér hefð- uð ekki mátt heyra! Ég meina í sambandi við, að þið ætlið að látast vera hjón. Mér finnst það líka allt í lagi — og voða róman- tískt, er það ekki ? Að sofa í sama herbergi, á ég við, með karl- manni, sem ekki er eiginmaður manns . . . og, jæja, kemur bara fram eins og vinur — þér vitið hvað ég á við. Alveg eins og í bíó. En getur ekki verið að þið — ja, segjum — freistið drottni ykkar heldur um of, elskan?“ Katrín vissi naumast hvaðan á sig stóð veðrið, en gat þó stunið fram: ,,Kári hefur þá sagt ykkur allt.“ Hún hafði strax komið eins og ofan af fjöllum, þegar hún var á- vörpuð ,,ungfrú Jones.“ Og hvað átti þessi kvenmaður við með því, að tala um ,,í sama herbergi“ ? Kári hafði fullyrt við hana, að í þeim efnum væri ekkert að óttast. En samt gat hún ekki varizt því að roðna. Sem betur fór var skuggsýnt í forstofunni. Það lá við að hún ryki burt frá öllu sam- an. Hvers vegna skyldi hún fara að hætta sér út á þann hála ís, sem þessi kona var að dylgja um ? Hví ekki að segja þeim hver hún var ? Láta senda eftir móð- ur sinni, ef þess gerðist þörf, til þess að staðfesta framburð henn- ar. Þá'neyddist hún til að gera öll hin hlægileg. En hún hafði enga löngun til að hlæja að Kára. Þá yrði bundinn endi á kunnings- skap þeirra. Hún myndi neyðast til að fylgja móður sinni eftir hóteli úr hóteli og borg úr borg eins og áður, og Kári myndi ef til vill aldrei ná erfðaréttindum sínum. En varðaði það hana reyndar nokkru ? Hún minntist hans skyndilega við stýrið á gömlu sæbörðu skútunni, star- andi á hana brosandi augum. Rödd hans endurómaði í hug hennar, þegar hann sagði djúpri rödd, með ofurlitlu nefhljóði: ,,Halló, ljúfan! Það er ekki skömm að þér í dag.“ ,,Komið þér inn og heilsið manninum mínum," sagði trú Wyman. ,,Svo eigum við ein- hverja hressingu, og rúmið er í lagi. Eg býst ekki við, að þið viljið byrja að leika hjón í kvöld, er það ?“ Hún brosti og deplaði öðru auganu til Katrínar eins og hún vildi segja : ,,Það þýða eng- in látalæti við mig.“ Eiríkur Wyman kom inn með vínföng, og þótt allir hefðu áður fengið hressingu, gengu samræð- urnar skrykkjótt. Meðan frú \X y- man var uppi að útbúa rekkjurn- ar og Eiríkur fór út til að setja bílinn sinn inn, gátu þau Kári og Katrín talað saman einslega. (Frh. í nœsta hefti). 60 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.