Heimilisritið - 01.11.1952, Síða 67

Heimilisritið - 01.11.1952, Síða 67
SPURNINGAR OG SVÖR (Framh. af 2. kápus'tðu) matmálstímum á að láta scm ekkert sé, þótt barnið leifi af diskinum, og láta það fremur svelta en að vera að fjasa út af því að það borði ekki. Ef nýfætt systkini er orsök erfiðleikanna, skal þess gætt að láta eldra barnið njóta eins góðr- ar aðhlynningar og áður, til þess að koma í veg fyrir afbrýðisemi. LJÓTT GÖNGULAG „Mér hefur verið sagt, að ég hafi Ijótt göngulag. Viltu gera svo vcl að gefa mér ráð til aS lagfcera j>að?“ HIÐ sígilda ráð vjð því, er að æfa sig í að ganga með þunga bók ofan á höfð- inu. Reyndu það nokkrar mínútur á dag. Þegar þú ert á gangi, skaltu svo hugsa þér að bókin sé enn á höfðinu og að þú megir ekki láta hana detta. Sveifl- aðu fótleggjunum frá mjöðmum eins og pendúlum, lyfm bnngunni, spenntu fram neðstu hryggjarliðina, sveiflaðu handlcggjunum eðljlcga og vcndu þig á að láta fæturna vita beint fram. ÁSTASORG Sp.: Fyrir næstum tveimúr árum kynntist ég stúlku. Við felldum hugi saman, opinbemðum og fórum að búa saman á hcimili mínu, til bráðabirgða. Og við eignuðumst yndislegt barn sam- an. En nýlega snen hamingjan baki við mér. Stúlkan fór frá mér með dótt- ur okkar, sem nú er orðin ársgömul, og síðan hef ég verið í öngum mínum. Ég elska hana, og aldrei heitara en nú. Ástæðan fynr því að hún fór, var óregla mín. Ég hef allgóðar tekjur og drckk rneira cn góðu hófi gegnir, þótt ég stundi atvinnu mína sómasamlcga. Ég veit að ég get vel sagt skilið við Bakkus, n það þorir hún ekki að treysta á. Hins- vegar veit ég fyrir vfst, að hún cr ekki með öðrum manni. Hvað á ég að gera? Við vorum búin að tala svo mikið um framtíðarheimili okkar. Ég þrái ckkert eins og að fá þau aftur til mín. Held- urðu að þetta geti lagazt? — H. Sv.: Ertu sannfærður um að stúlkan elski þig og langi til að giftast þér, jafn- vel þótt þú hættir að drekka? Það er ég ekki, þér að segja. Ástfangnar stúlkur sjá ástvin sinn venjulega í svo fegrandi Ijósi, að þær geta fyrirgefið honum næst- um allt. — En sýndu henni það svart á hvítu, að þú sért hættur að drekka. Gakktu til dæmis í stúku. Leggðu fyrir stóra fjárhæð af kaupinu þínu mánaðar- lega og gerðu áætlun um framtíð þína — hvenær þú treystir þér að stofna eig- ið heimili, hvernig þér muni takast það o. s. frv. Talaðu við hana um þetta, og lofaðu henni við drengskap þinn að bregðast ekki trausti hennar, cf hún vilji reyna þig að nýju. Bentu henni á, að það sé barninu fyrir beztu, að vcra á heimili foreldra sinna. Þetta og margt fleira væri reynandi fyrir þig. Og ef hún elskar þig, er ég sannfærð um, að hún hikar ekki við að flytja til þín aftur. FALLEG HÚÐ ÓSKAST! Svar til „Gunntt": — Hreinsaðu húð- ina á hverju kvöldi vandlega upp úr feitu kremi. Láttu það vera nokkra stund á húðinni og þurrkaðu það svo af. Ef húðin er þurr, á að nudda hana upp úr nærandi næturkrcmi. Sé hún feit, á að baða hana upp úr spritti eða brcnni- steinsblöndu. Þvoðu þér á hverjum rnorgni upp úr volgu, soðnu vatni. Á efrir er ágætt að gefa sjálfri sér 20 snarpa kinnhcsta. Þvoðu þér vikulcga upp úr agúrkusafa, sem þú vindur úr rifnum agúrkum í þunnum klút. Næg- ur svefn og útivera er nauðsynlegt fyrir Ns- Eva Adams

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.