Heimilisritið - 01.05.1955, Side 28
geta sett þig svolítið í mín spor.
Ég kæri mig kollótta um skóla-
vist í París og þetta svokallaða
góða fólk. Mig langar til að sjá
lífið, fólk, falleg föt og ljós, og
ég verð hér.“
„Ég get hætt að láta þig hafa
peninga,“ sagði Lesley kulda-
lega.
„Þá get ég tekið lán út á arf-
inn,“ svaraði Kit.
„Æ, þú ert ómöguleg,“ sagði
Lesley og stóð upp.
Síminn hringdi inni í svefn-
herbergi Lesleyjar og hún gekk
til dyra.
,.Það er þá stríð,“ sagði Kit
meinfýsin. Lesley svaraði henni
engu.
Það var Randall, sem hringdi.
„Komið og borðið morgunverð
með mér, Lesley,“ sagði hann,
„og takið hina fögru dóttur yð-
ar með.“
„Hún ætlar víst út,“ svaraði
Lesley.
„Eruð þér hrædd við hana?“
spurði Randall ótugtarlega. Les-
ley sá fyrir sér háðsglottið á
vörum hans. Hann var eins og
stór, svartur köttur. Undarlegt,
að hún skyldi elska hann svona
heitt. Ef til vill var það af því
hve hann gat verið miskunnar-
laus. Áður fyrri voru það karl-
mennirnir, sem elskuðu hana.
Hún svaraði rólega: „Verið
þér nú ekki heimskur. Ég skal'
spyrja hana.“
Hún fór aftur til Kit. „Við eig-
um að borða morgunverð með
John Randall. Þú getur farið í
svörtu dragtina mína. Ég skal
láta þig fá ávísun, svo að þú get-
ir keypt það sem þú þarft seinna
í dag. Ef það er alvara þín að
haga þér eins og fífl, þá er á-
stæðulaust, að þú gerir það í föt-
unum mínum.“
„Þetta er reglulega fallegt af
þér,“ sagði Kit með nokkurri að-
dáun. „Mig langar svo agalega
mikið til að eignast ný föt.“
Lesley var mjög falleg í brún-
um kjól og loðskinnsslái, en Kit
var þó ennþá fallegri í svörtu
dragtinni með skásettan Parísar-
hatt. Æskan og fegurðin ljóm-
uðu af henni í nýtízku umgerð.
Randall var mjög hrifinn af'
henni.
„Viljið þér kampavín, litla
mín?“ spurði hann.
„Nei, takk,“ svaraði Kit.
„Of ung til þess?“ spurði
Randall og leit spyrjandi á Les-
ley.
,,Nei,“ svaraði Lesley brosandi.
„Of skynsöm. En ég er eldri en
svo að ég sé það lengur, svo að
ég vil fá dropa. Mér finnst ég
þurfa þess.“
Kit leit snögglega á Lesley og
fannst sem eitthvað þiðnaði í
26
HEIMILISRITIÐ