Heimilisritið - 01.05.1955, Blaðsíða 60
geðjaðist vel að honum við
fyrstu sýn, og það gladdi hana.
Frú Kinlock lét sér nægja að
kinka kolli yfirlætislega, og
henni gramdist hvernig birti yf-
ir svip allra, þegar Linda nálg-
aðist. Jú, hér var sitt af hverju,
sem lagfæra þurfti. Þetta fólk
skyldi fá að læra, að það var
talsverður munur á Kinlock-
fjölskyldunni og þjónustuliðinu!
En sjálfsagt var það orðið spillt
af atlæti, svo að grípa þyrfti til
róttækra aðgerða, áður en það
vendist því að láta stjórnast af
styrkri hendi.
Þegar þau komu inn í anddyr-
ið kom Gyp flaðrandi með mikl-
um vinalátum upp um Lindu.
En svo fór hann allt í einu að
hlaupa um og þefa hátt og lágt.
„Hvað í ósköpunum gengur
eiginlega að hundinum?“ spurði
Linda undrandi, þegar Gyp kom
og gelti framan í hana.
En Bruce skildi hundinn og
flýtti sér að breyta um umræðu-
efni.
„Þú verður að sýna mér höll-
ina fyrr en seinna,“ sagði hann.
„Viltu vera með, mamma?“
En frú Kinlock kaus heldur að
sitja fyrir framan arininn í dag-
stofunni og fá te. Linda hefði
fremur viljað fara að hennar
dæmi, en á hinn bóginn var það
hálfgerður léttir að losna við
umgengni við þá gömlu um
stund.
Það var farið að skyggja, þeg-
ar Linda og Bruce byrjuðu
göngu sína um höllina, og bæði
komust þau í undarlega, hátíð-
lega stemmningu, er þau gengu
um hinar virðulegu stofur. Linda
hafði til vonar og vara tekið með
sér kerti í stjaka, og hún kveikti
á því, þegar þau komu í her-
bergin uppi, þar sem lægra var
undir loft. Flest þeirra voru
notuð sem geymsla, en nokkur
voru notuð sem svefnherbergi.
í einu þeirra voru veggirnir
þaktir með fjölskyldumyndum,
og þær vöktu athygli Bruce.
„Ég verð að skoða þær ræki-
legar, þegar bjart er,“ sagði
hann. „Því að þetta eru jafnt
forfeður mínir sem þínir, Linda.
Og nú verðurðu að vera svo góð
að sýna mér svefnherbergið
mitt. Eða kannske viltu vera
laus við það. Líklega tek ég við
herbergi föður þíns, og að til-
hugsuninni um það geðjast þér
víst ekki.“
„Við getum ekki breytt út af
hefðbundinni venju hér aðeins
mín vegna,“ sagði Lida. „Her-
bergið heitir svefnstofa lávarð-
arins, og það leiðir af sjálfu sér,
að eigandi herragarðsins notar
það fyrir sig. Eins er það sjáif-
sagt að móðir þín taki rauða her-
58
HEIMILISRITIÐ