Heimilisritið - 01.05.1955, Side 29
hjarta sér. Lesley hafði hætt að
leika hina mildu móður, og nú
sá Kit hana eins og þegar kona
lítur á konu, og hún sá nú, að
sem slík var hún dásamleg. Kit
hafði ætlað sér að gera eins og
•hún gæti til að vinna hug Rand-
alls, en hætti við það. Lesley
gat vel séð, þótt hún léti ekki á
því bera, að þessi miðaldra mað-
ur var stórhrifinn af dóttur henn-
ar.
Kit var kát og fyndin, og þeg-
ar hún leit á hann skærum aug-
um fannst honum hann vera
orðinn gamall og utan við sig.
Þegar hann sá þennan æsku-
ljóma, fékk hann hálfgert sam-
vizkubit vegna daganna, sem
hann hafði sóað til einskis, og
þeirri hugsun skaut upp 1 huga
hans að fara að bæta ráð sitt.
Kit bað leyfis um að mega
fara, þegar þau höfðu lokið við
kaffidrykkjuna, og skildi Lesley
eina eftir hjá Randall. Hún
mætti Jan Beverley í dyrunum.
Hann er laglegur, í jakkaföt-
um, með gamlan brúnan hatt
niður í augu. Hann var mjög
brúnn á hörund í dagsbirtunni
og reiðilegur á svipinn.
„Hvernig getur yður komið til
hugar að borða með manni eins
og Randall?“ spurði hann.
„Það var allt skikkanlegt.
Litla stúlkan hafði mömmu sína
með,“ sagði Kit stríðnislega.
„Hvaðan hafið þér annars frétt
þetta?“
„Ég var að borða með manni
rétt hjá. Þér létuð ekki svo lít-
ið að líta á mig. Maðurinn er
bálskotinn í yður, hann Randall
á ég vjð.“
Kit hló. „Hvaða vandræði!“
sagði hún. „Ég held nefnilega,
að ég sé skotin í yður.“
„Kit,“ sagði hann og tók báðar
hendur hennar, „þér eruð bara
að stríða mér.“
„Sá, sem engu vogar, vinnur
ekkert,“ sagði hún brosandi. „Eg
ætla að skreppa svolítið í búðir,
en á eftir langar mig í te.“
„Þó að þér hafið sjálf sloppið
við að vera kjölturakki, þurfið
þér ekki endilega að reyna að
gera mig það,“ sagði Jan bál-
vondur, sneri baki við henni og
brunaði niður Piccadilly.
„Komið þér aftur, kjáni!“
hrópaði Kit, og dyraverðinum
til mikillar furðu, hljóp hún á
eftir Jan og þreif í handlegginn
á honum. Eftir stutt, alvarlegt
samtal leiddust þau niður göt-
una.
Geysistór blómvöndur stóð á
snyrtiborði Kit um kvöldið.
Hann var frá Randall. Ennfrem-
ur boðskort til hennar og Les-
leyjar í kvöldverð. Kit var í dauf-
grænum flauelskjól, en Lesley
MAÍ, 1955
27