Heimilisritið - 01.05.1955, Side 30
var dálítið þreytuleg meðan á
kvöldverðinum stóð.
Svona hélt þetta áfram. Rand-
all bauð Kit alltaf líka, og Les-
ley lét sér það lynda. Kit fékk
ekki skilið móður sína. Þær
höfðu sagt hvor annarri stríð á
hendur, en fjandmaðurinn gerði
aldrei árás. Menn fóru að tala
um, að Lesley væri að reyna að
gifta dóttur sína John Randall
hinum auðga. En Lesley reyndi
það alls ekki. Hún vissi, að það
var óhjákvæmilegt. Randall var
ástfanginn af Kit, og Lesley sá
nú í fytsta skipti hvaða maður
gæti orðið úr þessum sjálfselska
náunga.
Einn góðan veðurdag sendi
Randall bílstjórann sinn með
lítinn, þungan og þéttan böggul.
í honum var sýnilega skart-
gripaskrín. Lesley sat í dagstofu
sinni og þóttist nú sjá sönnun
þess, að æska og fegurð dóttur-
innar hefði unnið sigur á móð-
urinni.
Vagn nam staðar fyrir utan,
og andartaki síðar kom Kit inn.
Hún hafði verið í reiðtúr og var
glöð og blómleg. Hún bar fjólur
í hnappagatinu á treyjunni. Hún
gekk út að glugganum og veif-
aði til einhvers, sem ók af stað
í gömlum, hriktandi bíl.
„Þarna er eitthvað, sem kom
til þín áðan,“ sagði Lesley.
Kit tók böggulinn og leysti
hann upp. Þar var skrín, alveg
rétt. Á mjúku fleueli lágu raðir
af glitrandi gimsteinum og nafn-
spjald Johns Randals. „Ég verð
að fá að hitta yður í kvöld,“
stóð þar.
,.Þá biður hann þín,“ sagði
Lesley skjótlega.
Kit virti armbandið fyrir sér,
þung á brúnina, en snerti það
ekki. Hún leit á móður sína og
sagði: „Hvað finnst þér um þetta,
Lesley?1'
Lesley leit upp eins og hún
væri að taka á móti einvígis-
áskorun.
„Ég myndi giftast honum, ef
ég væri í þínum sporum," sagði
hún.
Kit leit til hennar, settist hjá
henni og tók utan um hana.
Það var sem kökkur kæmi í
hálsinn á Lesley við þessi vinar-
hót. Hún minntist Kit eins og
hún var fyrir mörgum árum,
lítil telpa með liðaða lokka.
„Ég skil þig ekki,“ sagði Kit.
„Þegar ég kom hingað úr skól-
anum, vildir þú ekkert með mig
hafa. Ég hélt að þú elskaðir
Randall, og þú hefðir getað
haldið honum, hefðir þú kært
þig um. En þú lagðir hann alveg
upp í hendurnar á mér.“
Sér til mikillar skelfingar sá
hún, að Lesley var farin að
28
HEIMILISRITIÐ