Heimilisritið - 01.05.1955, Blaðsíða 32

Heimilisritið - 01.05.1955, Blaðsíða 32
Á hælum dauðans Robert Todd Lincoln var elzti sonur Maríu og Abrahams Lincolns hins fræga Bandaríkjaforseta. Það átti fyrir Robert þessum að liggja að verða sjónar- vottur að þremur hinum voveiflegustu atburðum í sögu Bandaríkjanna. Robert Lincoln var fæddur í Spring- field í Illinois árið 1843. I bernsku hans náði faðir hans þjóðfrægð og heims- frægð, en hafði áður verið lítt þekkt- ur maður. Árið 1864 útskrifaðist Robert frá Harvard-háskólanum og innritaðist sem höfuðsmaður í her Sambandsríkj- anna undir stjórn Grants herforingja. Robert Lincoln var viðstaddur, þegar Lee, hershöfðingi Suðurríkjanna gafst upp við Appomattox. Eftir það hraðáði hann sér sem mest hann mátti heim til Washington. Hann kom þangað að kvöldi þess 14. apríl 1865 og flýtti sér til Ford-leikhússins, en þar var forset- inn, faðir hans, viðstaddur leiltsýningu. Hann kom til leikhússins einmitt í þeim svifum, þegar faðir hans var bor- inn út úr leikhúsinu. Hálf-brjálaður morðingi, John Wilkes Booth, hafði skotið hann í hnakkann. Sextán árum síðar varð Robert Lin- coln hermálaráðherra í ráðuneyti James Garficlds forseta. Skömmu eftir valda- töku sína fór Garfield forseti til Willi- amstown til þess að vera viðstaddur há- skólahátíð. Járnbrautarlestin, sem hann ætlaði með, átti að fara frá gömlu Balti- more og Ohio-járnbrautarstöðinni í Washington 2. júlí 1881. Fáum mínútum áður en lestin átti að fara af stað, kom Robert Lincoln á brautarpallinn til þess að kveðja forseta sinn. Hann kom þangað einmitt í þeim svifum, þegar forsetinn var borinn út af stöðinni, helsærður, hafði orðið morð- ingja að bráð, manni að nafni Charles J. Guiteau, sem skaut forsetann í bakið. Robert Lincoln varð síðar sendiherra Bandaríkjanna í Englandi undir stjórn Benjamíns Harrison, síðar, er hann dró sig út úr opinberum störfum varð hann forstjóri Pullman-félagsins. Árið 1901 bauð William McKinley forseti Lincoln og fjölskyldu hans að fara á Sam-amer- ísku sýninguna í Buffalo, New York, í fylgd með sér. Robert Lincoln þáði boð- ið og kom til sýningarinnar 6. septem- ber, — og kom einmitt í þeim svifum, þegar forsetinn var borinn út. Pólskur stjórnleysingi, Leon Czolosz, hafði skot- ið hann aftan frá, meðan forseti tók á móti gestum í Tónlistarhöllinni. Þessar dapurlegu endurminningar gerðu Robert Lincoln niðurdreginn og þunglyndan. Hann tók upp mjög ein- manalega lifnaðarhætti. Arið 1929 af- henti hann þjóðþingsbókasafninu í Washington skjalasafn föður síns, 10 þús. skjöl samtals. Hann setti það skil- yrði, að skjölin væru innsigluð unz 21 ár væri liðið frá dauða hans. 26. júlí 1929 andaðist Robert Linc-oln. Orlög þessa manns, Roberts Lincolns, eru býsna einkenndeg. Af þrjátíu og þremur forsetum Bandaríkjanna voru þrír myrtir. Sá fyrsti var faðir hans. Robert Lincoln kom að rétt í þeim svif- um þegar forsetarnir þrír voru bornir dauðir og dauðvona frá þeim stað, er þeir voru á, þegar kúla morðingjans hafði hæft þá. Það varð því hlutverk Roberts Lincolns að vera þar alltaf á hælum dauðans. Hs 30 HEIMILISRITIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.