Heimilisritið - 01.05.1955, Síða 46
hár. Hún var regluleg fegurðar-
dís.
„Seztu, Alice, og þurrkaðu af
þér tárin,“ sagði ég. „Hvers
vegna ætti svona falleg stúlka
að vera að gráta?“
„Það er einmitt það,“ sagði
hún. „Ég er ekki falleg. Ég er
hræðileg ásýndum! Lítið bara
á andlit mitt. Það er alsett ó-
geðslegum bólum. Mér líður illa
— og hef andstyggð á sjálfri
mér. Mér hefur ekki verið boð-
ið út í tvo mánuði. Og ég er viss
um, að allrr hlæja að mér.“
Hefði ég ekki tekið eftir hvað
hana tók þetta sárt, hefði ég
brosað að henni. „Kannske get-
um við ráðið bót á þessu, áður
en það verður verra. Auk þess
hef ég nógan tíma í dag, svo að
kannske get ég leyst úr vand-
ræðum þínum með hörund þitt.“
Þar sem ég veit, að aðrir ung-
lingar hefðu áhuga á spurning-
um Alice varðandi meðferð og
snyrtingu andlitsins, skrifa ég
niður spurningarnar, sem hún
lagði fyrir mig, og svör mín —
eins og ég orðaði þau við hana.
Hvers vegna lief ég bólur en
sumar stúlkur ekki?
Það er ekki gott að svara
þessu, Alice. Þú gætir allt eins
spurt hvers vegna þú hefur græn
augu og aðrar stúlkur brún eða
blá augu. Engar tvær manneskj-
ur eru nákvæmlega eins. Sumar
stúlkur hafa þurra húð; aðrar
hafa grófa og feita húð. Öll
kirtlastarfsemi í líkama okkar
er svo mismunandi. Til dæmis
eru sumar stúlkur aðeins ellefu
og hálfs eða tólf ára, þegar þær
fara að hafa á klæðum. Aðrar
stúlkur — fullkomlega heil-
brigðar, byrja kannske ekki fyrr
en þær eru orðnar fjórtán eða
fimmtán ára. Það er vegna þess
að kirtla- og hormónastarfsemi
þessara stúlkna breytist mis-
munandi hratt, enda þótt allar
séu fullkomlega eðlilegar.
Margir vísindamenn hafa
reynt að skýra þennan mismun
og nokkrir, eins og dr. Frederic
T. Becker í Duluth, Minnesota,
hafa gert tilraunir með hor-
móna-myndun í konum á ýms-
um aldri, meðal annars þeim,
sem eru bólugrafnar eða ekki.
Menn hafa komizt að raun um,
að unglingar hafa minna magn
af vissum hormónum í þvaginu
en eldri konur. Unglingar, sem
höfðu bólur í andlitinu, höfðu
yfirleitt meira magn af þessum
sömu hormónum en jafnöldrur
þeirra, sem höfðu heilbrigt hör-
und.
Þess vegna er bezta svarið sem
ég get gefið við spurningu þinni,
að þetta er frekar innvortis
44
HEIMILISRITIÐ