Heimilisritið - 01.05.1955, Qupperneq 47
meinsemd en útvortis. Kremið,
sem þú notar á andlitið, skiptir
ekki svo tniklu máli. Það er
breytingin á kirtlastarfsemi lík-
amans, þegar þú ert að verða
að konu. Þetta er mikilvæg vit-
neskja í baráttunni við þennan'
húðsjúkdóm, sem við vonum að
einhvern tíma verði hægt að
lækna.
Hvers vegna kemur þetta á
mínum aldri?
Ég held, að ég hafi þegar svar-
að þessari spurningu að ein-
hverju leyti. Fyrir unglingspilt
eða stúlku er lífið þegar orðið
erfitt. Læknar segja, að það sé
tímabil „sálrænnar aðlögunar“.
Það þýðir, að þetta sé tímabil
vaxtar og þroska. Hjá stúlkunni
fara eggjastokkarnir að þroskast
og gefa frá sér hormóna, sem
valda því að brjóstin stækka og
líkaminn breytist. Flestir húð-
sérfræðingar eru sammála um,
að eitthvert samband sé á milli
efnis þess, sem eggja-stokkarn-
ir gefa frá sér, og bólótts hör-
unds á þessu aldurskeiði.
Margir húðsérfræðingar nota
raunar hormóna við að lækna
bólur á unglingsstúlkum. Þessir
hormónar eru kallaðir ,,estro-
genar.“ Á unglingsárum eru
kirtlarnir í andlitinu, einkum
svitakirtlarnir og hárræturnar,
mjög viðkvæmir fyrir hormón-
um þeim, sem eggjastokkarnir
gefa frá sér.
Því má segja, að á unglingsár-
unum sé andlitið sérlega mót-
tækilegt fyrir bólur.
Þær stúlkur, sem eru sérlega
slæmar í húðinni rétt fyrir tíð-
ir og hafa bólur aðallega á hök-
unni og neðri hluta andlitsins,
væri kannske hægt að lækna
með hormónagjöfum. En ég legg
mikla áherzlu á það, Alice, að
slíkt má aðeins reyna undir ná-
kvæmu eftirliti læknis, annars
getur það valdið alvarlegum
veikindum. Engin stúlka skyldi
taka hormónatöflur, sem vin-
kona hennar notar.
Þótt flestir húðsérfræðingar
hafi ekki trú á, að geðshræring-
ar valdi húðkvillum, halda sum-
ir læknar, að taugaóstyrkur hafi
slæm áhrif. Hvort ófullnægð
kynþörf getur valdið truflun á
kirtlastarfsemi, og þannig vald-
ið húðkvillum, geta aðeins sér-
fræðingar sagt um.
Valda gerlar á hörundi þess-
um kvilla?
Raunar eru til tvær tegundir
af þessum húðsjúkdómi. Það er
til sú algengari, þar sem sárin
eru ekki djúp, en eru efst í húð-
inni eins og smá þrútin flugna-
bit og verða síðar að fílapensum.
MAÍ, 1955
45