Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.09.2013, Blaðsíða 69

Fréttatíminn - 20.09.2013, Blaðsíða 69
4 ÍSLENSKT GRÆNMETIHAUST 2013 5ÍSLENSKT GRÆNMETIHAUST 2013 Þetta kartöflu-gúrkusalat er sérlega gott með steiktu og grilluðu kjöti. Gúrkan skorin í teninga, tómatarnir í báta og kartöflurnar í bita, ekki mjög litla. Vorlaukurinn saxaður fremur smátt. Sýrður rjómi, dijonsinnep, söxuð basilíka, pipar og salt hrært saman í skál og síðan er gúrku, tómötum, vorlauku og kartöflum hrært saman við. Látið standa nokkra stund í kæli. Borið fram t.d. með lambakjöti eða öðru steiktu kjöti. Nanna Rögnvaldardóttir Ofninn hitaður í 200°C. Kartöflurnar skornar í fjórðunga eða báta (ef þær eru stórar). Gulrófurnar flysjaðar og e.t.v. skornar í stóra bita. Rófurnar og hnúðkálið flysjað og skorið í bita. Laukurinn afhýddur og skorinn í fjórðunga. Olíu, sítrónusafa, hvítlauk, rósmaríni og steinselju blandað saman í eldföstu fati eða ofnskúffu. Grænmetið sett út í og velt upp úr olíunni. Bakað í 30-40 mínútur, eða þar til allt grænmetið er meyrt í gegn og hefur tekið lit. Hrært einu sinni eða tvisvar. Borið fram t.d. með steiktu kjöti eða kjúklingi. Nanna Rögnvaldardóttir Kartöflusalat með gúrkum Ofnbakað grænmeti 1 íslensk gúrka, lítil 500 g soðnar kartöflur 1-2 vorlaukar 1 dós sýrður rjómi, 18% 1 tsk dijonsinnep 10-15 basilíkublöð, söxuð nýmalaður pipar salt 500 g kartöflur 500 g gulrófur 300 g gulrætur 300 g hnúðkál (má sleppa) 2 rauðlaukar 5 msk olía safi úr ½ sítrónu 3-4 hvítlauksgeirar, saxaðir nálar af 1-2 rósmaríngreinum, saxaðar (má sleppa) 3-4 msk steinselja, söxuð Fáðu þér sopa af grænmeti! -þeytingar við allra hæfi Ný neysluviðmið hafa verið sett fram varðandi ráðlagðan dagskammt af grænmeti og ávöxum. Nú er stefnt að því að neyta minnst 500 gramma á dag. Þetta er sú framtíðarsýn sem Norræna ráðherranefndin setti nýlega fram eftir viðamikla rannsókn sem gerð var í öllum norrænu ríkjunum. Í henni kom fram að íbúar á Norðurlöndum eiga langt í land með að ná þessu markmiði. Hér á landi hafa landsmenn að meðaltali neytt um 200 gramma af grænmeti og ávöxum, þannig að betur má ef duga skal. Grænmetisþeytingar henta vel til að fá börn til að borða grænmeti. Hér eru nokkrar góðar uppskriftir af grænmetis- og ávaxtaþeytingum. Það er Margrét Leifsdóttir heilsumarkþjálfi IIN sem gerði uppskriftirnar. Hún hefur sótt nám í hráfæðiskóla Ann Wigmore í Puerto Rico og þar lærði hún meðal ananrs að gera græna drykki. „Ég reyni að borða mikið af dökkgrænu og litríku grænmeti vegna þess að það er auðmeltanlegt og fullt af vítamínum, steinefnum og trefjum og best er að nota íslenskt grænmeti því það er laust við alla mengun“, segir Margrét. „Grænir þeytingar eru góður felustaður fyrir kaldpressaðar olíur. Það er mjög gott fyrir okkur að bæta 1 msk. af kaldpressaðri olíu út í drykkinn. Þannig fáum við omega 3 fitusýrur sem virka m.a. bólgueyðandi á líkamann. Kaldpressaðar olíur eru í dökkum glerflöskum. Sömueiðis er gott að setja spírur út í þeytingana, þær eru stútfullar af ensímum sem hjálpa líkamanum við að melta fæðuna. Verið duglega að prófa ykkur áfram með eigin uppskriftir og notið grænmeti sem ykkur finnst best“, segir Margrét Leifsdóttir. Sólstafir 3 meðalstórar gulrætur 1 íslensk paprika rauð eða gul 2 afhýddar appelsínur 3 cm engifer 0,5 lítrar kalt vatn og 1 handfylli klakar Allt sett í blandara og blandað vel Laufléttur 1 Grand salat 1 rauð íslensk paprika 2 cm engiferg 2 lúkur frosinn mangó (eða ferskur) safi úr ½ sítrónu 0,4 l kalt vatn Allt sett í blandara og blandað vel C – vítamín þruma 2 íslenskar paprikur (rauðar, gular eða appelsínugular) 1 handfylli kirsubjerjatómatar ½ agúrka5 safi úr ½ sítrónu 0,3 lítrar kalt vatn Allt sett í blandara og blandað vel Hvítkál í felum 1 handfylli íslenskt hvítkál 1 handfylli íslenskt kínakál 1 handfylli frosið mangó ½ avókadó 1 handfylli frosin ber 0,5 lítrar kalt vatn Allt sett í blandara og blandað vel Sprækur 1 knippi pottasalat, td. Grand-, Endive- eða Íssalat 2 stilkar sellerí 1 avókadó 2 gulrætur 2 epli (helst lífrænt) 0,4 lítrar kalt vatn (ca. 2 glös) 1 handfylli klakar Allt sett í blandara og blandað vel Atvinnumaðurinn 1 grænt íslenskt potta- eða pokasalat 2 stönglar sellerí með laufunum 2 meðalstórar gulrætur ½ agúrka ½ hnúðkál 1 avókadó 2,5 cm engifer 2 græn epli 0,5 lítrar kalt vatn og handfylli klakar Allt sett í blandara og blandað vel Miðjarðarhafsþeytingur 4 vel þroskaðir tómatar 3 stilkar sellerí með laufunum 75 gr. fjallaspínat eða annað íslenskt spínat (góð 2 handfylli) 1 handfylli íslenskt klettasalat 1 avókadó (má sleppa) ½ bolli ferskt basil safi úr einni sítrónu 0,4 l vatn Allt sett í blandara og blandað vel Haust ½ rófa (ca. 70 gr.) 1 handfylli spergilkál ½ agúrka 1 paprika 2 gulrætur 1 epli 0,4 lítrar kalt vatn og handfylli klakar Allt sett í blandara og blandað vel Siggi frændi (hentar vel fyrir börn og byrjendur í grænum) 75 gr. íslenskt fjallaspínat ½ rófa (ca 70 gr.) 1 avókadó 0,4 lítrar Engifersafi frá Floridana 1 handfylli klakar Allt sett í blandara og blandað vel Óvænt blómkálsbomba 2 handfylli blómkál ½ rófa eða hnúðkál (ca. 70 gr.) 1 handfylli frosin ber 1 handfylli frosið mangó 0,5 lítrar kalt vatn Allt sett í blandara og blandað vel Sumarkveðja ½ rófa ca. 120 gr. (eða hnúðkál) 2 handfylli íslenskt Kínakál 3 meðalstórar gulrætur 2 handfylli frosinn ananas 1 handfylli frosin hindber eða blönduð ber 0,4 lítrar kalt vatn Allt sett í blandara og blandað vel Yndi 3 stór grænkálsblöð (eða 2 handflylli af öðru dökkgrænu salati) 2 handfylli hvítkál (ekki taka kjarnann með) 2 ½ cm engifer 2 handfylli frosinn ananas 0,5 lítrar kalt vatn Allt sett í blandara og blandað vel Rokkólí 1 handfylli spergilkál 1 handfylli blómkál 1 stilkur sellerí 2 epli ½ avocado safi úr ¼ af sítrónu 0,5 lítrar kalt vatn Allt sett í blandara og blandað vel Alvöru ofurdrykkur 3 stór grænkálsblöð ½ agúrka 1 rauð paprika ein lúka bláber (fersk eða frosin) 1 epli (helst lífrænt) ½ liter kalt vatn 1 handfylli klakar Allt sett í blandara og blandað vel
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.