Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.09.2013, Blaðsíða 8

Fréttatíminn - 20.09.2013, Blaðsíða 8
Laaaaaaaaaangbestar? Mörgum finnst Superfries vera laaaangbestu frönskurnar og þær eru nú betri en nokkru sinni áður. Sérvaldar kartöflur, steiktar í repjuolíu og kryddaðar með sjávarsalti. Prófaðu núna! Tveir þriðju Ís- lendinga eiga snjall- síma en MMR kannaði á tímabilinu 30. ágúst til 3. september farsímanotkun Íslendinga og viðhorf til ólíkra farsíma tegunda. „Vinsældir snjallsíma meðal Íslendinga halda áfram að aukast,“ segir í greinargerð með könnuninni. „Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 66,4% eiga snjallsíma nú, borið saman við 53,8% í október 2012 og 38,0% í nóvem- ber 2011. Til samanburðar sögðust 68% í Bretlandi eiga snjallsíma, 52% í Bandaríkj- unum, 64% í Rússlandi og 60% í Brasilíu. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust flestir nota farsíma frá Nokia eða 32,6%. Þegar svar- endahópnum var skipt eftir því hvort símtæki svarenda voru snjallsímar eða ekki kom hins vegar í ljós verulegur munur á fjölda notenda með Nokia síma. Þannig voru 78,0% þeirra sem nota hefðbundin símtæki sem sögðust mest nota Nokia síma. Á móti voru aðeins 10,1% þeirra sem sögðust vera með snjall- síma með símtæki frá Nokia. Hlutdeild Nokia meðal snjall- símanotenda var því lægri en meðal notenda á hefðbundnum farsímum. Hlutdeild Nokia á meðal snjallsímanotenda hefur lækkað stöðugt frá því í nóvem- ber 2010 þegar hún mældist 50,8%. Flestir snjallsímanotendur voru með símtæki frá Sam- sung eða 36,7% þeirra sem tóku afstöðu til spurningarinnar. Hlutdeild Samsung meðal snjallsímanotenda hefur aukist stöðugt frá því í nóvember 2010 þegar hún mældist 3,8%. Hlut- deild Apple (iPhone) á snall- símamarkaði hefur einnig aukist og mælist nú 32,3%, borið saman við 5,6% árið 2010. Hlut- deild annarra framleiðenda á snjallsímamarkaði hefur ýmist staðið í stað eða dregist saman.“ Þegar spurt var hvaða vöru- merki yrði líklegast fyrir valinu ef keyptur væri snjallsími í dag sögðu flestir Samsung og næst flestir sögðu Apple (iPhone). - jh  Farsímar samsung og iPhone stinga aF Snjallsímar njóta sífellt meiri vinsælda meðal Íslendinga. Ljósmynd/NordicPhotos/ GettyImages Tveir þriðju eiga snjallsíma  Fasteignamarkaður Lúxusíbúðir seLjast veL og FLeiri í byggingu Lúxusíbúðirnar rjúka út m argir virðist hafa peninga á milli handanna og geta leyft sér að festa kaup á eign sem þeim þykir henta, hvort sem það eru lúxus- íbúðir eða hefðbundnar nýjar íbúðir. Ef fólk finnur réttu eignina setur það verðið ekki endilega fyrir sig og margir eru tilbúnir að bíða eftir réttu íbúðinni,“ segir Óskar R. Harðarson, framkvæmda- stjóri fasteignasölunnar Mikluborgar en á næstu misserum mun framboð af nýbyggingum á eftirsóttum svæðum aukast verulega. Samkvæmt upplýsingum Fréttatímans er mikil eftir- spurn eftir lúxusíbúðum á fasteignamarkaði um þessar mundir og seljast eftirsótt- ustu íbúðirnar á háu verði. Aðeins tíu íbúðir eru óseldar í háhýsinu að Lindar- götu 37 sem afhent verður í nóvember. Það er ellefu hæða og stærsta íbúðin er 254 fermetrar að stærð. Að sögn Óskars eru allar íbúðirnar á þremur efstu hæðunum seld- ar en enn er hægt að næla sér í stærri íbúðir á sjöundu og áttundu hæð auk þess sem sex minni íbúðir eru óseldar. Nýlega hófust framkvæmd- ir við glæsilegt fjölbýlishús á Hrólfsskálamel á Seltjarnar- nesi en fyrir var eitt nýlegt hús þar sem bróðurparturinn af íbúðunum er þegar seldur. 31 íbúð verður í nýja húsinu, þær minnstu eru 90 fermetr- ar en sú stærsta er um 260 fermetrar. Ekki er enn farið að auglýsa íbúðirnar til sölu en þó hafa tilvonandi kaup- endur þegar látið taka sex íbúðir frá. Þar á meðal eru tvær stærstu íbúðirnar. Sömuleiðis hefur þegar verið selt töluvert af íbúðum í byggingu sem er að rísa við Mýrargötu 26, við höfnina í Reykjavík. Alls verða 68 íbúðir í húsinu og er tuttugu og ein þegar seld. Fermetra- verðið í húsinu er á bilinu 400 þúsund til 590 þúsund krón- ur. Samkvæmt upplýsingum Fréttatímans seldist ein íbúð á sjöundu hæð með útsýni yfir höfnina og til Hörpunnar á því toppverði á dögunum. Fleiri nýbyggingar með íbúðum á eftirsóttum svæðum munu rísa á næstu misserum. Á Lýsisreitnum í Vesturbæ Reykjavíkur munu rísa 144 íbúðir, meðal annars í níu hæða húsi og þar verða glæsilegar lúxusíbúðir með sjávarútsýni. Óskar hjá Mikluborg segir að Lýsis- reiturinn sé mjög áhugavert verkefni enda hafi það ekki gerst í háa herrans tíð að byggt sé af krafti í Vestur- bænum sem er ávallt vinsælt hverfi. Í Mánatúni í Reykjavík er nú unnið að byggingu þriggja fjölbýlishúsa þar sem samanlagt verða um 175 íbúðir. Margar af þeim verða með glæsilegu útsýni og falla í flokk lúxusíbúða. Á Garðatorgi í Garðabæ rísa allt að átta hæða bygg- ingar sem verða á besta stað í miðbæ bæjarins. „Þetta er mjög spennandi svæði sem gjörbreyta mun ásjónu bæjarins,“ segir Óskar sem sjálfur býr í Garðabæ. „Þarna verða vandaðar íbúðir í háum gæðaflokki, örstutt frá verslun og þjónustu.“ Allra stærstu lúxusíbúðirn- ar á efstu hæðum sem seljast hér á landi kosta sumar hverjar vel yfir eitt hundrað milljónir króna. Óskar segir að ekki séu margar slíkar í boði og því kosti það sitt að festa sér eina slíka. Þessar íbúðir eru enda oft á tíðum það stórar að þær eru nánast eins og einbýli á einni hæð sem þykir eftirsótt. „Þess ber þó að geta að í öllum þessum húsum verða íbúðir sem henta kaupendum sem leita að nýjum vönduðum íbúðum í öllum verðflokkum, miðað við stærð, gæði og staðsetningu.“ Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is Næg eftirspurn er eftir lúxusíbúðum á höfuðborgar- svæðinu. Stærstu íbúðirnar eru um 250 fermetrar og fermetraverðið slagar upp í sex hundruð þúsund krónur. Flottustu íbúðirnar eru nánast einbýli á einni hæð sem er eftirsóttur lúxus, segir fasteignasali. Á Mýrargötu 26 er fermetraverðið á bilinu 400 til 590 þúsund krónur. Ljósmyndir/Hari Lýsisreiturinn í Vesturbæ Reykjavíkur. Þarna mun níu hæða fjölbýlis- hús með 144 íbúðum rísa. Á Hrólfsskálamel verða stærstu íbúðirnar 260 fermetrar. Tvær stærstu íbúðirnar eru fráteknar þó ekki sé byrjað að auglýsa íbúðirnar. Aðeins eru tíu íbúðir óseldar í húsinu að Lindargötu 37 sem er til vinstri á myndinni. Allar íbúðirnar á þremur efstu hæðunum eru seldar. 8 fréttir Helgin 20.-22. september 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.