Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.09.2013, Blaðsíða 64

Fréttatíminn - 20.09.2013, Blaðsíða 64
Það er um að gera að líta á björtu hliðarnar og átta sig á því að það gefur lífinu lit og skemmtileg- heit að það skuli ekki allir vera nákvæm- lega eins. Þ etta byrjaði með gleymsku og ég var spyrjandi sömu spurn- inganna aftur og aftur,“ segir Sigtryggur Sveinn Bragason um það hvernig einkenni Alzheimerssjúkdómsins birtust í fyrstu hjá honum. Nú er Sigtryggur orðinn sjötugur en fór fyrst að finna fyrir einkennunum í kringum 65 ára aldurinn. „Ég hefði að öllu jöfnu hætt að vinna 67 ára en fannst mjög gam- an í vinnunni hjá Íslenska járnblendi- félaginu á Grundartanga og hafði jafnvel vonast til að þess að vinna fram undir sjötugt. En svo upp úr 65 ára var minnisleysið orðið það mikið að ég varð að hætta að vinna. Við því var ekkert að gera.“ Í upphafi hélt Sigtryggur jafnvel að um snemmbær elliglöp væri að ræða en svo leiddu rannsóknir í ljós að ástæðan var Alzheimerssjúkdómur. Eftir greininguna og starfs- lokin langaði Sigtrygg síst af öllu að hlamma sér í sófann og keypti sér því góða gönguskó og göngustafi og gengur um það bil fimmtán hundruð kílómetra á ári. „Ég geng stundum allt að tíu til tuttugu kílómetra í einu. Ég er hávaxinn og tek löng skref og gengur því ágætlega að komast áfram,“ segir hann brosandi. Aðspurður hvort hann villist ekki í gönguferðunum segir hann svo ekki vera því hann gangi alltaf um kunn- ugar slóðir í nágrenni við heimili sitt. „Ég geng alltaf að heiman og oftast um Elliðaárdalinn svo það eru hæg heimatökin að fara í skóna og arka út. Svo tek ég símann auðvitað með, svona til öryggis. Mér finnst virkilega gott að fara út að ganga.” Lætur vita af Alzheimerssjúk- dómnum við fyrstu kynni Þegar Sigtryggur hittir fólk í fyrsta sinn útskýrir hann alltaf fyrir því að hann sé með Alzheimerssjúkdóm og að það þýði að hann muni mjög lítið af því sem honum er sagt. „Ég bið fólk að hafa það í huga að ef ég segi tóma vitleysu að spyr sömu spurn- inganna aftur og aftur þá sé það vegna Alzheimers. Þá heldur fólk síður að ég sé alveg stór skrítinn. Það er miklu betra að gera þetta svona en að vera eitthvað að pukrast með þá staðreynd að maður sé með Alzheimerssjúkdóminn. Það er bara rugl.“ Tilfinning Sigtryggs er sú að fólk hafi sýnt honum mikinn skiln- ing og að hann sjálfur hefði ekki þá þolinmæði sem hans fólk hefur sýnt honum. Sigtryggur lítur tilveruna björtum augum og telur sig heppinn að vera almennt heilsuhraustur. „Miðað við það sem ég hef heyrt af Alzheimers tel ég mig vera ofsalega heppinn. Sjúkdómurinn þróast mis hratt hjá fólki. Það má segja að tilfellin séu jafn mismunandi og þau eru mörg.“ Það er fyrst og fremst skamm- tímaminnið sem veldur Sigtryggi vandræðum í daglegu lífi og reynir hann því að skrifa allt það sem hann þarf að gera niður á minnismiða. „Gallinn er bara sá að stundum gleymi ég að skrifa niður á minn- ismiða. Það gerir Alzheimers.“ Eldri atburði man Sigtryggur að hluta og þá helst í glefsum og ekki endilega í réttu samhengi, auk þess sem hann er farinn að gleyma andlitum fólks sem hann hitti í fortíðinni. „Stundum þegar það er eitthvað sem ég man ekki veit ég ekki hvort það er ein- faldlega venjuleg elligleymska eða Alzheimers sem veldur því að ég man ekki. Það getur verið erfitt að greina á milli.“ Kvikmyndir hentugri en skáld- sögur Á árum áður las Sigtryggur mikið en gafst upp á lestrinum eftir að minnið fór að versna og erfiðara varð að muna samhengi sagnanna. „Ég Alzheimersdagurinn 21. september 2013 Lífið er eins og konfektkassi sigtryggur sveinn bragason greindist með Alzheimers- sjúkdóm fyrir fimm árum í kringum 65 ára aldur. Þá vann hann hjá Íslenska járnblendi- félaginu á Grundartanga en varð að láta af störfum því minnisleysið var farið að há honum í daglegu lífi. sigtryggur lítur tilveruna björtum augum og telur sig þrátt fyrir allt vera heppinn og vera sýnd mikil þolinmæði af fólkinu í kringum sig. Þegar Sigtryggur hittir fólk í fyrsta sinn biður hann það að hafa í huga að hann sé með Alzheimers- sjúkdóminn sem þýði að hann muni lítið af því sem honum er sagt og spyrji kannski sömu spurning- anna oftar en einu sinni. Ljósmynd/Hari. les kannski tíu blaðsíður og svo næsta kvöld ætla ég að lesa tíu í viðbót en man þá ekki hvað ég las kvöldið áður. Ég reyni að lesa smásögur og það gengur betur.“ Kvikmyndir henta Sigtryggi vel og getur hann náð sam- hengi hlutanna þar. „Ég fór nú mikið í bíó hérna áður fyrr en svo lagðist það af. Ég er fréttafíkill og horfi stundum á sjónvarpið ef það er eitthvað áhugavert og jafnvel líka ef það er eitthvað óáhugavert,“ segir hann og hlær. Best að sýna jafnaðargeð Sigtryggur segir það hjálpa sér í daglegu lífi að hafa hlutina í föstum skorðum og fara eftir ákveðinni rútínu hvern dag. Það hjálpi líka mikið að sætta sig við orðinn hlut. „Það þýðir ekkert að væla. Þá bara versna einkenni Alzheimers og þá minnkar það litla sem manni tekst að halda utan um í minn- inu, þrátt fyrir sjúkdóminn.“ Það sé því far- sælast að reyna að sýna jafnaðargeð, sé þess kostur. „Það er um að gera að líta á björtu hliðarnar og átta sig á því að það gefur lífinu lit og skemmtilegheit að það skuli ekki allir vera nákvæmlega eins. Ef allir væru eins og hugsuðu eins, það væri nú aumt.“ Spjallið endar Sigtryggur svo á orðum móður For- rest Gump. „Lífið er eins og konfektkassi, maður veit aldrei hvernig mola maður fær.“ Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@frettatiminn.is MUNUM ÞÁ SEM GLEYMA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.