Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.09.2013, Blaðsíða 63

Fréttatíminn - 20.09.2013, Blaðsíða 63
Helgin 20.-22. september 2013 H eilabilun er samheiti yfir nokkra sjúkdóma sem herja á heilann. Einkenni heilabil- unar eru margvísleg en þau helstu eru minnisleysi, ruglingur og erfið- leikar með tal og að skilja mælt mál. Langalgengasta tegund heilabil- unar er Alzheimerssjúkdómurinn en vissulega eru til aðrar tegundir heilabilunar, svo sem æðaheilabilun og Lewy Body heilabilun ásamt fleiri tegundum (Alzheimer´s So- ciety, 2013a). Því miður er of lítið til af gögnum á Íslandi til þess að gera ítarlegar greiningar á sjúkdómnum þrátt fyrir fyrirheit frá Landlækni í viðtali frá því á síðasta ári (Svava Aradóttir, 2012). Sökum þess þarf að notast við heimildir frá öðrum löndum þar sem mikil vinna hefur verið lögð í að kortleggja sjúkdóm- inn. Á vef Hagstofunnar má finna gögn um mannfjöldaþróun fram til ársins 2061 (Hagstofan, 2013a). Í töflu 1 má sjá hvernig mannfjöldaspá (lág- og hágildi) kemur til með að þróast fram til ársins 2040. Ljóst er af þess- um tölum að Íslendingum kemur til með að fjölga um á bilinu 17-31% frá 2013 til 2040. Tafla 1 Spá um mannfjölda eftir kyni og aldri 2013-2040 Lágspá Háspá 2013 321.857 321.857 2020 340.418 346.279 2030 361.853 385.405 2040 376.580 422.047 Heimild: Hagstofan Mynd 1: Mannfjöldaspá fyrir Ísland 2013 – 2040. Heimild: Hagstofan Heilabilun byrjar að öllu jöfnu ekki að hrjá fólk fyrr en það er komið á efri ár og er byrjað að tala um algengi heilabilunar hjá þeim ein- staklingum sem eldri eru en 65 ára (Í þessari greiningu verður unnið með hópinn 67 – 80 ára og svo 80 ára og eldri). Hægt er að skoða mannfjöldaþróunina eftir aldursbili og liggur því beinast við að skoða þá tvo hópa sem líklegastir eru til þess að verða greindir með heilabilun. Myndin sýnir fjölgunina á einstak- lingum á annarsvegar aldursbilinu 65-80 ára og svo hins vegar þeim sem eru eldri en 80 ára frá árinu 2013 til 2040. Mynd 2: Þróun fólksfjölda í 67-80 ára hóp og hóp eldri en 80 ára. Heimild: Hagstofan Tafla 2 Há og lágspá um fjölda 67-80 ára og 80 ára og eldri einstaklinga á Íslandi. 67 - 80 ára 80 ára + Lágspá Háspá Lágspá Háspá 2013 24.356 24.356 11.646 11.646 2020 32.441 32.463 12.947 12.947 2030 44.704 44.835 18.493 18.519 2040 48.586 48.975 28.332 28.412 Heimild: Hagstofan Samkvæmt þessum tölum má sjá að fjölgun einstaklinga frá 2013-2040 í hópnum 67-80 ára verður á bilinu 99-101% og 143-144% í hópnum 80 ára og eldri. Til samanburðar má nefna að fjölgun einstaklinga frá 2013- 2040 í hópnum 50-67 ára verður á bilinu 23-28%. Því er ljóst að íslenska þjóðin er að eldast og er vert að hafa miklar áhyggjur af því í samhengi við heilabilun því eins og kom fram hér að framan eykst algengi þessa sjúkdóms eftir því sem einstakling- urinn er eldri. Tölur um algengi heilabilunar eru svolítið á reiki en algengt er að miðað sé við að um 7% einstaklinga á aldursbilinu 67-80 ára þjáist af ein- hvers konar heilabilun og 20-25% þeirra einstaklinga sem eldri eru en 80 ára (Alzheimer föreningen Sverige, 2012). Eins og áður hefur komið fram er gagnaöflun og skrán- ingu á fjölda heilabilaðra ábótavant á Íslandi svo notast verður við gögn frá Hagstofunni ásamt tölum um algengi til þess að áætla fjölda ein- staklinga með heilabilun á árunum 2013, 2020, 2030 og 2040. Í töflu 1 og 2 má sjá áætlaðan fjölda heilabil- unarsjúklinga á Íslandi (ákveðið var að gera greininguna með algengi á bilinu 5-9% fyrir aldurshópinn 67-79 ára og á bilinu 20-25% fyrir aldurs- hópinn 80 ára og eldri til þess að fá nokkrar mögulegar niðurstöður). Séu miðtölurnar notaðar (7% og 22,5%) fáum við út að heildarfjöldi heilabilunarsjúklinga er alls 4.325. Ljóst er að þetta er umtalsverður fjöldi á íslenskan mælikvarða, til samanburðar má benda á að fólks- fjöldinn í Vestmannaeyjum var rúm- lega 4.200 manns í febrúar á þessu ári (Hagstofan, 2013b). Tafla 3 Fjöldi 67-80 ára fólks með heilabilun. Lágspá 5% Háspá 5% Lágspá 7% Háspá 7% Lágspá 9% Háspá 9% 2013 1.218 1.218 1.705 1.705 2.192 2.192 2020 1.622 1.623 2.271 2.272 2.920 2.922 2030 2.235 2.242 3.129 3.138 4.023 4.035 2040 2.429 2.449 3.401 3.428 4.373 4.408 Heimild: Hagstofan Tafla 3 sýnir að fjöldi einstaklinga með heilabilun í aldurshópnum 67- 80 ára árið 2013 er áætlaður á milli 1.218 og 2.192 einstaklingar. Árið 2020 verður áætlaður fjöldi á bilinu 1.622 til 2.922, árið 2030 verður fjöld- inn á bilinu 2.235 og 4.035 og loks árið 2040 verður fjöldinn á bilinu 2.429 til 4.408. Mynd 3: Fjöldi 67-80 ára einstaklinga með heilabilun. Heimild: Hagstofan Á Mynd 3 má sjá að einstaklingum í þessum hópi kemur til með að fjölga nokkuð snarpt fram til 2030, en eftir það hægir á fjölguninni. Tafla 4 Fjöldi 80 ára og eldri einstaklinga með heilabilun. Lágspá 20% Háspá 20% Lágspá 22,5% Háspá 22,5% Lágspá 25% Háspá 25% 2013 2.329 2.329 2.620 2.620 2.912 2.912 2020 2.589 2.589 2.913 2.913 3.237 3.237 2030 3.699 3.704 4.161 4.167 4.623 4.630 2040 5.666 5.682 6.375 6.393 7.083 7.103 Heimild: Hagstofan Tafla 4 sýnir að fjöldi 80 ára og eldri ein- staklinga með heilabilun er áætlaður á bilinu 2.329 til 2.912. Árið 2020 verður fjöldinn á milli 2.589 og 3.237. Árið 2030 verður fjöldinn á milli 3.699 og 4.630 og svo loks árið 2040 verður fjöldinn á bilinu 5.666 og 7.103. Mynd 4: Fjöldi fólks með heilabilun 80 ára og eldri. Heimild: Hagstofan Mynd 4 sýnir aftur á móti uggvæn- legri þróun því fjölgun einstaklinga 80 ára og eldri hækkar töluvert frá 2020 til 2030 en síðan verður sprenging í fjölguninni frá 2030 til 2040. Þetta er frekari staðfesting á því að heilabil- uðum á eftir að fjölga mikið á næstu áratugum. Tafla 5 Hlutfall fólks með heilabilun sem hlutfall af fjölda Íslendinga. Heimild: Hagstofan og útreikningar höfundar Heildar- fjöldi ís- lendinga. (Hag- stofan, 2013a) (Mið spá) Heildar- fjöldi heila- bilaðra. Lægsta Heildar- fjöldi heila- bilaðra Hæsta Hlut- fall af heildar- fjöldi Lægsta Hlut- fall af heildar- fjöldi Hæsta 2020 342,716 4,211 6,158 1.2% 1.8% 2030 371,796 5,934 8,665 1.6% 2.3% 2040 395,866 8,096 11,511 2.0% 2.9% Heimild: Hagstofan og útreikningar höfundar Tafla 5 sýnir áætlaðan heildarfjölda fólks með heilabilun sem hlutfall af íslensku þjóðinni. Þessar tölur benda til þess að hlutfall þessa hóps af allri þjóðinni verði á bilinu 1,2-2,9% sem hlýtur að teljast áhyggjuefni sökum þess hve mikla umönnun þeir ein- staklingar sem hafa langt gengna heilabilun þurfa. Dönsku Alzhei- merssamtökin telja að heildarfjöldi einstaklinga 60 ára og eldri með heilabilun verði 155.000 árið 2040 (Alzheimer foreningen, e.d.). Sé þeirri tölu deilt í heildarfjölda Dana árið 2040 (Statistics Denmark, e.d.) fæst út að 2,5% dönsku þjóðarinnar koma til með að þjást af heilabilunar- sjúkdómum. Í Bretlandi er svipaða sögu að segja, en gögn þaðan benda til þess að 2-2,5% bresku þjóðarinnar muni þjást af einhverskonar heila- bilun árið 2041 (Alzheimer´s Society, 2013b; Office for National Statistics, 2011). Þessi samanburður við Dan- mörku og Bretland benda til þess að útreikningar höfundar séu nærri lagi. Tvenns konar kostnaður kemur til með að falla á samfélagið sökum þessarar miklu fjölgunar sem kemur til með að verða á fólki með heila- bilun. Beinn kostnaður sem fellur á heilbrigðiskerfið þegar þessir ein- staklingar þurfa varanlega vistun á hjúkrunarheimili eða dagvistun. Óbeini kostnaðurinn kemur síðan til með að falla á íslenska efnahags- kerfið í heild sinni með þeim hætti að vinnufærir einstaklingar sem grein- ast með heilabilun þurfa annaðhvort að hætta að vinna eða stórlega draga úr vinnuframlagi. Jafnframt kemur óbeinn kostnaður til með að falla þegar barn/börn/makar einstaklinga með heilabilun þurfa annaðhvort að draga úr vinnuframlagi eða yfirgefa vinnumarkaðinn til að annast veikan fjölskyldumeðlim. Annar þáttur sem vert er að minnast á er að einstak- lingar með heilabilun þurfa mikla um- önnun hjá faglærðu fólki. Skortur á þessu faglærða fólki gæti einnig orðið að miklu vandamáli þegar fjölgunar á fólki með heilabilun fer að verða vart. Sú spurning sem brýnt er að svara er hvað gera á við þetta fólk sem kemur til með að greinast með heila- bilun? Lítil sem engin vinna hefur átt sér stað hjá yfirvöldum við að mæta þeim mikla vanda sem þessi fjölgun mun að hafa á íslenskt samfélag, svo siglum við kannski sofandi að feigðarósi? Birgir Óli Sigmundsson Heilsuhagfræðingur og ráðgjafi hjá Curo Consulting Ltd, Englandi Hvað á að gera við þetta fólk sem kemur til með að greinast með heilabilun? Fljótum við sofandi að feigðarósi? Alzheimer foreningen (e.d.). Fakta om demens. Sótt 28.08.2013 frá: <http:// www.alzheimer.dk/viden/fakta-om- demens> Alzheimer föreningen Sverige (28.08.2012). Alzheimers sjukdom. Sótt 28.08.2013 frá: <http://www. alzheimerforeningen.se/alzheimers. php?select=meny2_1> Alzheimeŕ s Society (2013a). Types of dementia. Sótt 28.08.2013 frá: <http:// www.alzheimers.org.uk/site/scripts/ documents.php?categoryID=200362> Alzheimeŕ s Society (2013b). Dementia 2013 infographic. Sótt 26.08.2013 frá: <http://www.alzheimers.org.uk/ infographic> Hagstofan. (22.08.2013a). Spá um mann- fjölda eftir kyni og aldri 2013-2061. Sótt 28.08.2013 frá: http://www.hag- stofa.is/?PageID=2593&src=https:// rannsokn.hagstofa.is/pxis/Dialog/ varval.asp?ma=MAN09010%26ti=- Sp%E1+um+mannfj%F6lda+eftir+k yni+og+aldri+2013%2D2061%26pa th=../Database/mannfjoldi/mann- fjoldaspa2010/%26lang=3%26units=- Fj%F6ldi <http://www.hagstofa. is/?PageID=2593&src=https:// rannsokn.hagstofa.is/pxis/Dialog/ varval.asp?ma=MAN09010%26ti=- Sp%E1+um+mannfj%F6lda+eft- ir+kyni+og+aldri+2013-2061%26- path=../Database/mannfjoldi/ mannfjoldaspa2010/%26lang=3%26- units=Fj%F6ldi> Hagstofan. (12.02.2013b). Mannfjöldi eftir þéttbýlisstöðum, kyni og aldri 2011-2013. Sótt 27.08.2013 frá: http:// www.hagstofa.is/?PageID=2593&- src=https://rannsokn.hagstofa. is/pxis/Dialog/varval.asp?ma=- MAN03105%26ti=Mannfj%F6ldi+eftir +%FE%E9ttb%FDlisst%F6%F0um %2C++kyni+og+aldri+2011%2D2013 %26path=../Database/mannfjoldi/ Byggdakjarnar/%26lang=3%26units=- Fj%F6ldi <http://www.hagstofa. is/?PageID=2593&src=https:// rannsokn.hagstofa.is/pxis/Dialog/ varval.asp?ma=MAN03105%26ti=- Mannfj%F6ldi+eftir+%FE%E9ttb%F Dlisst%F6%F0um%2C++kyni+og+al dri+2011-2013%26path=../Database/ mannfjoldi/Byggdakjarnar/%26- lang=3%26units=Fj%F6ldi> Office for National Statistics. (26.10.2011). National Population Projections, 2010-Based Projections. Sótt 26.08.2013 frá: <http://www. ons.gov.uk/ons/publications/ re-reference-tables.html?edition=- tcm%3A77-229866> Svava Aradóttir. (2012). Þetta brennur á Geir Gunnlaugssyni, landlækni. FAAS fréttir. 2. tbl. 10. árg. Bls. 24-25. Statistics Denmark. (e.d.). Population projections. Sótt 28.08.2013 frá: <http://www.dst.dk/en/Statistik/ emner/befolkning-og-befolknings- fremskrivning/befolkningsfremsk- rivning.aspx> Heimildir Birgir Óli Sigmundsson. 7mUNUm ÞÁ Sem GleYmA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.