Fréttatíminn - 20.09.2013, Blaðsíða 54
L eikarinn Hannes Óli Ágústsson hefur túlkað Sig-mund Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra í áramóta skaupum síðustu ára. Hingað til hefur hann varpað upp spéspegli af Sigmundi Davíð sem
óbreyttum þingmanni en slátturinn á Sigmundi Davíð hefur
verið slíkur í kosningabaráttunni og eftir að hann varð for-
sætisráðherra að ætla má að Hannes Óli verði, rétt eins og
ráðherrann, frekur til fjörsins í næsta áramótaskaupi.
„Ég vona það allavegana,“ segir Hannes Óli þegar hann
er spurður hvort hann sjái fram á drjúga aukavinnu í kring-
um skaupið undir lok ársins. „Það er nú ekki búið að hafa
samband við mig ennþá en mér finnast allavegana mörg
sóknarfæri og maður ætti kannski að setja sig í samband
við eitthvað af þessu liði og minna á sig,“ segir leikarinn í
léttum dúr.
Hann er þó alveg rólegur yfir vangaveltum af þessu tagi
og segist ekki vera byrjaður að víxla skóm. „Ekki ennþá en
maður þyrfti náttúrlega að fara að æfa sig fljótlega til þess
að koma sér almennilega í karakter. “
En er ekki erfitt að grínast með menn sem eru jafn
fyndnir að eðlisfari og Sigmundur Davíð hefur sýnt með
til dæmis hugmyndum um íslenska kúrinn, stjórnlítilli fíkn
í ís og Mountain Dew, innliti á karókíbar, hrósi um Dana
fyrir að tala góða dönsku og netta Kennedy-takta í opnum
bíl innan um Vestur-Íslendinga í Kanada, að ógleymdum
Nike-skónum góða?
„Það þarf í það minnsta varla að skrifa þetta
fyrir hann,“ segir Hannes, hlær og segir ljóst að
forsætisráðherrann sé dálítið grínaktugur að
eðlisfari. „Ég held þetta snúist fyrst og fremst
um mismunandi tegundir af húmor. Ég meina,
hann tekur sjálfan sig sæmilega alvarlega upp
að vissu marki en svo er spurning hvar markið
er og hvort ekki sé hægt að leika sér eitt-
hvað hinum megin við það mark.“
Hannes Óli hefur í nógu að snúast
og þeytist milli Akureyrar, þar sem
hann býr, og Reykjavíkur í spennandi
verkefnum og þarf svosem ekkert að
treysta á Sigmund Davíð til þess að eiga
til hnífs og skeiðar.
„Út september er ég er að
sýna barnasýningu sem heitir
Hættuför í Huliðsdal um helgar
í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu. Sýn-
ingin er búin að fá mjög fínar við-
tökur, góða dóma og svona. Svo
er ég á fullu að æfa hérna hjá
Leikfélagi Akureyrar sýningu
sem heitir Sek. Þetta er nýtt ís-
lenskt leikrit eftir Hrafnhildi
Hagalín. Mjög spennandi
uppfærsla og að ég held eins
ólíkt barnaleikriti og hægt er
en það er rosalega gaman að
leika sér þarna á milli.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Maður þyrfti
náttúrlega að
fara að æfa
sig fljótlega til
þess að koma
sér almenni-
lega í karakter.
Hannes ÓLi Margir grínfLetir á forsætisráðHerra
Sóknarfæri á ósam-
stæðum skóm
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra virðist hafa einstakt lag á að sýna sig í kóm-
ísku ljósi. Síðasta útspil hans í þessum efnum, þegar hann mætti á fund Baracks Obama í ósam-
stæðum skóm, vakti raunar heimsathygli. Ætla má að ráðherrann verði því frekur til fjörsins í
áramótaskaupinu. Leikarinn Hannes Óli Ágústsson hefur sérhæft sig í túlkun á ráðherranum og
sér mikil sóknarfæri í stóra strigaskómálinu.
Sigmundur
Davíð Gunn-
laugsson þykir
grínaktugur
að eðlisfari og
hefur hvergi
slegið af í
skemmtilegum
uppákomum
frá því hann
tók við
embætti
forsætis-
ráðherra.
Leikarinn Hannes
Óli Ágústsson hefur
túlkað Sigmund Davíð
með snilldartilþrifum
í áramótaskaupum
og sér mörg
grín sóknarfæri
í framkomu for-
sætisráðherr-
ans á þessu
ári.
eva Lind skartar verðLaunaHúðfLúri
Með merkingu lífsins á eigin skinni
Kvikmyndaklipparinn Eva Lind Höskuldsdóttir fór alla leið
þegar hún ákvað að fá sér húðflúr og ber nú listaverk með
persónum og lífspeki úr Disney-myndinni Lísu í Undraland.
Flúrið er litríkt og líflegt og skilaði Evu Lind og flúraranum
Gunnari Valdimarssyni á Íslenzku Húðflúrstofunni fyrstu
verðlaunum fyrir bestu litunina á húðflúrshátíðinni sem
haldin var í Reykjavík um síðusu helgi.
„Mér hafa alltaf fundist tattú falleg en átti samt ekki von á
því að ég myndi þora að fá mér slíkt,“ segir Eva Lind. Eftir að
hafa haft fögur húðflúr samstarfskonu sinnar fyrir augunum
lengi áttaði hún sig á að þetta væri eitthvað sem hana langaði
til að gera.
Eva Lind heillaðist ung af ævintýrinu um Lísu og hvernig
veruleikanum er snúið þar á hvolf.
„Tattúið samanstendur af nokkrum ólíkum og skemmtileg-
um persónum úr Lísu í Undralandi. Það má segja að ég túlki
myndina gjörsamlega á minn hátt og persónurnar standa all-
ar fyrir eitthvað í mínum huga. Lirfan spurði tildæmis: „Hver
ert þú?“ Þetta fannst mér stór spurning sem ég var mörg ár
að svara,“ segir Eva Lind.
„Kanínan er alltaf sein, stoppar ekki og heldur alltaf áfram
að hlaupa. Sem minnir mig á hvernig lífið er stundum og að
það megi stundum hægja á hraðanum. Kötturinn minnir á
að það eru margar leiðir sem þú getur farið í lífinu en það er
engin ein endilega rétt. Þannig að nú geng með þá merkingu
og skilning sem ég legg í lífið í listaverki á eigin skinni.“
Eva Lind vinnur þessa dagana við gerð framhaldsmyndar-
innar Borgríki 2 og vindur sér síðan í sjónvarpsþættina Hið
blómlega bú. Ólík en spennandi og metnaðarfull verkefni
sem hún segir virkilega spennandi að taka þátt í. -þþ
Ermi Evu Lindar er býsna
tilkomumikil og Gunnar
flúrari hafði í fyrstu tak-
markaða trú á því að hún
væri tilbúin í þetta en
eftir fyrsta tímann, sem
tók sjö klukkustundir,
sannfærðist hann um að
henni væri alvara.
Reynir Lyngdal er kominn á fulla ferð í tökum á Hrauninu, sjálfstæðu framhaldi
sakamálaþáttanna Hamarinn sem RÚV sýndi fyrir nokkrum árum.
reynir LyngdaL gerir fraMHaLd HaMarsins
Morðgáta á Snæfellsnesi
„Við erum búin með fjóra tökudaga
hérna á Snæfellsnesi og þetta er
búið að vera mjög skemmtilegt og
mikill hugur í mannskapnum,“ seg-
ir kvikmyndaleikstjórinn Reynir
Lyngdal sem er kominn á fleygiferð
í gerð sakamálaþáttanna Hraunið.
„Við erum búin að ná ótrúlega
flottum útitökum, enda er Snæfells-
nesið alveg einstakt í fegurð sinni.“
Þættirnir eru gerðir fyrir Ríkis-
sjónvarpið og eru sjálfstætt fram-
hald Hamarsins, þátta sem sýndir
voru í sjónvarpinu 2009. Í Hamr-
inum lék Björn Hlynir Haraldsson
lögreglumanninn Helga sem var
sendur í lítið sveitaþorp til þess að
aðstoða lögregluna þar við rann-
sókn dularfulls slyss.
Í Hrauninu er Helgi sendur á
Snæfellsnes eftir að maður finnst
þar látinn í sumarbústað. „Nú er
Helgi náttúrlega kominn í aðra sveit
þannig að segja má að hér sé um
smá stefnubreytingu að ræða,“ seg-
ir Reynir og bætir við að persónu-
galleríið hafi endurnýjast að mestu.
„Björn Hlynur er auðvitað enn í
sínu hlutverki og María Ellingsen,
sem lék réttarmeinafræðinginn í
Hamrinum, snýr einnig aftur.“
Ráðgert er að sýna Hraunið í
Sjónvarpinu yfir páskana á næsta
ári.
54 dægurmál Helgin 20.-22. september 2013