Fréttatíminn - 20.09.2013, Page 63
Helgin 20.-22. september 2013
H eilabilun er samheiti yfir nokkra sjúkdóma sem herja á heilann. Einkenni heilabil-
unar eru margvísleg en þau helstu
eru minnisleysi, ruglingur og erfið-
leikar með tal og að skilja mælt mál.
Langalgengasta tegund heilabil-
unar er Alzheimerssjúkdómurinn
en vissulega eru til aðrar tegundir
heilabilunar, svo sem æðaheilabilun
og Lewy Body heilabilun ásamt
fleiri tegundum (Alzheimer´s So-
ciety, 2013a). Því miður er of lítið til
af gögnum á Íslandi til þess að gera
ítarlegar greiningar á sjúkdómnum
þrátt fyrir fyrirheit frá Landlækni
í viðtali frá því á síðasta ári (Svava
Aradóttir, 2012). Sökum þess þarf
að notast við heimildir frá öðrum
löndum þar sem mikil vinna hefur
verið lögð í að kortleggja sjúkdóm-
inn.
Á vef Hagstofunnar má finna gögn
um mannfjöldaþróun fram til ársins
2061 (Hagstofan, 2013a). Í töflu 1
má sjá hvernig mannfjöldaspá (lág-
og hágildi) kemur til með að þróast
fram til ársins 2040. Ljóst er af þess-
um tölum að Íslendingum kemur til
með að fjölga um á bilinu 17-31% frá
2013 til 2040.
Tafla 1
Spá um mannfjölda eftir kyni og aldri 2013-2040
Lágspá Háspá
2013 321.857 321.857
2020 340.418 346.279
2030 361.853 385.405
2040 376.580 422.047
Heimild: Hagstofan
Mynd 1: Mannfjöldaspá fyrir Ísland 2013 – 2040.
Heimild: Hagstofan
Heilabilun byrjar að öllu jöfnu ekki
að hrjá fólk fyrr en það er komið
á efri ár og er byrjað að tala um
algengi heilabilunar hjá þeim ein-
staklingum sem eldri eru en 65 ára
(Í þessari greiningu verður unnið
með hópinn 67 – 80 ára og svo 80
ára og eldri). Hægt er að skoða
mannfjöldaþróunina eftir aldursbili
og liggur því beinast við að skoða þá
tvo hópa sem líklegastir eru til þess
að verða greindir með heilabilun.
Myndin sýnir fjölgunina á einstak-
lingum á annarsvegar aldursbilinu
65-80 ára og svo hins vegar þeim
sem eru eldri en 80 ára frá árinu
2013 til 2040.
Mynd 2: Þróun fólksfjölda í 67-80 ára hóp og hóp eldri
en 80 ára. Heimild: Hagstofan
Tafla 2
Há og lágspá um fjölda 67-80 ára og 80 ára og
eldri einstaklinga á Íslandi.
67 - 80 ára 80 ára +
Lágspá Háspá Lágspá Háspá
2013 24.356 24.356 11.646 11.646
2020 32.441 32.463 12.947 12.947
2030 44.704 44.835 18.493 18.519
2040 48.586 48.975 28.332 28.412
Heimild: Hagstofan
Samkvæmt þessum tölum má sjá að
fjölgun einstaklinga frá 2013-2040
í hópnum 67-80 ára verður á bilinu
99-101% og 143-144% í hópnum 80 ára
og eldri. Til samanburðar má nefna
að fjölgun einstaklinga frá 2013-
2040 í hópnum 50-67 ára verður á
bilinu 23-28%. Því er ljóst að íslenska
þjóðin er að eldast og er vert að hafa
miklar áhyggjur af því í samhengi
við heilabilun því eins og kom fram
hér að framan eykst algengi þessa
sjúkdóms eftir því sem einstakling-
urinn er eldri.
Tölur um algengi heilabilunar
eru svolítið á reiki en algengt er að
miðað sé við að um 7% einstaklinga
á aldursbilinu 67-80 ára þjáist af ein-
hvers konar heilabilun og 20-25%
þeirra einstaklinga sem eldri eru
en 80 ára (Alzheimer föreningen
Sverige, 2012). Eins og áður hefur
komið fram er gagnaöflun og skrán-
ingu á fjölda heilabilaðra ábótavant
á Íslandi svo notast verður við gögn
frá Hagstofunni ásamt tölum um
algengi til þess að áætla fjölda ein-
staklinga með heilabilun á árunum
2013, 2020, 2030 og 2040. Í töflu 1
og 2 má sjá áætlaðan fjölda heilabil-
unarsjúklinga á Íslandi (ákveðið var
að gera greininguna með algengi á
bilinu 5-9% fyrir aldurshópinn 67-79
ára og á bilinu 20-25% fyrir aldurs-
hópinn 80 ára og eldri til þess að fá
nokkrar mögulegar niðurstöður).
Séu miðtölurnar notaðar (7% og
22,5%) fáum við út að heildarfjöldi
heilabilunarsjúklinga er alls 4.325.
Ljóst er að þetta er umtalsverður
fjöldi á íslenskan mælikvarða, til
samanburðar má benda á að fólks-
fjöldinn í Vestmannaeyjum var rúm-
lega 4.200 manns í febrúar á þessu
ári (Hagstofan, 2013b).
Tafla 3
Fjöldi 67-80 ára fólks með heilabilun.
Lágspá
5%
Háspá
5%
Lágspá
7%
Háspá
7%
Lágspá
9%
Háspá
9%
2013 1.218 1.218 1.705 1.705 2.192 2.192
2020 1.622 1.623 2.271 2.272 2.920 2.922
2030 2.235 2.242 3.129 3.138 4.023 4.035
2040 2.429 2.449 3.401 3.428 4.373 4.408
Heimild: Hagstofan
Tafla 3 sýnir að fjöldi einstaklinga
með heilabilun í aldurshópnum 67-
80 ára árið 2013 er áætlaður á milli
1.218 og 2.192 einstaklingar. Árið
2020 verður áætlaður fjöldi á bilinu
1.622 til 2.922, árið 2030 verður fjöld-
inn á bilinu 2.235 og 4.035 og loks
árið 2040 verður fjöldinn á bilinu
2.429 til 4.408.
Mynd 3: Fjöldi 67-80 ára einstaklinga með heilabilun.
Heimild: Hagstofan
Á Mynd 3 má sjá að einstaklingum í
þessum hópi kemur til með að fjölga
nokkuð snarpt fram til 2030, en eftir
það hægir á fjölguninni.
Tafla 4
Fjöldi 80 ára og eldri einstaklinga með heilabilun.
Lágspá
20%
Háspá
20%
Lágspá
22,5%
Háspá
22,5%
Lágspá
25%
Háspá
25%
2013 2.329 2.329 2.620 2.620 2.912 2.912
2020 2.589 2.589 2.913 2.913 3.237 3.237
2030 3.699 3.704 4.161 4.167 4.623 4.630
2040 5.666 5.682 6.375 6.393 7.083 7.103
Heimild: Hagstofan
Tafla 4 sýnir að fjöldi 80 ára og eldri ein-
staklinga með heilabilun er áætlaður á
bilinu 2.329 til 2.912. Árið 2020 verður
fjöldinn á milli 2.589 og 3.237. Árið 2030
verður fjöldinn á milli 3.699 og 4.630
og svo loks árið 2040 verður fjöldinn á
bilinu 5.666 og 7.103.
Mynd 4: Fjöldi fólks með heilabilun 80 ára og eldri.
Heimild: Hagstofan
Mynd 4 sýnir aftur á móti uggvæn-
legri þróun því fjölgun einstaklinga 80
ára og eldri hækkar töluvert frá 2020
til 2030 en síðan verður sprenging í
fjölguninni frá 2030 til 2040. Þetta er
frekari staðfesting á því að heilabil-
uðum á eftir að fjölga mikið á næstu
áratugum.
Tafla 5
Hlutfall fólks með heilabilun sem hlutfall af fjölda
Íslendinga. Heimild: Hagstofan og útreikningar
höfundar
Heildar-
fjöldi ís-
lendinga.
(Hag-
stofan,
2013a)
(Mið spá)
Heildar-
fjöldi
heila-
bilaðra.
Lægsta
Heildar-
fjöldi
heila-
bilaðra
Hæsta
Hlut-
fall af
heildar-
fjöldi
Lægsta
Hlut-
fall af
heildar-
fjöldi
Hæsta
2020 342,716 4,211 6,158 1.2% 1.8%
2030 371,796 5,934 8,665 1.6% 2.3%
2040 395,866 8,096 11,511 2.0% 2.9%
Heimild: Hagstofan og útreikningar höfundar
Tafla 5 sýnir áætlaðan heildarfjölda
fólks með heilabilun sem hlutfall af
íslensku þjóðinni. Þessar tölur benda
til þess að hlutfall þessa hóps af allri
þjóðinni verði á bilinu 1,2-2,9% sem
hlýtur að teljast áhyggjuefni sökum
þess hve mikla umönnun þeir ein-
staklingar sem hafa langt gengna
heilabilun þurfa. Dönsku Alzhei-
merssamtökin telja að heildarfjöldi
einstaklinga 60 ára og eldri með
heilabilun verði 155.000 árið 2040
(Alzheimer foreningen, e.d.). Sé
þeirri tölu deilt í heildarfjölda Dana
árið 2040 (Statistics Denmark, e.d.)
fæst út að 2,5% dönsku þjóðarinnar
koma til með að þjást af heilabilunar-
sjúkdómum. Í Bretlandi er svipaða
sögu að segja, en gögn þaðan benda
til þess að 2-2,5% bresku þjóðarinnar
muni þjást af einhverskonar heila-
bilun árið 2041 (Alzheimer´s Society,
2013b; Office for National Statistics,
2011). Þessi samanburður við Dan-
mörku og Bretland benda til þess að
útreikningar höfundar séu nærri lagi.
Tvenns konar kostnaður kemur
til með að falla á samfélagið sökum
þessarar miklu fjölgunar sem kemur
til með að verða á fólki með heila-
bilun. Beinn kostnaður sem fellur á
heilbrigðiskerfið þegar þessir ein-
staklingar þurfa varanlega vistun
á hjúkrunarheimili eða dagvistun.
Óbeini kostnaðurinn kemur síðan
til með að falla á íslenska efnahags-
kerfið í heild sinni með þeim hætti að
vinnufærir einstaklingar sem grein-
ast með heilabilun þurfa annaðhvort
að hætta að vinna eða stórlega draga
úr vinnuframlagi. Jafnframt kemur
óbeinn kostnaður til með að falla
þegar barn/börn/makar einstaklinga
með heilabilun þurfa annaðhvort að
draga úr vinnuframlagi eða yfirgefa
vinnumarkaðinn til að annast veikan
fjölskyldumeðlim. Annar þáttur sem
vert er að minnast á er að einstak-
lingar með heilabilun þurfa mikla um-
önnun hjá faglærðu fólki. Skortur á
þessu faglærða fólki gæti einnig orðið
að miklu vandamáli þegar fjölgunar á
fólki með heilabilun fer að verða vart.
Sú spurning sem brýnt er að svara
er hvað gera á við þetta fólk sem
kemur til með að greinast með heila-
bilun? Lítil sem engin vinna hefur átt
sér stað hjá yfirvöldum við að mæta
þeim mikla vanda sem þessi fjölgun
mun að hafa á íslenskt samfélag,
svo siglum við kannski sofandi að
feigðarósi?
Birgir Óli Sigmundsson
Heilsuhagfræðingur og ráðgjafi hjá Curo Consulting Ltd,
Englandi
Hvað á að gera við þetta fólk sem kemur til með að greinast með heilabilun?
Fljótum við sofandi að feigðarósi?
Alzheimer foreningen (e.d.). Fakta om
demens. Sótt 28.08.2013 frá: <http://
www.alzheimer.dk/viden/fakta-om-
demens>
Alzheimer föreningen Sverige
(28.08.2012). Alzheimers sjukdom.
Sótt 28.08.2013 frá: <http://www.
alzheimerforeningen.se/alzheimers.
php?select=meny2_1>
Alzheimeŕ s Society (2013a). Types of
dementia. Sótt 28.08.2013 frá: <http://
www.alzheimers.org.uk/site/scripts/
documents.php?categoryID=200362>
Alzheimeŕ s Society (2013b). Dementia
2013 infographic. Sótt 26.08.2013
frá: <http://www.alzheimers.org.uk/
infographic>
Hagstofan. (22.08.2013a). Spá um mann-
fjölda eftir kyni og aldri 2013-2061.
Sótt 28.08.2013 frá: http://www.hag-
stofa.is/?PageID=2593&src=https://
rannsokn.hagstofa.is/pxis/Dialog/
varval.asp?ma=MAN09010%26ti=-
Sp%E1+um+mannfj%F6lda+eftir+k
yni+og+aldri+2013%2D2061%26pa
th=../Database/mannfjoldi/mann-
fjoldaspa2010/%26lang=3%26units=-
Fj%F6ldi <http://www.hagstofa.
is/?PageID=2593&src=https://
rannsokn.hagstofa.is/pxis/Dialog/
varval.asp?ma=MAN09010%26ti=-
Sp%E1+um+mannfj%F6lda+eft-
ir+kyni+og+aldri+2013-2061%26-
path=../Database/mannfjoldi/
mannfjoldaspa2010/%26lang=3%26-
units=Fj%F6ldi>
Hagstofan. (12.02.2013b). Mannfjöldi
eftir þéttbýlisstöðum, kyni og aldri
2011-2013. Sótt 27.08.2013 frá: http://
www.hagstofa.is/?PageID=2593&-
src=https://rannsokn.hagstofa.
is/pxis/Dialog/varval.asp?ma=-
MAN03105%26ti=Mannfj%F6ldi+eftir
+%FE%E9ttb%FDlisst%F6%F0um
%2C++kyni+og+aldri+2011%2D2013
%26path=../Database/mannfjoldi/
Byggdakjarnar/%26lang=3%26units=-
Fj%F6ldi <http://www.hagstofa.
is/?PageID=2593&src=https://
rannsokn.hagstofa.is/pxis/Dialog/
varval.asp?ma=MAN03105%26ti=-
Mannfj%F6ldi+eftir+%FE%E9ttb%F
Dlisst%F6%F0um%2C++kyni+og+al
dri+2011-2013%26path=../Database/
mannfjoldi/Byggdakjarnar/%26-
lang=3%26units=Fj%F6ldi>
Office for National Statistics. (26.10.2011).
National Population Projections,
2010-Based Projections. Sótt
26.08.2013 frá: <http://www.
ons.gov.uk/ons/publications/
re-reference-tables.html?edition=-
tcm%3A77-229866>
Svava Aradóttir. (2012). Þetta brennur á
Geir Gunnlaugssyni, landlækni. FAAS
fréttir. 2. tbl. 10. árg. Bls. 24-25.
Statistics Denmark. (e.d.). Population
projections. Sótt 28.08.2013 frá:
<http://www.dst.dk/en/Statistik/
emner/befolkning-og-befolknings-
fremskrivning/befolkningsfremsk-
rivning.aspx>
Heimildir
Birgir Óli Sigmundsson.
7mUNUm ÞÁ Sem GleYmA