Fréttatíminn - 03.05.2013, Blaðsíða 18
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg
Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@
frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
S
Skuldamál heimilanna voru helsta mál nýlið-
innar kosningabaráttu. Þrátt fyrir tilraunir
hefur ekki tekist að ná ásættanlegri niður-
stöðu fyrir þá sem verst fóru út úr lántökum
á árunum fyrir hrun, lánum sem urðu fyrir
„stökkbreytingu“, eins og það hefur verið
kallað. Það bíður nýrra stjórnvalda að taka á
þeim fortíðarvanda.
Alla varðar hvernig tekið verður á láns-
kjörum þegar til framtíðar
er litið. Verðtrygging, það er
að segja vísitölubinding fjár-
skuldbindinga, hefur í meg-
inatriðum verið við lýði frá
árinu 1979. Fyrir þann tíma
voru lánamál í ólestri. Fólk sá
ekki ástæðu til að leggja fé sitt
í banka, þar sem það rýrnaði,
heldur eyddi því hratt. Af því
leiddi að lánsfé var torfengið
enda breyttist það að hluta í
gjafafé á lánstímanum vegna
neikvæðra vaxta.
Þetta er nauðsynlegt að rifja upp nú þegar
boðað er að draga eigi úr vægi verðtrygg-
ingar eða afnema hana til framtíðar. Lán-
takendur, langþreyttir á vísitöluhækkunum
lána, hafa í auknum mæli leitað í óverð-
tryggð lán undanfarin misseri. Greiðslu-
byrði þeirra getur þó orðið þung. Varhuga-
vert er, miðað við þær aðstæður sem við
þekkjum – og söguna – að lántakendur hafi
ekki val, eigi einnig kost á verðtryggðum
lánum með jafnari greiðslubyrði.
Aðkallandi er hins vegar að breyta
þeirri vísitölu sem notuð er til verðtrygg-
ingar lánanna. Á þetta benti Guðlaugur
Guðmundsson, löggiltur endurskoðandi, í
grein í Fréttatímanum nýverið. Fram kom
hjá honum að í tímans rás hafa allnokkrar
vísitölur verið notaðar til verðtryggingar á
fjárkröfum. Helstar hafa verið byggingar-
vísitala, lánskjaravísitala, samsett úr bygg-
ingarvísitölu og neysluvísitölu, og nú síðast
neysluvísitalan ein og sér. „Þessar vísitölur
hafa allar þann annmarka, að inn í þeim eru
alls konar óbeinir skattar og opinber gjöld af
öllu tagi,“ sagði endurskoðandinn og nefndi
sem dæmi virðisaukaskatt, fasteignagjöld,
áfengisgjald, tóbaksgjald, gúmmígjald
af hjólbörðum, sykurskatt, vörugjöld af
bifreiðum, önnur vörugjöld hins opinbera,
innflutningstolla af vörum, hvers konar
aðra tolla, óbeina skatta og gjöld til hins
opinbera, auk breytinga á markaðsverði
húsnæðis.
„Þessir skattar og gjöld,“ sagði endur-
skoðandinn, „eiga ekkert erindi inn í vísi-
tölu til verðtryggingar á fjárskuldbinding-
um. Það á ekki að skipta neinu máli í slíkri
vísitölu hvort hið opinbera kýs að afla skatt-
tekna með beinum sköttum eða óbeinum.
Beinir skattar (tekjuskattur/útsvar) hafa
aldrei verið inni í vísitölum af neinu tagi,
en óbeinir skattar hafa hins vegar verið þar
alla tíð, vegna þess að þeir hafa áhrif á það
heildarverð sem við greiðum fyrir hina toll-
uðu vöru eða þjónustu. Þeir hafa hins vegar
engin áhrif á hið raunverulega vöruverð.
Þetta getur alveg átt rétt á sér við útreikn-
ing á vísitölum til almennra verðmælinga á
afmörkuðum þáttum neysluþjóðfélagsins.
En þetta á ekkert erindi inn í vísitölu til
verðtryggingar á fjárskuldbindingum, og er
beinlínis rangt.
Fjármögnun hins opinbera á samneysl-
unni með beinum og óbeinum sköttum,
má ekki hafa áhrif á verðtryggingu fjár-
skuldbindinga. Það er ósanngjarnt gagn-
vart skuldurum á hverjum tíma, og eykur
ójöfnuð í samfélaginu.“
Síðar í grein sinni segir Guðlaugur:
„Aukin skattheimta hins opinbera leiðir til
aukinnar samneyslu, og á að koma fram í
aukinni þjónustu við almenning. Yfirleitt
dregst einkaneysla saman við aukna skatt-
heimtu, saman ber það sem við höfum upp-
lifað frá hruni bankanna 2008. Efnahags-
lífið dróst þá saman í heildina, ríkið greip
til aukinnar skattheimtu til að verjast fjár-
lagahalla, og einkaneyslan dróst enn meira
saman vegna skattheimtunnar, sem svo
hækkaði verðtryggðu lánin. Slíkar tilfærslur
fjármuna í efnahagslífinu eiga ekkert erindi
inn í vísitölu, sem notuð er til að verðtryggja
fjárskuldbindingar. Stór hluti hækkunar
verðtryggðra lána eftir hrun leiddi einmitt
af hækkun óbeinna skatta á tímabilinu.
Niðurstaðan er því sú, að við þurfum að
búa til nýja vísitölu til þessara nota, án allra
áhrifa frá fjármögnun opinberra aðila á sam-
neyslunni. Hvernig grunnur þeirrar vísitölu
á að vera er verkefni, sem þarf að leysa á
vettvangi hins opinbera í samvinnu við neyt-
endur og fjármálalífið.“
Ábendingar sem þessar hljóta að rata inn
á borð þeirra sem ætla sér það verkefni að
koma skikki á lánamál heimilanna.
Fjármögnun hins opinbera á ekki hafa áhrif á verðtryggingu fjárskuldbindinga
Rangir vísitöluútreikningar
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
En nú er grasið grænna
Ég er bara að flýja úr landi. Mig grunaði
hvernig kosningarnar myndu fara
þannig að ég hef bara hraðann á.
Sigurður Guðmundsson, úr Hjálmum og
Memfismafíunni, ætlar að flytja úr landi
og dvelja erlendis í tvö ár hið minnsta.
Mátturinn er með honum!
Ársreikningur Reykjavíkurborgar
ber styrkri fjármálastjórn
sterkt vitni. Hann sýnir að
aðgerðaáætlun eigenda
og stjórnenda Orkuveitu
Reykjavíkur hefur gengið
eftir framar vonum.
Jón Gnarr borgarstjóri er
ánægður með fjárhagsstöðu
borgarinnar.
Landslagskrot
Þetta er fyrst og fremst furðulegt, sá
sem hefur gert þetta hefur þurft að
fara fjórar til fimm ferðir upp brekkuna
til þess að geta gert hvern staf.
Hreiðar Hreiðarsson, varðstjóri hjá
lögreglunni á Húsavík, undrast elju um-
hverfissóða sem krotuðu með málningu á
friðað svæði í Grjótagjá í Mývatnssveit.
Maður kemur í manns stað
Ég þarf að passa mig svo ég
verði ekki nýr Björn Valur
stjórnmálanna.
Brynjar Níelsson lögmaður,
nýkjörinn þingmaður og
annálaður strigakjaftur, ætlar
að reyna að hafa hemil á sér.
Hvað er langt til tunglsins?
Hversu heimskir geta Íslendingar verið?
Barry Sheerman, þingmaður
breska Verkamannaflokksins
í Bretlandi, sá enga glóru í
kosningaúrslitunum á
Íslandi.
Bingólottó
Þjóðin kaus lottó og hún
mun fokkíng tapa.
Rapphundurinn Erpur Eyvindarson var á
svipuðum nótum og breski þingmaðurinn
þegar hann tjáði sig um nýjustu tölur á
kosningavöku VG.
Svona, svona...
Ég er mjög döpur og sorgmædd.
Jóhanna Sigurðardóttir, fráfarandi for-
sætisráðherra, er með böggum hildar eftir
kosningahamfarir Samfylkingunnar.
Peningar annars fólks
Svo megum við sjálfsagt
búast við að stjórnmála-
baráttan í framtíðinni
muni einkennast af
loforðum um „bein-
greiðslur“ úr ríkissjóði
til kjósenda eftir
kosningar!
Hæstaréttardómarinn
fyrrverandi Jón Steinar
Gunnlaugsson er lítt hrifinn af kosn-
ingaloforðum um skuldaniðurfellingar.
Vikan Sem Var
Niðurstaðan er því sú, að við þurfum að búa til nýja vísitölu
til þessara nota, án allra áhrifa frá fjármögnun opinberra
aðila á samneyslunni.
Kauptu miða á www.das.is
eða í síma 561 7757.
Miðaverð 1.300 kr. á mán. fyrir einfaldan miða.
SEX VW BJALLA!
Sex sinnum á happdrættisárinu verður dregin út
Volkswagen Bjalla, sportlegur lúxusbíll, 5 milljóna virði.
eða 10 milljónir í peningum.
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A.
IS
D
AS
6
32
18
0
4/
13
Nýtt happdrættisár framundan
5 MILLJÓNIR KRÓNA Í SKOTTINU
á tvöfaldan miða
MILLJÓNAVINNINGAR
7×6 milljónir og 39×4 milljónir
Fjórtán 3 milljóna króna og sjötíu og átta
2 milljóna króna vinningar á einfaldan miða.
Alls er dregið um 50 þúsund vinninga á árinu.
18 viðhorf Helgin 3.-5. maí 2013