Fréttatíminn - 03.05.2013, Síða 24
V
ið Óttarr mælum okkur
mót á í skrifstofuhús-
næði í Tjarnargötu
og fáum okkur sæti á
kaffistofu borgarfull-
trúa þar sem stórt kort af Reykjavík
hangir á vegg. Óttarr upplýsir að þetta
sé glæný aðstaða, í húsinu hafi áður
verið einkaskrifstofur borgarfulltrúa
Samfylkingarinnar og Besta flokksins
á tveimur hæðum en nú sé búið að
breyta; skrifstofurnar eru í opnu rými
á hálfri hæð og kaffistofan hinu megin.
Önnur hæðin er nú laus til annarra
nota. Borgarfulltrúar minnihlutaflokk-
anna eiga sömu breytingar í vændum en
fengu aðeins lengri aðlögunartíma áður
en breytingin verður gerð þeirra megin.
Óttarr segir að langflestir séu sáttir við
breytingarnar og líka aðra breytingu
sem meirihlutinn er að gera og felst í
því að hætta að prenta út á pappír öll
þau gögn sem fjallað er um á fundum.
Framvegis verður aðgangurinn að þeim
bara rafrænn og starfsmenn borgarinn-
ar losna við að keyra út pappírsbunka
heim til borgarfulltrúa kvöldið fyrir
borgarstjórnarfund.
Óttarr kann greinilega vel við sig í
borgarfulltrúastarfinu en nú er þeim
kafla að ljúka og hann ætlar að helga
Alþingi alla sína krafta. Hann segir það
ekki alveg hreint út en samt er greini-
legt að hann er búinn að ákveða að
hætta í borgarstjórn þegar hann sest á
Alþingi:
„Við frystum þá pælingu í kosninga-
baráttunni og eigum ennþá eftir að
finna út úr því en ég held að það sé ekki
hægt að sinna af fullum krafti báðum
störfum. Það að vera borgarfulltrúi
í stóru nefndunum er meira en fullt
starf fyrir hvern sem er þannig að ég
geri frekar ráð fyrir að draga mig í hlé
í borginni fyrst svona er komið. Mér
finnst óþægilegt að gera hlutina illa – ég
nenni ekki að gera hlutina með hálfum
huga og vil frekar einbeita mér að því að
gera hlutina vel – og ég sé ekki að það
sé hægt með góðu móti að sinna tveim-
ur störfum sem maður þarf að sinna af
fullum huga.“
Þegar ég bendi á að það séu mörg
fordæmi fyrir því að borgarfulltrúar
sitji á þingi bætir hann við, eins og til
þess að koma í veg fyrir að orðin verði
skilin sem gagnrýni á það ágæta fólk:
„Við erum líka nýr flokkur og þess
vegna verður það kannski meiri vinna
fyrir okkur að koma inn á Alþingi, við
þurfum tíma til að móta okkur að ein-
hverju leyti.“
Diplómatískt svar
Þetta er diplómatískt svar og það er full-
yrt að diplómatískir hæfileikar Óttarrs
og pólitísk útsjónarsemi eigi mikinn
þátt í því að Besta flokknum hefur tekist
vel upp í borgarstjórn. Flestir eru sam-
mála um að borgarstjóratíð Jóns Gnarr
hafi verið býsna farsæl og að vel hafi
tekist til í erfiðum verkefnum eins og
því að koma efnahag Orkuveitunnar á
réttan kjöl.
Þegar ég nefni hvort þetta sé rétt vill
hann ekki kannast við það að hann sé
á einhvern hátt í hlutverki sem aðrir
geta ekki tekið við innan Besta flokks-
ins. „Við vinnum vel saman, dreifum
ábyrgð og tölum mikið saman. Ég hef
ágætis reynslu eftir að hafa unnið í
hinu og þessu og er tiltölulega fljótur
að átta mig á málum og hef gaman af
að ræða við fólk. En mitt hlutverk í
En það er
einhver
ákafi í
störfum
pólitíkusa
– þegar
til þeirra
sést opin-
berlega
– sem
virkar
furðulega
á margt
fólk.
Pólitík er eins og langt skíðaferðalag
Einn þeirra sem náðu kjöri á Alþingi í kosningunum um síðustu helgi er Óttarr Proppé, sá fjölhæfi borgar-
fulltrúi Besta flokksins. Hann er þekktur sem söngvari hljómsveitanna Ham, dr. Spock og Rass og Funkstraße
og sem prófessorinn á barnaplötunni Diskóeyjunni. Svo var hann líka bóksali og seldi erlendar bækur í Mál og
Menningu í 20 ár. Sumir þekkja Óttarr hins vegar best sem einn af fulltrúum Reykvíkinga í spurningaþætt-
inum Útsvari. Nú ætlar Óttarr enn að spreyta sig í nýju hlutverki og taka sæti á Alþingi fyrir kjósendur í
Reykjavík og Bjarta framtíð.
Besta flokknum er að vera einn
af hópnum. Það hefur næst-
um því aldrei gerst á fundi hjá
Besta flokknum að það hafi þurft
að greiða atkvæði. Þetta hefur
almennt verið mjög auðvelt sam-
starf og við höfum vandað okkur
og gefið okkur tíma til þess að
ræða okkur að niðurstöðu sem
allir geta sætt sig við.“
Hvað langar þig mest til að gera
á Alþingi? „Drifkrafturinn hjá
mér er sá að taka upp önnur og
betri vinnubrögð. Vinna hlutina
öðru vísi. Fyrir mér er það rökrétt
framhald af því hvernig við höfum
reynt að vinna í Besta flokknum,
draga úr flokkadráttum og vinna
meira eins og gert er úti í þjóð-
félaginu. Svo eru ákveðin mál sem
ég hef komið meira inn á en önnur.
Ég hef mikið verið í alþjóðasam-
starfi fyrir Reykjavíkurborg og
Samband íslenskra sveitarfélaga
og ég brenn fyrir því og sömu-
leiðis í menntamálum – ég hef
mikinn áhuga á þeim málaflokki.
En svona stuttu eftir kosningar er
óljóst hvernig hlutverkin raðast
og að einhverju leyti fær maður
úthlutað málaflokkum sem maður
þekkir lítið inn á.“
Ertu búinn að sjá fyrir þér hvert
verður þitt fyrsta mál á Alþingi?
„Nei, ég er ekki kominn svo
langt.“
24 viðtal Helgin 3.-5. maí 2013