Fréttatíminn - 03.05.2013, Side 46
46 bjór Helgin 3.-5. maí 2013
Bjór Borg Brugghús fyrst til að Brugga tvöfaldan iPa-Bjór á Íslandi
VIÐ LEITUM AÐ
STARFSFÓLKI Í
GESTAMÓTTÖKU
OG AFGREIÐSLU
Þessi störf eru unnin á vöktum á
daginn og næturnar. Og hvort sem
það er nótt eða dagur berðu ábyrgð
á þjónustu við gesti hótelsins og
almenn afgreiðslustörf og önnur
tilfallandi störf.
Þú verður að vera hressa týpan og
opna týpan og ábyrga týpan og
almennilega týpan sem er góð í
liðsheild.
Þú verður að kunna ensku, því það
eru svo fáir útlendingar sem kunna
íslensku. Það er alls ekkert verra ef
þú kannt einhver önnur tungumál
eins og til dæmis frönsku eða þýsku
eða dönsku.
RÉTTIÐ UPP HÖND
SEM VILJA VERA HRESS
VIÐ ÚTLENDINGA
K I R K J U T O R G 4 - 1 0 1 R E Y K J AV Í K
VIÐ LEITUM AÐ
VEITINGA- OG
REKSTRARSTJÓRA
Það er nú bara ýmislegt sem þú
þarft að gera, skal ég segja þér. Þú
þarft að sjá um starfsmannahald og
innkaup og uppgjör og daglegan
rekstur, þannig að það er bara
heilmikið.
Og ekki nóg með það, þú verður að
vera hressa týpan og opna týpan og
ábyrga týpan og almennilega týpan
sem er góð í liðsheild.
Þú verður að kunna ensku, annars
gengur þetta ekkert, og ekki verra
að kunna fleiri tungumál.
Kvosin er nýtt hótel í einu af
fallegustu húsum borgarinnar, í
Kirkjuhvoli við Kirkjutorg. Þið vitið,
þarna í húsinu á móti dómkirkjunni
og við hliðina á Alþingishúsinu. Þar
er allt til alls og meira til: stór
herbergi, stærri herbergi og svítur
og eitt svolítið lítið. Svo verður
þarna allt fullt af erlendum
ferðamönnum.
Okkar starf felst eiginlega í því að
passa upp á að þeir hafi það gott og
vilji koma aftur eða mæla með okkur.
Umsóknir sendist á birgir@kvosinhotel.is
Þ
etta er svo sannarlega
humlaðasti bjór sem
framleiddur hefur
verið á Íslandi,“ segir
Sturlaugur Jón Björns-
son, bruggmeistari í Borg brugg-
húsi. Sturlaugur og félagar sendu
frá sér nýjan bjór í vikunni. Sá kall-
ast Úlfur Úlfur nr. 17 og er hann
9% double IPA-bjór sem aðeins er
framleiddur í takmörkuðu magni.
Tvöfaldi IPA-stíllinn nýtur mikilla
vinsælda meðal bjórunnenda en
þetta er í fyrsta skipti sem slíkur
bjór er framleiddur hér á landi.
„Það er reyndar skondið að þeg-
ar ég byrjaði með Borg þá skellti
ég í svipaðan bjór, bara til að læra
á græjurnar. Þetta er semsagt bjór
sem hefur setið í manni heillengi
og er búinn að meltast vel,“ segir
Sturlaugur, eða Stulli eins og hann
er jafnan kallaður. Hann segir
erfitt að fullyrða hvort umræddur
bjórstíll sé í uppáhaldi hjá honum...
en: „Þetta er eitt af því betra.“
Lærifaðirinn er brautryðjandi
Tenging Sturlaugs við tvöfalda
IPA-stílinn nær alveg aftur til
námsára hans í Bandaríkjunum.
Sturlaugur var lærlingur hjá upp-
hafsmanni tvöfalda IPA-stílsins,
Vinnie Cilurzo bruggmeistara hjá
Russian River. Það brugghús þykir
með þeim fremstu í framleiðslu
IPA-bjóra í heiminum. Sturlaugur
hefur greinilega lært eitt og annað
Hann var
ánægður með
það sem við
leyfðum honum
að smakka. Og
sagði að ég væri
besti lærlingur
sem hann hefur
haft.
Tvöföld humlaveisla
hjá Stulla og félögum
Sturlaugur Jón Björnsson, bruggmeistari í Borg, heimsótti á dögunum læriföður sinn, hinn virta
bruggmeistara Vinnie Cilurzo. Sturlaugur og félagar hafa sent frá sér fyrsta íslenska tvöfalda IPA-
bjórinn sem er við hæfi því Cilurzo er talinn hafa fundið upp þann bjórstíl. Í heimsókninni fékk
Cilurzo að smakka tilraunagerð af taðreyktum bjór sem kemur á markað innan tíðar.
hjá Vinnie Cilurzo því IPA-bjór-
inn Úlfur nr. 3 var valinn besti
evrópski IPA-bjórinn á World Beer
Awards í fyrra.
„Hann er brautryðjandi. Hann
hefur verið í bransanum í aldar-
fjórðung og er alltaf framarlega
í flokki með það nýjasta,“ segir
Sturlaugur um sinn gamla læri-
föður. Hann segir að Cilurzo hafi
alist upp á vínekru í Kaliforníu
en síðar uppgötvað töfra bjórsins.
Þegar hann starfaði sem brugg-
meistari hjá brugghúsi í Kaliforníu
hafi hann byrjað að prófa sig áfram
með að setja „fáránlega mikið af
humlum í bjór,“ eins og hann orðar
það.
„Vinnie er með tvær afgerandi
línur. Hann er með ameríska bjóra
sem eru mjög humlaðir og margir
þeirra eru mjög vel metnir. Og svo
er hann með belgíska stíla, sér-
staklega súra bjóra, tunnuþrosk-
aða bjóra.“
Sturlaugur nam hjá Vinnie Cil-
urzo í nokkra mánuði eftir að hann
lauk bóklegum hluta náms síns
í ölgerðarvísindum. Fram að því
hafði hann verið að brugga sem
áhugamaður í um það bil áratug.
„Maður var náttúrlega mikið í til-
raunamennsku. Ég talaði um það
við hann að mig dreymdi um að
búa til taðreyktan bjór. Honum
fannst það svo fyndið að hann
lét mig lofa því að um leið og ég
væri búinn að því ætti ég að leyfa
honum að smakka. Og ég stóð við
það,“ segir Sturlaugur sem fór á
fund gamla lærimeistarans í janúar
síðastliðnum. Í farteskinu var til-
raunaútgáfa af taðreyktum bjór
sem hann útilokar ekki að komi á
markað innan tíðar. Með í för voru
félagar hans í Borgar-teyminu,
Valgeir Valgeirsson meðbruggari
hans og Óli Rúnar Jónsson.
Valgeir segir að þeir hafi komið
með alla Borgar-bjórana og leyft
Cilurzu að smakka. „Hann var
ánægður með það sem við leyfðum
honum að smakka. Og sagði að
Stulli væri besti lærlingur sem
hann hefur haft. Hann hætti bara
ekki að tala um hvað hann væri
frábær.“
Úlfur Úlfur einu sinni á ári
Sturlaugur er afar ánægður með
nýjustu afurðina, Úlfur Úlfur.
„Hann passar vel inn í það sem við
stöndum fyrir í Borg, að kynna
nýjungar fyrir fólki.“
Hann segir að það hafi einkennt
marga af bjórum Borgar að þeir
hafi háa alkóhólprósentu. Margir
þeirra, til að mynda Surtur og
Giljagaur, hafi þá eiginleika að
þeir þroskist vel og lengi eins og
fín vín og séu þess virði að geyma.
Úlfur Úlfur lúti þó öðrum lög-
málum. „Þegar maður er kominn
út í bjór sem er svo humlaður þá er
meginatriði að hann sé sem fersk-
astur, að það líði sem stystur tími
frá framleiðslu þar til fólk drekkur
hann. Við stefnum að því að vera
með hann í takmörkuðu upplagi
einu sinni á ári. Þá getur fólk verið
visst um að hann sé ferskur.“
Vel fór á með Stulla og Vinnie Cilurzo, gamla lærimeistara hans, þegar Stulli og
félagar í Borg heimsóttu hann í janúar.
Valgeir Valgeirsson og
Sturlaugur Jón Björns-
son í Borg brugghúsi
hafa sent frá sér fyrsta
tvöfalda IPA-bjórinn
sem framleiddur er á
Íslandi. Ljósmynd/Hari
Höskuldur
Daði
Magnússon
hdm@
frettatiminn.is