Fréttatíminn - 03.05.2013, Síða 48
48 heilsa Helgin 3.-5. maí 2013
Golf MikilvæGt að vera Með Græjur seM henta hverjuM oG einuM
Hitakóf - Svitakóf
Hita- og svitakóf er oft fylgikvilli breytingarskeiðs kvenna
Chello hefur bætt líðan fjölda kvenna á
þessu annars frábæra tímaskeiði.
Chello er náttúrulegt efni og fæst í þremur tegundum:
Chello fæst í heilsubúðum, apótekum
og heilsuhillum stórmarkaðanna
Náttúruleg lausn á
breytingarskeiðinu
www.gengurvel.is
facebook:
Chello fyrir
breytingarskeiðið
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Grænn án
Soja
Rauður fyrir konur
yfir fimmtugt
Blár fyrir konur
undir fimmtugt
Hamraborg – Nóatún 17 – Hr ingbraut – Austurver – Grafarho l t
KjúKlingamáltíð fyrir 4
Grillaður kjúklingur – heill
Franskar kartöflur – 500 g
Kjúklingasósa – heit, 150 g
Coke – 2 lítrar*
*Coca-Cola, Coke Light
eða Coke Zero
1990,-
Verð aðeins
+ 1 flaska af
2 L
Öflugt gegn
blöðrubólgu
ROSEBERRY
Virkar innan 24 tíma
2-3 töflur fyrir svefn
Fæst í apótekum, heilsubúðum og
í heilsuhillum stórmarkaðanna
www.gengurvel.is
Þ egar forgjöfin læðist undir tuttugu þarf að fara að huga að mælingu,“ segir Þorsteinn
Hallgrímsson, einn eigenda Hole in
one golfverslunarinnar og sá sem sér
um að mælingarnar þar á bæ. „Það er
ekki jafn mikilvægt fyrir byrjendur,
því sveiflan er svo óstöðug, en þeir sem
vilja komast úr sextán í fimm græða
mest á mælingunni.“
Ólíkt því sem margir halda eru
sköftin oft talin mikilvægasti hluti golf-
kylfunnar.
Til að mælingin taki ekki daga og
vikur er sérstöku tölvuskafti sveiflað
nokkrum sinnum og sér það um að
finna út þrjú sköft sem eiga að henta
sveiflunni.
Lengdin skiptir máli
Halda mætti að það eina sem skipti
máli sé lengdin. En það er rangt.
Vissulega skiptir lengdin máli en meira
máli skiptir að skaftið henti sveiflu
hvers og eins. Þar skiptir stífleikinn og
þyngdin á skaftinu gríðarlega miklu.
Sköftin eru um það bil hundrað grömm
hvert. Mjúk sköft geta virkað stífari
og þyngri en þau stífu og öfugt. Svo
bogna þau ekkert öll í miðjunni – gera
það fæst reyndar. Sá sem ekki hefur
prófað að sveifla sama kylfuhausnum
með mismunandi skafti skilur ekki
hvað er verið að pexa yfir þessu. En sá
sami mun sjá ljósið þegar mælingin er
loksins prófuð.
Þegar eina rétta skaftið er fundið
er svo farið að kíkja á hausa. Hjá
okkar manni í Hole in one er hægt að
velja á milli allra þessara helstu. Við
valið kemur tölvan minna inn í en með
sköftin heldur finnur hver og einn
sinn uppáhalds. Þá er besta leiðin að
fá mælingakylfuna lánaða og halda
á æfingasvæðið. Þegar sá rétti hefur
verið fundinn er mælt fyrir gráðum.
Oft þarf að beygja hálsinn á kylfunni
nokkrar gráður. Ýmist upp eða niður.
Og gripin, ekki má gleyma þeim. Þau
eru svo sannarlega ekki ein stærð fyrir
alla. Þannig er settið svo búið til fyrir
hvern og einn. Rjúkandi heitt, beint úr
verksmiðjunni.
Gamalt verður gott
Það er þó ekkert endilega bara þeir
sem að eru að kaupa nýjar golfkylfur
sem láta mæla. Oft er hægt að stórbæta
gömlu kylfurnar. Með því til dæmis að
setja smá þyngingar hér og þar, ýmist
efst á skaftið eða á hausinn sjálfan.
Þykkja eða þynna grip, beygja hálsa
og hausa. Það er þó ekki hættulaust
að fara í slíkar mælingar því þeir sem
láta kíkja á gamla settið enda oft á því
að selja það á Barnalandi og kaupa eitt-
hvað flunkunýtt úr búðinni.
Haraldur Jónasson
hari@frettatiminn.is
Hundrað grömm af golfi takk
Flest vitum við hvaða stærð af fötum við þurfum. Kannski ekki upp á millimetra en svona plús,
mínus upp á tommu. Í það minnsta er nóg að vita bara hvaða stærð af köflóttum buxum á að
kaupa. Golfkylfurnar í pokanum þurfa líka að passa eins og þær köflóttu. Þá er bara um eitt að
ræða – bruna beint í mælingu.
Það þarf oft ekki annað en að skipta um skaft til þess að gamli dræverinn gangi í endurnýjun lífdaga. Þorsteinn Hallgrímsson
einn af eigendum Hole in one golfverslunarinnar gerir sig kláran í slíka aðgerð. Ljósmynd/Hari
heilsa hitaeininGar
Sú mýta að ákveðnar fæðutegundir
flýti fyrir efnaskiptum líkamans hefur
verið lífseig. Margir halda fast í þá von
að til séu „neikvæðar“ hitaeiningar
sem virka þannig að líkaminn brenni
hitaeiningum við að innbyrða ákveðnar
fæðutegundir.
Sellerí er ein þessara fæðutegunda
vegna þess hve hitaeiningsnautt og
vatns- og trefjaríkt það er. Það er
þó ekki rétt því við meltingu á sell-
eríi brennir líkaminn aðeins einum
fimmta af hitaeininga innihaldi þess.
Sá misskilningur hefur einnig
verið ríkjandi að drykkja á köldu
vatni auki brennslu líkamans því
líkaminn þurfi að hita sig aftur
að drykkju lokinni en engar
rannsóknir eru til sem styðja þá
kenningu.
Gamla góða aðferðin virkar
best til að losna við aukakílóin
– að borða færri hitaeiningar
en brennt er og nota hreyf-
ingu til að brenna, en ekki
efnaskipti líkamans.
Neikvæðar hita-
einingar ekki til
Sellerí
Sá sem ekki
hefur prófað
að sveifla
sama kylfu-
hausnum
með mis-
munandi
skafti skilur
ekki hvað
er verið að
pexa yfir
þessu.