Fréttatíminn - 03.05.2013, Síða 76
4 garðar og grill Helgin 3.-5. maí 2013
ELDHEIT
ÍSLENSK
HÖNNUN
Kokka • Dúka • Grillbúðin • Álafoss • 18 Rauðar rósir
Þjóðminjasafnið • Dalía • Blómasmiðjan • Garðheimar
Hús handanna, Egilstöðum • Pottar og prik, Akureyri
Aðalbúðin, Siglurði • Þröstur Ormsson, Ísarði • Motivo, Selfossi
Hverablóm, Hveragerði • Póley, Vestmannaeyjum
Dreing: Auntsdesign, Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi, S. 618 3022
SVUNTA
HANSKI
HÚFA
Í HANDSKREYTTUM
GJAFAPOKA
Þ að var mikil stemning í Leifsbúð í Búðardal 10. apríl síðastliðinn þegar stofnuð
var Dalabyggðardeild Garðyrkju-
félagsins. Vilhjálmur Lúðvíksson,
formaður Garðyrkjufélagsins,
Guðríður Helgadóttir varaformað-
ur og Kristinn H. Þorsteinsson,
verkefnis- og fræðslustjóri Garð-
yrkjufélags Íslands, sóttu fundinn
fyrir hönd félagsstjórnarinnar.
Félagið hefur á stefnuskrá sinni
að efla ræktunarmenningu um
land allt og vill stuðla að samvinnu
sveitarfélaga og samtaka áhuga-
fólks um ræktun til gagns og yndis
og bæta ásýnd og hollustu um-
hverfis byggðar. Hefur félagið ný-
lega hlotið styrk frá stjórnvöldum í
þessu skyni.
Í febrúarlok dvöldu Kristinn og
Vilhjálmur dvöldu í Dalabyggð
undir leiðsögn Boga Kristinssonar
byggðatæknifræðings. Tré voru
mæld, garðar skoðaðir og þver-
snið tekinn í jarðvegi til skoðunar
og mótaðar hugmyndir um sam-
starf við sveitarfélagið. Í erindi
sínu fjallaði Kristinn um gróður
í görðum og á opnum svæðum
garðyrkja Stemning í LeifSbúð
Ræktunaráhugi
í Dalabyggð
Rósirnar dafna
vel í Búðardal.
sveitafélaga og benti á leiðir til
að auka skjól með trjágróðri
og skipuleggja gróðursetningu
skjólbelta og stórvaxinna trjáa
til að mynda skjól og lyfta vind-
streng yfir byggðina án þess að
mynda óheppilega skugga. Guð-
ríður kynnti blómfagra fjölæringa
sem rækta mætti í einkagörðum.
Vilhjálmur sagðir frá reynslu
Rósaklúbbs Garðyrkjufélagsins
af rósarækt á síðustu 10 árum og
hvaða lærdóm mætti draga af því
fyrir Búðardal og Dalabyggð.
Í skoðunarferðum þeirra þre-
menninga um Búðardal kom í ljós
að fjöldi tegunda trjáa og runna í
Dalabyggð vex þar með miklum
ágætum. Viðkvæmar sígrænar
tegundir og rósir, standa sig ótrú-
lega vel á stöðum sem eru opnir
fyrir hörðum vestanáttum og hinni
ríkjandi norð-austanátt. Merkilegt
var að sjá hið fræga enska rósayrki
„Graham Thomas“ vaxa í yfir eins
metra hæð með ókalna sprota til-
búið til að senda út nýja sprota mót
komandi sumri. Ekki hefði fyrir-
fram verið talið að það hentaði til
ræktunar í Búðardal.
Af þessu má ráða að bæði jarð-
vegur og jarðvegsraki í Búðardal
henti sérlega vel til ræktunar. Þar
spila saman frjósamur birkimór
og hinn frægi Dalaleir. Afmörkuð
voru sérlega áhugaverð svæði
bæði til ræktunar skjólbelta um-
hverfis byggðina og til ræktunar
skrúðgarða innan bæjarins í Búð-
ardal. Þegar liggur fyrir brautryðj-
endastarf og reynsla af tegundum
sem hægt er að byggja á.
Í lok fundarins var staðfestur
samstarfssamningur milli Garð-
yrkjufélagsins, Dalabyggðar og
samtaka garðyrkjuáhugafólks í
Dalabyggð um eflingu ræktunar-
menningar og útbreiðslu þekking-
ar í gegnum skólastarf svo stuðn-
ingi við ræktun í einkagörðum og í
almenningsrými á vegum sveitar-
félagsins. Með því fer Garðyrkju-
félagið inn á nýja braut í starfi
sínu með nánu samstarfi við íbúa í
minni sveitarfélögum í landinu.
edalgardar.is
• Hellulagnir
• Trjáklippingar
• Jarðvegsskipti
• Smágröfuþjónusta
• Vörubíll með krabba
Einar • sími 698 7258
ALLT
FYRIR
GARÐINN
www.meistari.is
Láttu okkur
sjá um sláttinn
í sumar!
S: 571-2000
www.hreinirgardar.is
hreinirgardar@hreinirgardar.is
Garðsláttur!