Fréttatíminn - 11.11.2011, Blaðsíða 58
Evran er vissulega einstök en þó
fráleitt fyrsti gjaldmiðillinn sem
ríki deila með sér. Á ofanverðri
nítjándu öld sameinuðust Danir,
Norðmenn og Svíar í skandinav-
íska myntbandalaginu og
Frakkland, Sviss, Ítalía og Belgía
í því latneska. Stutt er síðan sú
almenna skipan komst á að ríki
gefi út sinn eigin gjaldmiðil. Raunar má segja að heimsbyggðin öll hafi um skeið brúkað
sama gjaldmiðilinn: Gull, sem virði allra gjaldmiðla var reiknað út frá. Silfur þar á undan.
Það var ekki fyrr en með falli Bretton Woods gjaldmiðlakerfisins árið 1971 að gjaldmiðlum
þjóðríkja var fleytt á opnum markaði.
Nú er einnig kominn fram vísir að myntbandalögum í Asíu og rómönsku Ameríku. Á
vissan hátt mynda Bandaríkin líka einskonar myntbandalag enda hafa ríki þess töluverða
sjálfstjórn í ríkisfjármálum. Himinn og haf er á milli efnahagsaðstæðna í Kentucky og Kalí-
forníu. Samt efast enginn um að dollarinn henti báðum. -eb
Heimsgjaldmiðlar og myntbandalög
58 heimurinn Helgin 11.-13. nóvember 2011
Grikkland Ótti við keðjuverkun
Þegar leit stóð yfir að heppilegu nafni
fyrir nýjan sameiginlegan gjaldmiðil Evr-
ópuríkja héldu Grikkir nafni drökmunnar
(gr. drachma) mjög á loft en gríska
drakman er elsti gjaldmiðill heims sem
enn var í notkun. Heimildir um drökmuna
ná aftur um tvö þúsund ár. Á endanum
var ákveðið að kalla gjaldmiðilinn evru.
Margir halda því fram að efnahags-
vandræði Grikkja stafi einkum af upptöku
evrunnar sem Grikkir klófestu með því
að falsa efnahagsreikninginn. Án þess að
það breyti efnisatriðum á nokkurn hátt
má ætla að sú röksemd hefði svolítið
annan hljóm ef hinn sameiginlegi gjald-
miðlill héti drakma. -eb
Drakma er elsti gjaldmiðillinn
Greiðsluþrot gríska
ríkisins (eða þess ít
alska) hefði alvarleg
ar afleiðingar fyrir
fólkið í landinu ef
ekkert yrði að gert.
Enginn leiðarvísir
er til en gera má ráð
fyrir að bankar loki
dyrum sínum í óhjá
kvæmilegu áhlaupi
og skortur verði í
verslunum. Fyrir
tæki fari á hausinn,
verðbólga rjúki upp úr öllu valdi og lánamarkaðir lokist.
Ríkir flýi með eigur sínar úr landi á meðan millistéttin leggi
niður vinnu og sameinist mótmælendum á götum úti. Þá er
stutt í að ráðamenn verði reknir úr landi og herinn jafnvel
kallaður til að skakka leikinn. Þetta er þróun sem enginn
vill sá hvar endar.
Ástæða alþjóðlegrar örvæntingar yfir því að Grikkir (eða
Ítalir) hætti að greiða af ofvöxnum skuldum sínum er þó
ekki tilkomin af einskærri umhyggju fyrir afdrifum grísks
(eða ítalsks) almennings. Heldur óttast menn keðjuverkun
gjaldþrota fjármálastofnanna. Einkum á Ítalíu, Spáni og í
Portúgal. Svo falli Frakkland, Bretland og sjálf Bandaríkin.
En þessi ríki eru óhemju skuldsett.
Samningurinn sem George Papandreú, forsætisráðherra
Grikklands, ætlaði að setja í þjóðaratkvæðagreiðslu áður
en hann hætti við og hrökklaðist frá völdum, kveður á um
helmings eftirgjöf á skuldum Grikkja við erlend fjármála
fyrirtæki. Grikkir fá svo 111 milljarða evra að láni til að
lappa upp á efnahaginn. Gegn djúpristum niðurskurði rík
isútgjalda. Angela Merkel og Nicolas Sarkosy sögðu málið
snúast um veru landsins á evrusvæðinu. En hvernig færu
Grikkir yfir höfuð að því að yfirgefa evruna?
Einfaldast væri að innleiða nýja drökmu og ákveða skipti
gengi við evruna. Flytja svo innistæður og skuldir yfir um
leið og nýjum seðlum og mynt væri dreift. Til að koma í veg
fyrir gengishrun þyrfti svo að setja ansi sver gjaldeyrishöft.
Óvíst er að erlendir lánadrottnar sætti sig við slíkan hreppa
flutning en í svipinn sýnist sem gríska ríkið geti í raun
ráðið örlögum þeirra – því engin veð eru fyrir ríkisskuldum.
Og því að engu að ganga. Kostnaðurinn við gjaldmiðils
skiptin yrði vissulega gríðarlegur fyrir grískan almenning
en um leið yrði hagkerfið samkeppnishæfara.
Dómínóáhrif greiðslu-
þrots Grikkja
Fjármálakrísan Hlykkjast um evrusvæðið
heimurinn
dr. Eiríkur Bergmann dósent og forstöðu
maður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst
eirikur@bifrost.is
Gallinn í gangverki evrunnar
Líkur eru á að Evrópusambandið skiptist upp í innri kjarna evruríkja með auknum fjármála-
legum samruna og svo í ytra lag þeirra aðildarríkja sem áfram munu brúka eigin gjaldmiðil.
Allar götur
frá því að
gullfóturinn
molnaði í
sundur í upp-
hafi áttunda
áratugarins
hafa Evrópu-
ríki unnið að
kerfisbund-
inni peninga-
legri sam-
þættingu,
sem varð
semsé með
innleiðingu
evrunnar
árið 1999.
H vað sem öðru líður sýnir yfirstandandi fjármálakrísa að efnahagskerfi veraldarinnar er samofið í
þéttriðnu neti. En umfjöllunin um hana er
hins vegar ansi einæðisleg (e. monomanic).
Fókus hamfarapressunnar æðir frá einum
stað til annars. Á kostnað heildrænnar
yfirsýnar. Í síðustu viku voru allra augu á
Grikklandi sem rambað hefur á bjargbrún
efnahagslegs hyldýpis. Þegar valdataum
arnir runnu loksins úr höndum Papandreús
fluttist athyglin yfir á Ítalíu. Vaxtakrafan á
ítölsk verðbréf rauk skyndilega upp úr öllu
valdi svo sjálfur Silvio Berlusconi lá óvígur
eftir. Áður hefur krísuvagninn hlykkjast
um bandarísku undirmálslánin, íslenska
bankahrunið og hringað sig utan um feysk
ar stoðir írsks fjármálalífs.
Hnífurinn í kúnni
Öfugt við hvað ætla mætti af umræðunni
var evran engin skyndihugdetta. Inn
leiðing hennar undir aldamótin var enda
hnykkurinn á langvarandi undirbúningi.
Hægfara þróun innri markaðarins þrýsti
smám saman á um peningalegan samruna.
Fjöldi gjaldmiðla á sama markaði skapar
nefnilega viðskiptahindrun. Mikið fé tapast
til að mynda í viðskiptum yfir mæri gjald
miðla. Sameiginlegur gjaldmiðill marg
faldar hins vegar viðskipti milli landanna.
En jafnvel þó svo að hagkerfi evruríkjanna
standi að jafnaði sterkar en margra sam
keppnissvæða, svo sem Bandaríkjanna,
Bretlands og Japans er samt sem áður
fremur spurt um afdrif evru en dollars,
pundsins og jens. Frjámálakrísan hefur
enda opinberað galla í gangverki evrunnar
sem raunar var þekktur frá upphafi.
Fyrir utan skilyrðin í stöðugleikasátt
málanum svokallaða, sem skuldbindur
evruríkin til að gæta nokkurs aðhalds í
ríkisfjármálum, er fjármálastjórn áfram
að mestu í höndum aðildaríkjanna sjálfra á
meðan peningamálum er nú stýrt af seðla
banka Evrópu í Frankfurt. Þessi sundur
skil á milli fjármálastjórnunar og pen
ingamálastjórnunar framkallar alvarleg
samstillingarvandamál sem nú blasa við.
Evrusvæðið skortir augljóslega tæki til að
geta tekist á við vandamálin í Grikklandi,
Írlandi, Ítalíu, Portúgal og á Spáni. Sem
eru jú sjálfstæð og fullvalda ríki. Það er hér
sem hnífurinn stendur í kúnni.
Tveggja laga samband
Allar götur frá því að gullfóturinn molnaði
í sundur í upphafi áttunda áratugarins
hafa Evrópuríki unnið að kerfisbundinni
peningalegri samþættingu, sem varð
semsé með innleiðingu evrunnar árið
1999. En nú eru evruríkin í örvæntingar
fullri leit að meðali sem dugir til að fleyta
þeim í gegnum kreppuna. Tvennt liggur
nokkuð ljóst fyrir. Fyrirkomulag og stjórn
un evrunnar verður ekki eins og áður.
Takast þarf á við samstillingarvandann
þegar um hægist. Jafnljóst er að evruríkin
sautján munu ekki heldur hverfa aftur
fyrir aldamót og taka upp gömlu gjald
miðlanna á nýjan leik. Það væri óhemju
dýrt og áhættusamt. Og í raun engin
lausn. Fjöldi sjálfstæðra gjaldmiðla á sam
ræmdum markaði hefur alveg sama galla
nú og áður.
Umræðan um það hvort aðildarríkin
þurfi öll að undirgangast nákvæmlega
sama regluverk eða hvort þau megi velja af
hlaðborði stefnumála hefur fylgt Evrópu
samrunanum frá upphafi. Þrátt fyrir allra
handa undanþágur, sérlausnir og svæðis
bundnar kenjar hefur Evrópusambandið
ennþá, að nafninu til, reynt að halda í
kröfuna um einsleitt bandalag. Nú má
hins vegar gera ráð fyrir að Evrópusam
bandið þróist yfir í að verða tveggja laga
(e. two tier integration). Krafan um aukna
samstillingu í fjármálum evruríkjanna
mun vafalítið herða á samrunaþróuninni
á evrusvæðinu. Að sama skapi er ljóst að
sumum þeirra sem standa utan evrusvæð
isins mun ekki þykja það fýsilegur kostur
í bráð. Evran veitir vissulega veigamikið
skjól en um leið takmarkar hún möguleika
ríkisstjórna á að bregðast við áföllum.
Aðildarríki Evrópusambandsins munu því
þurfa að velja hvorum megin hryggjar þau
verði: Í innri eða ytri kjarna Evrópusam
starfsins.
Sjálfur Silvio
Berlusconi lá
óvígur eftir að
vaxtarkrafa
á ítölsk verð-
bréf rauk upp
úr öllu valdi.
HÁSKÓLINN Á BIFRÖST
Velkomin á Bifröst
www.bifrost.is
Nýir tímar í fallegu umhverfi