Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.11.2011, Síða 67

Fréttatíminn - 11.11.2011, Síða 67
Helgin 11.-13. nóvember 2011 barnaföt 67 Mömmusetur í Hafnarfirði Fræðslusetur, kaffihús og verslun fyrir mömmur N ýlega opnaði Mömmusetur að Strandgötu 32, gegnt Firðinum verslunarmiðstöð. Eigandinn, Haf- dís Sverrisdóttir segir húsið sögufrægt en þar hafi verið ýmiss starfsemi, Alþýðu- brauðgerðin á síðustu öld, sauna og ljós- myndastúdíó, svo eitthvað sé nefnt. Starfsemi Mömmuseturs snýst um vel- líðan og að skapa umframorku í daglegu lífi og er einkum reynt að höfða til nýbakaðra mæðra og þungaðra kvenna. „Ýmislegt er í boði svo sem jóga, ungbarnaleikfimi og krakkadans. Við erum með BuggyFit en það er útileikfimi fyrir foreldra með barna- vagna eða kerru.“ Aðspurð hvort að Mömmusetur sé ein- göngu fyrir mömmur segir Hafdís að allar ömmur séu mömmur og auðvitað velkomn- ar: „Hingað koma mörg pör bæði með krílin á námskeið og á kaffihúsið. En Mömmuset- ur er fyrir alla þótt svo að áherslan í starf- inu sé á mæður og ungbörn. Hafdís er iðjuþjálfi og vinnuvistfræðingur og stýrir miklu af fræðslunni sjálf en hún hefur sérhæft sig á sviði hreyfiþroska ung- barna. Hún hannaði einnig á námstíma sínum í iðjuþjálfun skriðbuxur fyrir börn, en hún segir nútíma gólfefni gera börnun- um erfitt fyrir að ná tökum á skriði sem er undirstöðuatriði samhæfingar hreyfinga að læra að skríða. Buxurnar selur hún í einu horni rýmisins en þar hefur hún komið upp verslunarhorni. Að degi til er Mömmusetur með opið kaffihús og verslun frá klukkan 11 til 15, þá má koma við, fá sér gott kaffi og hress- ingu, lesa blað eða bara njóta þess að vera í fallegu umhverfi. Svo eru námskeiðin ýmist á morgnana eða kvöldin. Þessa dagana er STIMULAS- TIK sem er mjög vinsælt en það er ung- barnaleikfimi frá 4 vikna aldri. Aldursskipt- um hópum er leiðbeint áfram í æfingum sem örva snerti- og jafnvægisskyn, styrkja höfuð og hnakka og auðvitað er þetta gert á skemmtilega hátt sem börnunum líkar vel við. Í samstarfi við Hafdísi eru ýmsir fagaðil- ar sem eru með fræðslu, námskeið og bjóða upp á sína þjónustu til dæmis sjúkraþjálfari, svefnráðgjafi, brjóstagjafaráðgjafi, hómó- pati, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur. En Mömmusetur miðlar upplýsingum og má finna ýmsa bæklinga og fróðleik á upp- lýsingavegg við inngang. „Við viljum styðja konur til þess að finna aukna vellíðan í daglegu lífi. Það er svo margt í boði sem fólk veit ekki um en vill kannski nýta sér. Það er mikilvægt að láta sér líða vel bæði á meðgöngu og öðrum tíma lífs síns. Oft er erfitt að finna tíma fyrir sjálfan sig í amstri dagsins, tala nú ekki um þær mömmur sem eru með nýfædd börn sem eiga eldri systkini. Það getur verið ofsalega gott að koma og hlaða batteríin hér í Mömmusetri og flestar finna eitthvað við sitt hæfi.“ Dagskráin í Mömmusetri er fjölbreytt en fyrir jólin er ætlunin að gangast fyrir piparkökubakstri fyrir börnin, námskeiði í jólakortagerð en þá verður sérstakt vöru- úrval í verslunarhorninu og auðvitað heitt súkkulaði og jólaglögg á könnunni. Kynning Hafdís Sver- risdóttir eigandi Möm- museturs Fallegur jólafatnaður Kringlan - Sm‡ralind facebook.com/nameiticeland Prjónapeysur og vesti frá 2990 Hárskraut frá 490 Bolir frá 990 Buxur frá 1990 Skyrtur frá 2490 Jólakjólar frá 2690 Laugavegi 178 - Sími. 568 9955 Opið virka daga 12:00 - 18:00 Laugardaga 12:00 - 16:00 www.tk.is ERUM EINGÖNGU Á LAUGAVEGI 178 G Ó Ð VERÐ MIKIÐ ÚRVAL -10% AFSL. MARGIR LITIR Leitið upplýsinga á auglýsingadeild Fréttatímans í síma 531 3310 eða á valdimar@frettatiminn.is Fréttatímanum er dreift á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri og í lausadreifingu um allt land. Dreifing á bæklingum og fylgiblöðum með Fréttatímanum er hagkvæmur kostur.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.