Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.03.2013, Síða 32

Fréttatíminn - 15.03.2013, Síða 32
M á l þ i N g I ð MIlLiMáL Og MAtArLeIfAr Norræna húsið í Reykjavík verður vettvangur áhugaverðra vangaveltna um matarleifar og matarmenningu þann 17.–18. mars nk. Í hádeginu verða matarleifar í matinn! Sunnudagur 17. mars 15.15 German encounters. Tónleikar Caput hópsins og þýska klarínett- dúettsins Zelinsky/Smeyers. 19.00 Kokkarnir Sebastian Wussler og Miles Watson frá Pure Berlin skapa dýrindis þýsk/norrænan kvöldverð. Skráning nauðsynleg á: nh@nordice.is Verð fyrir tónleika og kvöldverð: 10.000 kr. Mánudagur 18. mars 09.30 Móttaka og kaffiveitingar. 10.00–10.10 Max Dager, forstjóri Norræna hússins og Þuríður Helga Kristjánsdóttir, fundarstjóri. Setning málþings. 10.10–10.40 Selina Juul. Stop Food Waste-Problems and solutions in a Danish perspective. 10.40–11.00 Sólveig Ólafsdóttir. Keypt og kastað – eitt og annað mótsagnakennt af samhengi neyslu og sóunar. Erindið er á íslensku. 11.00–11.20 Gylfi Freyr Gunnarsson. Best Practice in the Hotel Grand. 11.20–11.40 Stefán Gíslason. Food waste, about the problem and finding solutions. 11.40–12.00 Nadja Flohr-Spence. Youth Food – Action and Experiments; culinary disobedience happenings in Germany. 12.00–13.00 Matarleifar í matinn! Hinrik Carl Ellertsson, ásamt kokkunum á Dill elda fyrir okkur ruslfæði. Verð: 1.500 kr. 13.00–13.15 Mats Hellström. Relations between Germany and the North seen from a Swedish dinnertable. 13.15–13.35 Mads Holm. German influences in Nordic food culture – Is Icelandic Food Danish, and Danish food German? 14.00–14.20 Sebastian Wussler. The ideas behind Pure Berlin – How we will change the way people think of German food. 14.20–14.50 Rudolf Böhler. German Food Culture: Protestant and Catholic Bratwurst. Ítarlegri dagskrá má finna á www.norraenahusid.is Ráðstefnan er „millimál“ í röð ráðstefna þar sem kastljósinu er beint að tengslum Norðurlandanna og Þýskalands. Málþingið fer fram á ensku. Gísli Ásgeirsson Þýðandinn orðhagi, Gísli Ásgeirsson, er afkastamikið vefskáld. Hann birtir kveðskap sinn á vef sínum malbeinid.wordpress.com og gerir Facebook-vinum sínum jafnan viðvart þegar ný kvæði birtast þar. Straumar og stefnur í samfélagsumræðunni verða Gísla oftar en ekki að yrkisefni. Auk þess sem kettir læðast eins og leiðarminni í gegnum höfundaeverkið. Hagyrðingarnir á Facebook Ljóðið er síður en svo dautt. Það finnur sér alltaf farveg og ætti því engum að koma á óvart að snjallir hagyrðingar deili stökum og snjallyrðum með vinum sínum á Facebook. Bragarháttur ferskeytlunnar hefur löngum verið einn vinsælasti íslenski bragarhátturinn og ferskeytlan lifir enn góðu lífi á Facebook þar sem hressir hagyrðingar orða hugsanir sínar í hinu sígilda formi. Brageyrað virðist þó stundum hafa orðið fyrir einhverri heyrnarskerðingu en þá er bara að virða viljann fyrir verkið. Fréttatíminn kíkti við hjá nokkrum hagyrðingum á Facebook sem láta sér fátt óviðkomandi. Kattaskítur og kosning páfa Misjafnt er lífsins meðalhóf mannanna seigur er vani meðan ég kúkinn úr kettinum skóf var kosning í Vatíkani. Úr kassanum vonda lagði lykt er liðaðist reykur hvítur Svo báðum við fyrir Benedikt og Brandi, sem úti skítur. [stytt] Um frétt dagsins: Áhrifamikið var forsetans fas fyllti hann ógnarkraftur eftir áralangt argaþras urðu hinir að lúta í gras núna er fagnað og gefið í glas því góðærið byrjar víst aftur. Um fráfarandi leiðtoga kaþóla, sem sýndi yfirgripsmikla van þekkingu á tilteknum sam- félagsmálum: Benedikt hefur mikinn metnað og miðlar af huga sönnum kynnti sér bæði kynlíf og getnað með kirkjunnar mönnum. Ríma af James Bond Drusilmenni drepur vond dregur víf á tálar í jakkafötum James Bond í jólabjórnum skálar. Víða liggja leiðir Bond lipur tólum beitir Á Ítalíu einn á gond- óla fór um sveitir. Elda saman Emm og Bond ótal rétti laga. Þeirra föstudagafond- ú fyllir vel í maga. Heineken er hellt í Bond honum magnast skita. Langar meira í Leffe Blond og lifrarpulsubita. Vinnu sinnar vegna Bond víða þarf að flakka en íbúð góða á í Lond- on við Temsárbakka. [stytt] Sigurjón Egilsson Blaðamaðurinn Sigurjón M. Egilsson kom sterkur inn á ljóðvöllinn á Facebook ekki alls fyrir löngu. Það er ekki síst á morgungöngum Sigurjóns með hundinum Garpi sem andinn hellist yfir hann og afraksturinn skilar sér síðan á netið. Kristján Hreinsson Skerjavíkurskáldið Kristján Hreinsson þarfnast vart kynningar enda hefur hann komið víða við. Sigríður Klingenberg Spákonan Sigríður Klingenberg er lífsglöð og hress og bjartsýn að eðlisfari. Þetta skín í gegnum kveðskap hennar á Facebook þótt oft sæki hún innblástur í dapurlega hluti. En lífið sigrar alltaf hjá Siggu sem hefur sinn eigin stíl og fer óhefðbundar leiðir í skáldskapnum. Þetta hugsaði ég í morgun- göngunni. Kusu yfir sig ákveðin kristileg gildi klerkarnir þetta vildu og sýndu enga mildi að kvöldi fengu mikið hrós daginn eftir kom í ljós að flokkurinn þetta alls ekki vildi. Í morgungöngunni áðan, sauð ég saman leirburð: Í huganum Garpur kettina eltir tilurð þeirra fyrir sér veltir. Er samt algjört undur, heimsins besti hundur. Nema þegar helvítið geltir. Hitti mann áðan sem var óþarfa mælskur og hreinskilinn. Eftir að ég losnaði, settist í bílinn varð þessi leirlimra til: Fátt merkilegt Bjarni sagði, Samt líf sitt á borðið lagði. Sumt var súrt annað klúrt, bestur var hann þá sjaldan hann þagði. Eftir góða skemmtun í Borgar- leikhúsinu á Gullregni kíkti Sigurjón á Kringlukrána og tók þar eftir manni og úr varð: Datt í það, drakk enn ofmikið. Dansaði mest, söng allra hæst. Ferlegt að fara alltaf yfir strikið, finnst samt, að gangi betur næst. Þú lífsgöngu þína í skýin skráir láttu alheiminn vita hvað þú þráir því ævisöguna sjálfur semur ræður næsta kafla sem kemur hvað viltu gera? hvað viltu verða? það mun rætast ef þú í hug- anum sérð það.... Kumbravogsbörnin voru barinn og sleginn og djöflarnir þeirra ekki til dómstóla dreginn þau voru svívirt og engin var vörnin það erum við öll sem passa eigum börnin að innan þau dóu enga upp- reisn þau fengu ...með kramið hjarta alla fram- tíð þau gengu ég spyr ÞIG og ÞIG og ÞIG hvað ska gera eigum við bara að láta þetta VERA,,,,,,,,,,,,,,, Á leiðinni gegnum lífið oft hef ég rifið kjaft lofsamað einhverja vitleysu og rangt fyrir mér haft i nöprum vindum gengið og þá oft villst af leið því stundum eru gjótur þó gatan virðist greið ég alls ekki í dag ég um for- tíðina hnít ég lifi bara í núi og í restina gef ég skít.............(AMEN).. ...........HRÓS.... Dagurinn í dag er helgaður hrósi þá hamingjuna sérðu í betra ljósi hrósa þú þeim sem á veginum standa viskuna gefðu þeim sem eru í vanda kveiktu í hjörtum kristaltært ljós knúsaðu vini og gefðu þeim HRÓS....... Í HLÝJUM FAÐMI Í hlýjum faðmi lít ég ekki undan er ástarljós frá hjarta þínu skín, ég stari inn í fölskvalausa fegurð þótt fái hún að brenna augun mín. Þótt verði holdið lengi baðað logum mun lífsins andi forðast feigðarós því tilfinningar þínar hafa hita og hugur þinn á indælt sálarljós. Já, jafnvel þó að brenni ég á báli og blindaður ég forðist auglit þitt þá lifi ég ef ástar þinnar ylur eitt andartak fær vakið hjarta mitt. SKÁLDLEG SKRIF Hann hefur núna lokað lífsins bók en ljóðum hans fá kynslóðir að fagna; að skapa list hjá honum tímann tók og taktur hans mun aldrei ná að þagna. Við daufa hjartans glóð á góðum stað með gleði lét hann hljóma hinsta stefið, hann getur núna þakkað fyrir það sem þessi veröld hefur honum gefið. Á meðan hann er laus við tímans tif við trúum því að þjóðin verk hans geymi og núna má hann stunda skáldleg skrif og skapa sína list í öðrum heimi. 32 kveðskapur Helgin 15.-17. mars 2013

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.