Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.03.2013, Síða 38

Fréttatíminn - 15.03.2013, Síða 38
Prófíll af nauðgara Hinn hefðbundni nauðgari er 32 ára karlmaður sem brýtur gegn konu að nóttu til á eigin heimili. Hann er undir áhrifum áfengis, hefur ekki verið kærður áður fyrir kynferðisbrot og neitar brotinu. Sá sem níðist á börnum er hins vegar 33 ára karlmaður sem brýtur gegn eigin barni eða barni sem hann þekkir vel. Brotið fer fram hvenær sem er sólarhringsins á heimili þeirra beggja og er jafnvel síendurtekið. Sá sem nauðgar fullorðnum  Er 32 ára karlmaður  Brýtur gegn konu sem hann þekkir  Nauðgar heima hjá sér að nóttu til  Hefur ekki áður verið kærður fyrir kynferðisbrot  Er undir áhrifum vímuefna  Neitar brotinu Sá sem nauðgar börnum  Er 33 ára karlmaður  Er edrú  Fremur brot sín hvenær sem er sólarhringsins  Brýtur á barninu á heimili þess eða sín eigin heimili  Þekkir fórnarlambið og er jafnvel tengdur því blóðböndum  Neitar brotinu Framhald á næstu opnu Á undanförnum tíu árum hefur 381 dómur fallið í kynferðisbrotamálum í héraðsdómum hér á landi. Í nær öllum tilfellum eru gerendur karlmenn og er meðalaldur þeirra um 33 ár. Langflestir þolendur eru konur eða stúlkur. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn Guðrúnar Sesselju Baldursdóttur til meistaraprófs í sálfræði við Háskóla Ís- lands. Guðrún Sesselja rannsakaði ítarlega alla héraðsdóma sem féllu á Íslandi á árunum 2001 – 2011 þar sem ákært var fyrir kynferðisbrot og skoðaði einkenni og afbrota- hegðun þeirra sem ákærðir voru. Aldrei fyrr hefur jafn viðamikil rannsókn verið gerð á kynferðisbrotadómum hér á landi en samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkis- lögreglustjóra fer einungis eitt af hverjum fimm kærðum kynferðisbrotamálum fyrir dóm. Helmingur allra kæra fyrir nauðgun eða kynferðislega misneytingu er felldur niður hjá lögreglu og 30 prósent til viðbótar eru felld niður hjá ríkissaksóknara. Í 20 prósentum tilfella, einni af hverri fimm kærum, fer málið fyrir dóm og eru það málin sem Guðrún Sesselja hefur lagst í rannsókn á. Flestir dómanna vörðuðu kynferðisbrot gegn börnum, tæplega helmingur, þar á eftir koma brot gegn fullorðnum. Þessir tveir brotaflokkar eru lang stærstir og saman ná þeir yfir um 84 prósent allra kynferðisbrota sem dæmt er fyrir. Brot sem varða vörslu eða dreifingu kláms koma þar á eftir. Fáir dómar varða brot gegn fleiri en einni tegund brota og aðeins örfáir varða vændi. Sakfellt var í þrefalt fleiri tilfellum en sýknað. Flestir dómar sem enda með sakfellingu eru vegna brota gegn börnum yngri en 15 ára en nauðg- unarbrot enda næst oftast með sakfellingu. Flestir sýknudómar eru hins vegar vegna nauðgunarbrota, fjórir sýkundómar af tíu. Ei- lítið færri sýknudómar eru vegna kynferðis- brota gegn börnum. Guðrún Sesselja telur hugsanlegar ástæður fyrir því að sýknudómar í nauðgunarákærum eru svo margar þær að í þeim málum er oftast um að ræða orð þolenda gegn orðum gerenda og játningar eru ekki algengar. Í einum af hverjum fimm dómum er um fleiri en einn þolanda að ræða og voru það í langflestum tilfellum brot gegn börnum. Ef gerandi braut gegn mörgum þolendum voru fórnarlömbin oftast á líkum aldri. Niðurstöður rannsóknar Guðrúnar Sesselju benda til þess að kynferðisbrot gegn börnum séu ólík brotum gegn fullorðnum að mestu leyti, þrátt fyrir að meðalaldur gerenda sem brjóti gegn börnum og fullorðnum hafi reynst nánast sá sami. Allir gerendur nema einn voru karlar. Eina konan sem ákærð var fyrir kynferðisbrot hafði brotið gegn annarri konu. Engin kona hafði brotið á barni. Þessir brjóta kynferðislega á fullorðnum Ef fyrst eru skoðuð kynferðisbrot gegn fullorðnum leiðir rannsókn- in í ljós að gerandinn hafði sjaldnast framið kynferðisbrot áður, svo vitað væri. Brotin voru oftast stök, það er að segja, gerandinn hafði ekki brotið oftar en einu sinni á fórnarlambinu. Í flestum tilvikum áttu brotin sér stað heima hjá gerandanum og að nóttu til. Gerandi og þolandi voru í meirihluta tilfella báðir undir áhrifum áfengis. Í þriðja hverjum dómi hafði gerandinn beitt líkamlegu ofbeldi. Meðalaldur gerandans var 33 ár og var langstærsti hópur- inn á aldrinum 25-34 ára. Töluvert færri voru yngri og eldri en það. Þeir gerendur sem brutu af sér í hópi voru að meðaltali yngri en þeir sem brutu af sér einir. Um 6 % gerenda höfðu framið kynferðisbrot áður og tæplega einn af hverjum fimm gerendum hefur gerst sekur um 38 úttekt Helgin 15.-17. mars 2013

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.