Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.03.2013, Page 42

Fréttatíminn - 15.03.2013, Page 42
Intense Repair Sjampó og hárnæring Djúpnærir, mýkir og gefur gljáa. Verndar hárið frá því að klofna. Inniheldur prótein, náttúrulegar olíur og fljótandi keratín. A ð heimsækja almenn- ingssalerni er leiðinda- iðja sem flestir vilja yfir- leitt ljúka fljótt. Enda yfirleitt illa þefjandi og hlandblautir skítastaðir. Þeir sem eru við að stíga sín fyrstu skref inn í heim karlmennskunnar ættu þó að staldra við. Hugsa hvernig best sé að athafna sig við verk eins gripið, til hvurs lausa höndin sé og hve margar hristur megi framkvæma áður en nærstaddir stöðva leikinn? Áhyggjur eru þó óþarfar. Það verður enginn meistari skálarinnar í fyrstu atrennu. En með nokkrum einföldum, yfirleitt óskrif- uðum, reglum má komast í gegn um þessa oft á tíðum vandræðalegu stundir meðal kynbræðranna. Fleiri en ein leið til að pissa í postulín Fyrsta verk er að velja skál, sé það val fyrir hendi. Best er að ná hornskál og snúa rassinum nokkrar gráður í næsta mann. Sé hornið ekki í boði er oft reynt að komast mjög nærri skál- inni. Það endar þó oft með ósköpum því blátt bann er við allri snertingu við skálina sjálfa. Enda margir á rann- sóknastöðinnni að Keldum í vinnu við að stúdera viðbjóðinn sem þar finnst. Þó má ekki standa of langt frá heldur. Hættan á að dropa á gólfið fyrir framan skálina eykst með hverjum sentmetranum. Nauðsynlegt er að geta, með trúverðugum hætti, kennt næsta manni á undan um pollinn sem gjarnan vill myndast fyrir framan skálina. Af básamönnum Þeir spéhræddu eru básamenn. Vilja ekkert vita hvað kynbræður þeirra eru að bixa þarna við skálarnar. Það er þó hættulegt því sá sem á undan sat var sennilega að hægja sér. Því er best að komast yfir skálafóbíur. Marg- ir hafa reynt að hunsa umhverfið með fossandi vatni úr krananum. Þetta þykir hins vegar ekki mjög karlmann- legt og fáir nenna því til lengdar. Þá komum við að þeim sem marka sér svæði með því að styðja lausu hendinni á vegginn og ná með því svo- litlu prívat svæði. Hættan við þessa aðferð er þó að fá dropa eða tvo í buxurnar, einhendi menn sér svona í verkið. Bjarta hliðin er þó að þeir sem ná góðu valdi með annarri hendi geta með góðu móti fengið sér einn kaldan þegar áfengi er haft um hönd – án þess að missa úr takt. Þaðan þróast menn gjarnan yfir í öf- ugt grip. Þar er átt við að höndin, sem notuð er á vininn, snýr með vísifingur að líkamanum en ekki hitt sem eðlis- lægt er að vísifingur notist í að miða og snúi því fram. Þegar í öfugt grip er komið er gjarnan um reynslubolta að ræða. Menn með áratugi undir beltinu. Fyrirfram þveginn Þeir sem eru á fyrirframþvegnum höndum, þvo sér sum sé áður en tólið er meðhöndlað en ekki eftir eins og samfélagslega ásættanlegt þykir, eru hættulegir. Halda því fram að tólið sé tandurhreint og heilsa mönnum jafn- vel með handabandi á eftir. Verstir eru þó þeir sem hvorki þvo sér fyrir né eftir. Slíka menn er þó best að forð- ast með öllu enda klósettglæpamenn af verstu sort. Viðræður við vagnstjóra bannaðar Þegar á skálina er komið er best að hugsa sem mest um pisseríið sjálft. Viðræður við aðra pissara eru litnar hornauga og eru best geymdar þar til út af salerninu er komið. Áfengi trompar þó gjarnan þessa reglu eins og gjarnan vill verða. Þá er eins gott að velja ekki skál á milli tveggja manna sem vilja rifja upp kynnin og gömul tengsl við íþróttafélög. Eins er blátt bann við því að kíkja. Þeir sem eru gripnir í landhelgi við að reyna að mæla upp tæki samferðamanna eiga ekki von á góðu. Svo þarf nú ekki að taka það fram að það er bannað að skíta í skálina. Haraldur Jónasson hari@ frettatiminn.is Þaðan þróast menn gjarn- an yfir í öfugt grip. Þar er átt við að höndin, sem notuð er á vininn, snýr með vísifingur að líkamanum en ekki hitt sem eðlis- lægt er að vísifingur notist í að miða og snúi því fram. Þegar í öfugt grip er komið er gjarnan um reynslubolta að ræða. Te ik ni ng /H ar i 42 úttekt Helgin 15.-17. mars 2013

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.