Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.03.2013, Page 53

Fréttatíminn - 15.03.2013, Page 53
fermingar 53Helgin 15.-17. mars 2013 H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA Þessar uppskriftir nnur þú á gottimatinn.is, ásamt ölda girnilegra uppskrifta fyrir fermingarveisluna. Kíktu á gottimatinn.is og nndu þína rétti fyrir veisluna. gottimatinn.is uppskrift að fermingu kjúklingavængir með gráðaostsídýfu tortilla með klettasalati, fetaosti og rjómaosti bruschettur með mozzarella súkkulaðimús með jarðarberjaskyri Muna að gera nóg, h ann Gústi frændi át 20 v ængi í veislunni í fyrra! Þessa er hægt að ger a 2 dögum áður og geyma bara í kæli. súkkulaði- kaffikaka Fjölmargir eru í gjafa- hugleiðingum þegar líða fer að fermingar- veislum. Við hjá Frétta- tímanum tókum saman stuttan lista til að auðvelda lesendum valið. Það er sjálfsögðu hugurinn sem gildir en margir vilja gefa gjafir sem hafa dýpri merk- ingu og móta ferm- ingarbörnin enn frekar nú þegar fullorðinsárin taka við. Gaman Leikjatölvur hafa verið vinsælar síðustu ár. Það verður líklega ekkert lát á því þetta árið en fjörið getur reyndar komið úr ýmsum áttum. Ýmsar skemmtiferðir eru í boði fyrir vinahópinn og úti- vistarvörur geta einnig glatt um langt skeið. Glæsileiki Flest fermingarbörn yrðu ánægð með að sjá fallegar flíkur í pakkanum. Auk þess eru sængur, koddar og sængurver gjafir sem lífga upp á herbergið og nýtast vel til framtíðar. Frelsi Kærkomin gjöf sem ætti að henta öllum. Ef þú veist ekki hvað þú átt að gefa fermingarbarninu, gefðu því þá frelsi til að velja sér gjöf. Flestar verslanir bjóða upp á gjafabréf sem hægt er að nýta sér en peningagjafir vekja alltaf ánægju, sérstaklega hjá þeim börnum sem hafa ákveðið að safna sér fyrir einhverju sérstöku. Dýr Börnin læra að taka ábyrgð á dýrinu, þau þurfa að sinna því og eignast vin sem þroskar þau sem manneskjur. Það getur þó borgað sig að hafa sam- band við fermingarbarnið og fjölskyldu þess áður en hesturinn er teymdur inn gólfið á fermingardaginn. Undirbúningur Það eru mörg námskeið í boði sem eru tilvalinn undirbúningur fyrir það sem blasir við fermingar- barninu. Hljóðfæri hafa einnig verið vinsæl fermingargjöf og einnig fjölbreyttar gjafir tengdar hreyfingu svo sem reið- hjól, hlaupaskór eða lík- amsræktarkort. Það er hugurinn sem gildir við val á fermingargjöfum

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.