Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.03.2013, Síða 58

Fréttatíminn - 15.03.2013, Síða 58
58 skák og bridge Helgin 15.-17. mars 2013  Skákakademían Carlsen er kóngurinn H úrra! Í dag hefst eitt sterkasta skákmót allra tíma: Áskorendamótið í London. Þar munu átta af bestu skákmönnum heims keppa um réttinn til að skora á Vishy Anand, sem setið hefur á veldis­ stóli heimsmeistara síðan 2007. Næstu þrjár vikur munu augu allra skákáhugamanna beinast að orustunni á bökkum Thames – og stóra spurningin er: Verður næsti kafli skrifaður í hetjusögu Magn­ úsar Carlsen, hins norska frænda okkar? Carlsen er aðeins 22 ára en hefur setið í efsta sæti heims­ listans í meira en þrjú ár. Hann er kóngurinn í allra hugum og hann þarf að ná krúnunni af Anand til að fullkomna myndina. Meistararnir átta í London tefla tvær skákir hver við annan, sam­ tals 14 umferðir. Keppendalistinn er sannarlega glæsilegur, innan sviga er núverandi staða á heims­ listanum: Stig Magnus Carlsen, Noregi (1) 2872 Vladimir Kramnik, Rússlandi (2) 2810 Levon Aronian, Armeníu (3) 2809 Teimour Radjavov, Azerbæjan (4) 2793 Alexander Grischuk, Rússlandi (10) 2764 Vassily Ivanchuk, Úkraínu (13) 2757 Petur Svidler, Rússlandi (14) 2747 Boris Gelfand, Ísrael (18) 2740 Flestir veðja á að Aronian verði helsti keppinautur Carlsens í Ósló. Þessi eitilharði Armeni hefur um árabil verið meðal þriggja stigahæstu skákmanna heims. Hann stendur nú á þrí­ tugu og hefur unnið næstum allt sem hægt er. Hann varð heims­ meistari barna 12 ára og yngri, sömuleiðis heimsmeistari 20 ára og yngri. Þá hefur Aronian orðið heimsmeistari í hraðskák og at­ skák – hann vantar bara einn titil í safnið... Enginn skyldi afskrifa Vladi­ mir Kramnik, sem náði heims­ meistaratitlinum af Kasparov um aldamótin og sat á veldis­ stóli heimsmeistara 2000­2007. Kramnik er 37 ára og númer tvö á heimslistanum, til alls vís ef baráttuandinn kemur yfir hann. Þetta er mót þar sem allir geta sigrað alla. En Carlsen er númer eitt hjá veðbönkum og áhuga­ mönnum. Sjálfur sagði hann í vikunni: ,,Að vera stigahæstur hjálpar mér ekkert á þessu móti. Andstæðingar mínir láta sér ekki bregða við það. En ég er ekki í nokkrum vafa um að þegar ég tefli best – þá er ég bestur í heiminum. Stigalistinn fer ekki með fleipur.“ Hver er svo þessi ungi maður? Hann er fæddur 30. nóvember (eins og Churchill) árið 1990. Foreldrar hans eru verkfræð­ ingar, og veittu því snemma eftir­ tekt að Magnus litli var gæddur óvenjulegum hæfileikum. Tveggja ára gamall lék hann sér að því að setja saman 50 stykkja púsl og fjögurra ára setti hann saman módel úr legó­kubbum sem ætluð voru unglingum. Hann lærði kornungur að tefla og varð lærisveinn Agdesteins, fyrsta stórmeistara Noregs. Sjálfur varð Carlsen stórmeistari aðeins 13 ára, næstyngstur í sög­ unni til þess tíma. Síðan lá leiðin hratt upp á við, og nú hefur hann verið kóngur án kórónu í þrjú ár. Skáksagan geymir nöfn margra sérlundaðra snillinga, en Magnus Carlsen er óvenjulega venjulegur snillingur – hann er í senn óframfærinn og brimandi af sjálfstrausti, áhugamaður um fótbolta og spennusögur, þénar milljón evrur á ári og hefur fram­ kvæmdastjóra í fullu starfi. Hann getur að eigin sögn reiknað 15 til 20 leiki fram í tímann (sem er stjarnfræðilegt) og kann þús­ undir skáka utan að. „Tárum verður úthellt og hetjuljóð samin,“ sagði and­ stuttur blaðamaður í grein um mótið mikla sem byrjar í dag. En Magnus Carlsen mun sigra í London – það er skrifað í stjörn­ urnar. skákþrautin Hvítur mátar í 4 leikjum. Þetta er sérlega snotur flétta, sem Sandrin galdraði fram gegn Kramer árið 1949. Hvítur stendur betur, en hvernig klárar hann dæmið með leiftrandi stæl? U ndankeppni Íslandsmóts í bridge fór fram um síðustu helgi. Þar kepptu 40 sveitir í fjórum 10 sveita riðlum um réttinn til þess að taka þátt í úrslitakeppni bestu sveita sem fram fer helgina 25.­28. apríl. Þrjár efstu sveitirnar í hverjum riðli komust í úrslitin og það kom á óvart að allar sveitirnar sem unnu sér þessi eftirsóttu sæti, gerðu það með tiltölu­ lega miklu öryggi. Eftirtaldar sveitir kom­ ust í úrslitin og fyrir hvaða kjördæmi: Úr a-riðli Garðs apótek ......................... 182 - Reykjanes VÍS .......................................... 172 - Reykjavík Sparisjóður Siglufjarðar ....... 167 - Norðurl.-vestra Úr B-riðli Grant Thornton ..................... 169 - Reykjavík Sigtryggur vann .................... 168 - Reykjanes www,myvatnhotel.is ............ 154 - Norðurl.-eystra Úr C-riðli Karl Sigurhjartarson ............ 192 - Reykjavík Chile ....................................... 181 - Reykjavík Vestri ...................................... 171 - Vestfirðir Úr D-riðli Lögfræðistofa Íslands .......... 170 - Reykjavík Hreint ehf............................... 162 - Norðurl.-eystra Lífís/VÍS ................................. 155 - Reykjavík Það kom ekki á óvart að sveit Karls Sigur­ hjartarsonar (núverandi Íslandsmeistari) í C­riðli skyldi skora mest, með 192 stig sem gerir rúmlega 21,3 að meðaltali í leik. Mörg fjörug spil, eðli málsins samkvæmt, litu dagsins ljós í undankeppninni. Spil 27 í annarri umferð er áhugavert og sýnir það að mikil skipting og góð samlega er mikils virði og þeir sem gáfust ekki upp í sögnum fengu verðlaun fyrir það. Suður var gjafari og enginn á hættu: ♠Á9873 ♥K7 ♦Á ♣K9632 ♠KD102 ♥864 ♦85 ♣DG75 ♠ G654 ♥ 1093 ♦ DG92 ♣ 108 ♠ - ♥ ÁDG52 ♦ K107643 ♣ A4 n s V a Spilið skiptist nokkuð jafnt á milli andstæð­ inganna. Það var spilað á 40 borðum og á 23 þeirra var samningurinn 4­5 spaðar í NS. Á 15 borðum voru spilaðir 5 tíglar í AV og hjartageim á 2 borðum. Á fimm borðum í sitthvora áttina var samningurinn 4 spað­ ar eða 5 tíglar doblaðir. Báðir samningar óhnekkjandi og stóðu í öllum tilfellum. Eitt par var svo „óheppið“ að spila 5 hjörtu do­ bluð sem fór 1 niður á tígulstungu. Eitt par var svo „friðsamt“ að það lét staðar numið í sögnum í 3 spöðum. Ef talan var sú sama á báðum borðum í viðureign sveita, var eng­ in sveifla en gróðinn og verðlaunin voru mikil til þeirra sem fengu geim í báðar áttir (dobluð = 15 impar). Bridgesamband Íslands stendur fyrir landsliðskeppni helgina 15.­17. mars og spila 8 pör um réttinn til þess að skipa landslið í opnum­ og kvennaflokki. Eftir­ talin pör taka þátt: Opinn flokkur Ómar Olgeirsson – Ragnar Magnússon Björgvin Már Kristinsson – Júlíus Sigurjónsson Bjarni Einarsson – Aðalsteinn Jörgensen Gunnar Björn Helgason – Örvar Óskarsson Jörundur Þórðarson – Hjálmar Pálsson Guðmundur Baldursson – Steinberg Ríkarðsson Guðmundur Snorrason – Ragnar Hermannsson Sveinn Rúnar Eiríksson – Þröstur Ingimarsson Kvennaflokkur Anna Ívarsdóttir – Guðrún Óskarsdóttir Alda Guðnadóttir – Stefanía Sigurbjörnsdóttir Arngunnur Jónsdóttir – Guðrún Jóhannesdóttir Guðný Guðjónsdóttir – Sigrún Þorvarðardóttir Hjördís Sigurjónsdóttir – Ragnheiður Nielsen María Haraldsdóttir – Bryndís Þorsteinsdóttir Erla Sigurjónsdóttir – Dóra Axelsdóttir Svala Pálsdóttir – Ólöf Þorsteinsdóttir Aðalsveitakeppni Bridgefélags Reykjavíkur er hafin og búnar eru 4 umferðir. Að venju er mikil barátta um efstu sætin. Staða efstu sveita er þannig: 1. Lögfræðistofa Íslands ...................................... 81 2. Garðs apótek..................................................... 79 3. Guðlaugur Sveinsson ....................................... 77 4. Málning .............................................................. 74 5. Karl Sigurhjartarson ........................................ 71 6. Chile ................................................................... 69 Spilarar í sveit Lögfræði­ stofu Íslands eru Aðalsteinn Jörgensen, Bjarni Einarsson, Jón Baldursson, Steinar Jóns­ son, Sverrir Ármannsson og Þorlákur Jónsson.  Bridge BridgeSamBand íSlandS StendUr fyrir landSliðSkeppni Helgina 15.-17. marS Örugg sæti í undankeppni Íslandsmótsins Lausn: 1.Df7+!! Kh8 (Drottningin er friðhelg.) 2.Dxf8+!! Bxf8 3.Hxf8+ Hg8 4.g7 skák og mát! Rúnar Einarsson og Skúli Skúlason etja kappi við feðgana Birki Jónsson þingmann og Jón Sigurbjörnsson. Magnus Carl- sen er aðeins 22 ára, en þegar er byrjað að tala um hann sem mesta skákmann allra tíma. Landmark leiðir þig heim! * Starfsemi Landmark byggir á öflugum mannauði sem veitir afburðaþjónustu! Okkur er sönn ánægja að sjá um þín fasteignaviðskipti – þú hringir við seljum! 100% þjónusta = árangur* Sími 512 4900 landmark.is Magnús Einarsson Löggiltur fasteignasali Sími 897 8266 Sigurður Samúelsson Löggiltur fasteignasali Sími 896 2312 Sveinn Eyland Löggiltur fasteignasali Sími 690 0820 Íris Hall Löggiltur fasteignasali Þórarinn Thorarensen Sölustjóri Sími 770 0309 Kristberg Snjólfsson Sölufulltrúi Sími 892 1931 Eggert Maríuson Sölufulltrúi Sími 690 1472 Haraldur Ómarsson sölufulltrúi sími 845 8286 Sigurður Fannar Guðmundsson Sölufulltrúi Sími 897 5930

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.