Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.03.2013, Síða 68

Fréttatíminn - 15.03.2013, Síða 68
 Í takt við tÍmann SnæfrÍður ingvarSdóttir Rokkaður en kvenlegur stíll Snæfríður Ingvarsdóttir er 21 árs dansari úr Vesturbæ Reykjavíkur. Hún stundar nám á samtímadansbraut í Listaháskóla Íslands en komst nýverið inn í leiklistardeild sama skóla og hefur þar nám í haust. Snæfríður skemmtir sér á Dolly og Harlem og stundar hugleiðslujóga. Staðalbúnaður Ég hef mjög gaman af því að kaupa mér föt og geri mest af því í útlöndum. Ég er að fara til Amsterdam um páskana og hyggst versla eitthvað þar. Ég kaupi oftast bara það sem mér finnst fallegt en ætli megi ekki segja að stíllinn minn sé rokkaður en kvenlegur. Í skólanum er ég alltaf bara í íþróttagallanum og því finnst mér mjög gaman að klæða mig upp um helgar eða þegar tilefni gefst til. Ég held mikið upp á indverska tösku úr Aftur og er mjög oft með hana. Uppáhalds skómerkið mitt er Miista en annars kaupi ég ekki mikið eftir merkjum. Hugbúnaður Ég fer stundum út að skemmta mér en það er misjafnt hvert skemmtilegast er að fara. Núna fer ég oftast á Dolly og Harlem. Besta kaffið er á Kaffitári. Ég bý vestur í bæ og fer oft í Vesturbæjarlaugina. Mér finnst mjög gaman að fara í bíó en fer kannski ekki nógu oft. Ég þori hins vegar ekki að detta mikið inn í framhaldsþætti því þá get ég ekki hætt. Ég get ekki hætt að horfa eftir einn þátt. Uppáhaldsþættirn- ir mínir eru Girls, Mad Men og Homeland. Svo eru gömlu góðu Sex and the City alltaf klassískir. Ég er að vinna í Þjóðleikhúsinu og fer því mikið í leikhús. Nýjast hjá mér er að ég var að byrja í hugleiðslujóga. Ég er mjög hrifin af því, það er endurnýjandi. Vélbúnaður Ég er nú ekki mikil græjukona en ég á samt Macbook Pro sem ég nota mikið. Ég á glataðan Samsung-síma sem er að detta í sundur en kannski kaupi ég mér iPhone einhvern tímann. Annars á ég iPod Nano sem ég hlusta á í strætó og þegar ég fer út að hlaupa. Ég fer alveg inn á Facebook eins og margir en ég er ekki mjög virk þar. Aukabúnaður Ég er ekki með bílpróf. Ég labba bara mjög mikið og ef ég labba ekki þá hjóla ég eða tek strætó. Mér finnst ótrúlega gaman að ferðast og væri til í að gera meira af því. Ég hreifst mjög af Amsterdam þegar ég kom þangað fyrst og hlakka til að fara aftur. Svo finnst mér New York líka frábær. Ég á samt enn eftir að finna mér minn uppáhaldsstað. Dags daglega nota ég ekki mikið af snyrtivörum, bara dag- krem, varasalva og maskara. En þegar ég fer eitthvað sérstakt finnst mér alveg gaman að mála mig meira. Ég held mikið upp á ilmvatnið Chance frá Chanel. Þegar ég fer á barinn panta ég mér oft bjór eða rauðvín en stundum er gaman að fá sér fína kokteila. Snæfríður hyggst feta í fótspor foreldra sinna og hefur nám í leiklistardeild Listahá- skóla Íslands í haust. Foreldrar hennar eru leikarahjónin Edda Arnljótsdóttir og Ingvar E. Sigurðsson. Ljósmynd/Hari 10 ár eru síðan Aldrei fór ég suður var haldin í fyrsta sinn. 26 hljómsveitir koma fram á hátíðinni í ár. 100 manns standa vaktina á hátíðinni og sjá til þess að allt gangi upp, við ýmis tæknimál, gæslu, sölu á varningi og fleira. 8 manna hópur hefur unnið að skipu- lagningu hátíðarinnar frá upphafi. Hug- myndasmiðirnir eru eins og kunnugt er Örn Elías Guðmundsson, Mugison, og pabbi hans, Guðmundur Kristjánsson, Papamug. 495 bílar fóru um Steingrímsfjarðarheiði á föstudaginn langa árið 2004. 1.301 bíll fór um Steingrímsfjarðarheiði á föstudaginn langa árið 2012. 4.000 manns hafa jafnan sótt tónleikana á Aldrei fór ég suður. Er þá miðað við fólk inni á tónleikunum og í kringum húsið. Þetta er óstaðfest tala sem skipuleggj- endur hafa nefnt til viðmiðunar. 60 prósent gestanna eru aðkomumenn. Þessi niðurstaða var fengin eitt árið með óvísindalegri könnun. Þá völdu skipuleggjendur tíu bíla af handahófi og reyndu að opna þá. Fjórir voru opnir en sex læstir og mátti því áætla að þeir væru í eigu aðkomumanna.  tÍmamót veiSla á ÍSafirði um páSkana Aldrei fór ég suður í tíu ár Páll Óskar er einn af fjölmörgum listamönnum sem hefur komið fram á Aldrei fór ég suður. Mynd/Gústi Rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, verður haldin í tíunda sinn á Ísafirði um páskana. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan Mugison og pabbi hans fengu hugmyndina að hátíðinni yfir bjórglasi. 68 dægurmál Helgin 15.-17. mars 2013

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.