Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.03.2013, Side 70

Fréttatíminn - 15.03.2013, Side 70
Og kærastinn minn styður mig alveg í þessu og reynir að hjálpa til. Ef Ester vinnur fær hún tækifæri til þess að skoða heiminn í hálft ár auk þess sem hún getur með hjálp Mydestination munstrað unnusta sinn inn í hluta ferðalagsins en hún segir útilokað að draga hann af landinu í sex mánuði. Slóðin á kosningasíðu Esterar er http://www.mydestination.com/users/esterosk/bbb#.UUB_uxyjfSj E ster Ósk Arnardóttir er Akureyringur í húð og hár. Hún stundar nám í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri en er tilbúin til þess að kasta öllu frá sér og stökkva út í hinn stóra heim í hálft ár ef henni tekst að vinna keppni um sex mán- aða heimsreisu á vefnum Mydestination.com. Keppnin heitir Biggest, Baddest, Bucket List sem gæti útlagst eitthvað á þá leið að undir þetta ævintýri falli allt sem fólk verður að gera áður en það deyr. „Ég rakst nú bara á þessa vefsíðu þegar ég var að vafra um netið og safna upplýsingum vegna þess að ég var að undirbúa heimsreisu,“ segir Ester sem segist ekki geta verið kyrr á sama staðnum lengi. „Þannig að það var ekki um annað að ræða en stökkva á þetta. Mér finnst rosalega gaman að ferðast og það er svolítið fyndið að ég er búin að vera að berjast um það við kærastann minn að fara í svona ferð.“ Ester segir að hún og kærastinn séu eins og svart og hvítt þegar kemur að ferðalögum og flökkueðli. „Hann er mjög heimakær,“ hlær Ester. „Hann er til í að skreppa í svona þrjá til fjóra mánuði en ég er að reyna að fá hann til þess að fara með mér í sex mánuði. Þannig að þetta dæmi steinliggur fyrir mig.“ Ester segist hafa stefnt að því að klára BA- gráðuna sína en ef hún vinnur í keppninni er hún alveg tilbúin til þess að fresta því og skilja unnust- ann eftir fyrir norðan. „Já, algjörlega. Þetta er bara draumur.“ Keppnin á Mydestination.com er tvíþætt. Annars vegar er um netkosningu að ræða þar sem þeir fimm keppendur sem fá flest atkvæði komast í úrslit og fimm aðrir komast áfram á myndbandi sem þeir setja um sig á vefinn. Ester gerði líflegt myndband þar sem hún fræðir gesti síðunnar um Akureyri og Norðurland auk þess sem hún kynnir íslensku sauð- kindina til leiks. „Þetta eru svo tíu manns sem fara til Bretlands til fundar við dómnefndina og þar þarf að leysa alls kon- ar þrautir þar til einn stendur uppi sem sigurvegari. Sá fær sex mánaða ferðalag á áfangastaði að eigin vali í sex heimsálfum og allan kostnað greiddan. Og til þess að gera þetta enn betra fær ferðalangurinn peningaverðlaun sem nema rúmum sex milljónum króna í lok ferðalagsins. Ester reyndi að slá á útþrá sína með því að fara sem au-pair til Bandaríkjanna 2011 en sú ferð hafði þveröfug áhrif og hún þiggur því allan stuðning í baráttunni fyrir takmarki sínu. „Þegar ég skráði mig voru eitthvað um 50 manns mættir til leiks en nú eru þeir komnir yfir 300,“ segir Ester sem gefst ekki upp fyrr en yfir lýkur. „Og kærastinn minn styður mig alveg í þessu og reynir að hjálpa til. Flestir sem hafa kosið mig á vefnum eða deilt myndbandinu mínu segjast annað hvort vilja að hann fái frí frá mér í hálft ár eða ég frá honum,“ segir Ester og hlær. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is  EstEr Ósk Etur kappi um hEimsrEisu Getur ekki verið á sama stað lengi Ester Ósk Arnardóttir er 24 ára Akureyringur sem lýsir sér sem ævintýrastelpu sem vilji sjá allan heiminn. Ögrandi viðfangsefni heilla hana og hún hefur gaman af því að taka áhættu. Hún segist vera metnaðargjörn og þrjósk sem skýrir sjálfsagt að hún hefur blandað sér í keppni um hálfs árs heimsreisu og er tilbúin til þess að skilja kærastann eftir heima og fresta BA-prófi sínu ef hún hreppir hnossið. Ferðir við allra hæfi Skráðu þig inn – drífðu þig út www.fi.is Ferðafélag Íslands  Ármann halldÓrsson kEnnir hEimspEki mEð spunaspilum Nemendur verða persónur í námsefninu Ármann Halldórsson, ensku- og heimspekikennari við Verslunarskóla Íslands, fer óhefðbundnar leiðir í heim- spekikennslu sinni og lætur nemendur sína takast á við spurningar og vandamál með hlutverkaspilum. „Mig hefur lengi langað að prófa þetta og kýldi á það í vetur með valgrein í enskunni þar sem við erum aðallega að spila spunaspil, Dungeons&Dragons og fleiri slík, og lesum ævintýrabækur,“ segir Ármann sem telur ljóst að þessi aðferð gefi nemendum tækifæri til að kafa dýpra í námsefnið þegar þeir takast á við það sem persónur í sögu. „Þar sem ég kenni líka heimspeki datt mér í hug að það gæti verið spennandi að tengja hana við þetta líka.“ Ár- mann bendir á að í heimspekikennslu séu ýmsar umræðu- aðferðir notaðar og spunaspil geti verið fersk viðbót þar. „Mér datt í hug að það gæti verið áhugavert að takast á við siðferðilegar- og tilvistarlegar spurningar með því að spila sig inn í einhvern tiltekinn söguþráð og aðstæður þar sem nemendur þurfa sem persónur standa frammi fyrir siðferðilegu álitamáli. Til dæmis hvort það eigi að bjarga þessum eða hinum eða fórna einum fyrir fjöldann og svo framvegis.“ Ármann segist hafa fengið hugmyndina frá fantasíubók- menntanámskeiði sem Terry Gunnell kenndi lengi vel í MH þar sem nemendur spiluðu meðal annars Dungeons&Dra- gons. „Ég hef haft mikinn áhuga á því að endurvekja þetta.“ Ármann segir nemendur sína mjög móttækilega fyrir spunaspilunum og þeir séu fljótir að komast inn í þanka- ganginn. Gullöld hlutverkaspilanna sé ef til vill liðin en í grunninn gildi þar sömu lögmál og í tölvuleikjum sem eru unga fólkinu mjög tamir. -þþ Ármann Halldórsson í spunaspili með nemendum sínum í VÍ. Hann langar að þróa spunaspilin áfram sem kennsluað- ferð enda sér hann í þeim leið til þess að auðga kennsluna og námið. Ljósmynd/Hari. Opna tvær nýjar útvarpsstöðvar Tvær nýjar stöðvar bætast í útvarpsflóru landsins á næstu dögum. Það er Flass 104,5 sem er að færa út kvíarnar. Önnur útvarps- stöðin mun kallast FlassBack og verður á tíðninni 91,9. Á stöðinni verður spiluð tónlist frá árunum 1990 til 2005. Gamla kempan Jón Axel Ólafsson er rödd stöðvarinn- ar. Hin útvarpsstöðin heitir Flass X-tra og fer í loftið á næst dögum. Þar verður leikin hiphop-tónlist, raf- tónlist og ýmis jaðartónlist. Þá verður hresst aðeins upp á móðurskipið með nýjum morgunþætti og nýju fólki undir stjórn Sindra Ástmars- sonar dagskrárstjóra. Stökkpallur til frægðar Músíktilraunir hefjast næsta sunnudag og hafa aldrei fleiri stelpur tekið þátt en í ár. Áhugafólk um íslenska tónlist fylgist ávallt grannt með þessum árlega viðburði sem hefur getið af sér margar af þekktustu hljóm- sveitum landsins. Þar má nefna Of Monsters and Men, Agent Fresco, Jakobínarínu, XXX Rottweiler hunda, Mínus, Botnleðju, Maus, Kolrössu krókríðandi/Bellatrix, Greifana og Dúkkulísurnar. -sda Þú getur nálgast Fréttatímann frítt á þjónustustöðvum N1 um land allt HELGARBLAÐ 70 dægurmál Helgin 15.-17. mars 2013

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.