Fréttatíminn - 21.09.2012, Blaðsíða 2
Alveg mátulegur
Heimilis
GRJÓNAGRAUTUR
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Sjúkraliðar hafa látið svína á sér
Þ rjátíu til fjörutíu fjölskyldur neyð-ast til að flytja úr húsum sínum árlega af völdum myglusvepps og
dæmi eru um að hús hafi verið dæmd
ónýt vegna myglusvepps, að sögn Sylgju
Daggar Sigurjónsdóttur, sérfræðings í
myglusveppi hjá Húsi og heilsu.
„Þekking á myglusvepp er sífellt að
aukast og fólk æ meira vakandi fyrir
þessu vandamáli,“ segir Sylgja. „Dæmi
eru um að seljendur óski eftir því að
farið sé yfir hús þeirra áður en þau eru
seld og kannað hvort þar megi finna
myglusvepp, og er það mjög jákvætt,“
segir hún.
Fréttatíminn birti nýverið viðtal við
Vigdísi Völu Valgeirsdóttur sem átti í
mjög erfiðum veikindum í þrjú ár vegna
myglusvepps. Einkennin lýstu sér með
útlimadoða og lömun, ofskynjunum og
sjóntruflunum. „Ég gat ekki lesið en er
samt með fullkomna sjón. Þetta helltist
yfir mig í köstum og ég átti kannski góð-
an mánuð og slæman mánuð. Þegar var
minna álag á mér á sumrin gat ég farið
út úr húsi því ég var ekki jafn slæm,“
lýsir Vigdís Vala.
Oft á tíðum þurfti að halda á Völu ef
hún þurfti að komast á salerni því hún
stóð ekki undir sér sjálf. „Ég vann einu
sinni við umönnun á Grund og það var
álíka mikið mál að koma mér út úr rúmi
og þeim sjúklingum sem ég annaðist
þar. Það þurfti að hjálpa mér að setjast
upp í rúminu. Þegar ég var skárri og
komst fram úr lenti ég stundum í því að
fæturnir gáfu sig og ég hrundi einfald-
lega í gólfið.“
Kona um þrítugt, sem ekki vill láta
IcelandaIr Hækkar og Hækkar í verðI
Fengi 4.294.000.000 krónur ef hann seldi núna
Gunnhildur
Arna
Gunnarsdóttir
gag@
frettatimann.is
Ef Framtakssjóður Íslands
seldi öll bréf sín í Icelandair
í dag yrði hagnaður hans
fjögur þúsund, tvö hundruð
níutíu og fjórar milljónir
króna eða tæpir 4,3 milljarð-
ar. Hlutabréf í Icelandair hafa
hækkað um nærri fjörutíu
prósent það sem af er ári.
Framtakssjóður Íslands er
stærsti hluthafinn í félaginu
með 19 prósenta hlut.
Háværar gagnrýnisraddir
heyrðust þegar Framtaks-
sjóðurinn, sem er að mestu
í eigu lífeyrissjóða, lagði
þrjá milljarða í Icelandair
fyrir þrjátíu prósenta hlut
í félaginu sumarið 2010.
Hann seldi rúman þriðjung
hlutabréfa sinna í október,
fékk ríflega 2,7 milljarða fyrir
og hagnaðist um nærri 1,5
milljarða. Síðan hefur gengið
hækkað um nærri þriðjung.
Og bara ef Framtakssjóður-
inn hefði selt á gengi dagsins
í dag væri hann átta hundruð
milljónum ríkari.
Vilhjálmur Bjarnason,
Á að selja? „Fram-
takssjóðurinn tjáir
sig ekki um áform sín
varðandi hlutabréf í
félögum sem skráð
eru í kauphöll,“ segir
Brynjólfur Bjarnason
framkvæmdastjóri.
?lektor og formaður Félags fjárfesta, segir þennan eina og hálfa milljarð þó engan ábata fyrir eig-endur Framtakssjóðsins
þar sem lífeyrissjóðirnir
hafi sjálfir keypt hlutinn.
Hingað til hafi Icelandair
„aðeins“ greitt út 800
milljónir í arð, sem sé of
lítið. Ætli lífeyrissjóðirnir
að hagnast á Icelandair
verði aðrir að kaupa bréf-
in en þeir sjálfir og arð-
greiðslurnar að hækka.
Miklar hækkanir í Kauphöllinni
114% Hampiðjan
39% Icelandair
23% Grandi
12% Hagar
11% Marel
8% Össur
Heimild: Kauphöllin
HeIlsa ÞekkIng á myglusveppI sífellt að aukast
Marga mánuði á Grensás
vegna myglusvepps
Tugir fjölskyldna þurfa árlega að flýja hús sín vegna myglusvepps. Ein kona hefur dvalist mán-
uðum saman á Grensásdeild vegna mikilla veikinda sem hún rekur til myglusvepps í íbúð sinni.
nafn síns getið, kannaðist við einkenn-
alýsingu Vigdísar þegar hún las viðtalið
við hana í Fréttatímanum. Hún hafði
þá dvalist í tvo mánuði á Grensásdeild
Landspítalans eftir mikil og erfið veik-
indi sem enginn læknir fann skýringu á.
Hún þjáðist af miklum höfuðverkjum
sem taugalæknir taldi stafa af slæmu
mígreni. Hún var sett á mígrenilyf,
flogaveikilyf og hjartalyf til að reyna að
sporna gegn höfuðverkjunum en þau
gerðu ekkert gagn.
Líffæri hennar, nýru og lifur, störfuðu
ekki eðlilega og gallblaðran eyðilagðist
þannig að hana þurfti að fjarlægja.
Hún lenti eitt sinn í andnauð og var
flutt með sjúkrabíl á spítala og einnig
missti hún allan mátt í líkamanum og
var um tíma bundin hjólastól því hún gat
sig ekki hreyft.
Hún fékk fjölda upphringinga frá fólki
þegar viðtalið við Vigdísi Völu birtist,
því vinir og ættingjar, könnuðust þar við
einkennin. Þegar hún og eiginmaður
hennar skoðuðu málið kom í ljós að
myglusvepp var að finna í íbúð þeirra.
Þau fluttu strax úr íbúðinni og gripið
hefur verið til ráðstafana til að lag-
færa skemmdirnar. Þau búa hjá móður
hennar þangað til íbúðin verður aftur
íbúðarhæf. Á þeim mánuðum sem liðið
hafa eftir að þau fluttu út hafa einkenni
hennar minnkað, hún getur nú hreyft
sig sjálf og er að fá máttinn að nýju.
Höfuðverkirnir hafa þó ekki enn lagast
fyllilega.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Einkenni
af völdum
myglusvepps
Þreyta, eða sífelldur
höfuðverkur, ennisholu-
bólgur, óþægindi og
síendurteknar sýkingar,
hósti, þurrkur eða sviði í
hálsi eða lungum, hrotur,
tíð þvaglát, niðurgangur
eða aðrar meltingar-
truflanir. Sjóntruflanir,
minnistruflanir, doði og
dofi í útlimum, ljósnæmni,
rafmagnsviðkvæmni.
Jafnvægistruflanir, kvíði,
þunglyndi, svefnvanda-
mál, þroti, bjúgur,
húðvandamál, liðverkir,
stingir, eða aðrir óút-
skýrðir verkir. Fæðuóþol,
þyngdaraukning eða
þyngdartap án skýringa.
husogheilsa.is
Þekking á myglusveppi er sífellt að aukast og eru dæmi um að seljendur óski eftir því að farið sé yfir hús þeirra áður en þau eru
seld til að tryggja að þar sé ekki myglusvepp að finna.
Elín Hirst í framboð
Elín Hirst stefnir á öruggt sæti til
Alþingis í Suðvesturkjördæmi. Hún
ætlar fram fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Þetta er samkvæmt heimildum Frétta-
tímans. Elín er fyrrum fréttahaukur,
þar á meðal fyrrum fréttastjóri Sjón-
varpsins, Stöðvar 2 og Bylgjunnar.
Henni var óvænt sagt upp í ársbyrjun
2010. Síðan þá hefur hún sinnt mörgu,
meðal annars ritað bók um biskups-
dótturina Guðrúnu Ebbu fyrir síðustu
jól, sinnt Mæðrastyrksnefnd og hún
tók þátt í skipulagningu söfnunará-
taksins Á allra vörum. Hún hugleiddi
að bjóða sig fram til embættis forseta
í vor, en ekki varð úr því. Í fréttatil-
kynningu, þar sem hún aftók forseta-
framboðið, sagðist hún sérstaklega
hafa áhuga á að auka og efla hlut
kvenna í samfélaginu, hvar sem því
væri við komið.
Nú sitja fjórir þingmenn Sjálfstæðis-
flokks úr Kraganum á þingi. Bjarni
Benediktsson, Þorgerður K. Gunnars-
dóttir, Jón Gunnarsson og Ragnheiður
Ríkharðsdóttir. - gag
Launahækkun Björns
Zoëga, forstjóra Land-
spítalans, kveikti í fólki
að ræða kjör sín og
líðan í vinnunni, segir
Kristín Á. Guðmunds-
dóttir, formaður Félags
sjúkraliða, nú þegar
launahækkunin hefur
verið afturkölluð. Hún
segir að svínað sé á
kjarasamningum við
sjúkraliða með því að
bjóða mörgum þeirra
hlutastörf, kalla þá til vinnu þegar spítalanum henti og skipa þeim að taka yfirvinnu
út í fríi þegar spítalinn segi til. Þeim sé ekki greidd yfirvinna þótt þeir vinni hana.
Þetta verði vart liðið lengur. „Við erum með lögfræðiálit á því að þegar fólk er með
yfirvinnu eigi að greiða hana,“ segir hún. Hins vegar hafi fólk óttast að missa vinn-
una enda hótað að aðrir leystu þá af samþykktu þeir ekki fyrirkomulagið. - gag
Foreldrum veikra barna
gefin von
Tíu á mánudagsmorgun mætti málari og
bauðst til að mála stuðningsmiðstöðina nýju
fyrir veikustu börn Íslands. „Það langar alla
að gera sitt. Það er frábært,“ segir Bára
Sigurjónsdóttir, forstöðumaður stuðnings-
miðstöðvarinnar sem landinn safnaði 100
milljónir fyrir um síðustu helgi. „Mér finnst
að foreldrum hafi verið gefin svo mikil von
með þessari söfnun. Það er eins og þau hafi
fengið stuðning og kraft frá þjóðinni. Þetta
fólk er búið að berjast áfram og þjóðin fékk
að sjá fyrir hverju.“ Bára er búin að ráða tvo
hjúkrunarfræðinga og stendur í viðræðum
við félagsráðgjafa. Hún er stolt af samkennd
þjóðarinnar sem þátturinn endurspeglaði vel.
„Svo var ekki síst gott að sýna ráðamönnum
þjóðarinnar hvað við erum að fást við og
hversu veik börn eru höfð heima.“
2 fréttir Helgin 21.-23. september 2012