Fréttatíminn - 21.09.2012, Blaðsíða 46
46 fjármál Helgin 21.-23. september 2012
Sparnaðarráð Hvernig má Spara HverSdagS
Margt smátt gerir eitt stórt
1. Gerðu þitt eigið
kaffi
Einn kaffi latte
kostar um fimm
hundruð krónur.
Latte-lepjandi mið-
bæjarliðið gæti
því sparað umtals-
verðar upphæðir á
ársgrundvelli ef það
tæki með sér kaffi að
heiman sem oftast.
Einn kaffibolli á kaffi-
húsi á dag, sjö daga
vikunnar, kostar 14
þúsund krónur á mán-
uði – 168 þúsund krónur
á ári!
2. Nesti í hádegismat
Taktu nesti með í vinn-
una sem oftast. Ekki bara
sparar það peninga heldur
er það eflaust mun hollara.
Máltíð á hádegisverðarstað
kostar hátt í tvö þúsund
krónur. Þeir sem borða úti
daglega á virkum dögum
eyða 40 þúsund krónum í
hádegismat á hverjum mán-
uði – nærri hálfri milljón
króna árlega.
3. Innkaupalisti
Gerðu innkaupalista áður
en þú ferð í búðina og ekki
kaupa inn á tóman maga.
Þannig geturðu komið í
veg fyrir að kaupa ein-
hvern óþarfa og tryggt
að þú kaupir örugg-
lega það sem vantar.
Taktu þinn tíma í
búðinni, farðu frekar
sjaldnar og kauptu
meira í einu, þannig
sparast einnig bensín.
Hafðu auga á tilboðum
í verslunum og hagaðu
innkaupunum eftir því.
Veldu ódýrustu vöruna
í hverjum vöruflokki.
Þarf kornflexið þitt endi-
lega að vera af ákveðinni
gerð?
4. Borga niður skuldir
Gerðu áætlun um að borga
niður skuldir – sérstaklega
yfirdráttarheimildina þína.
Passaðu vel upp á að fara
ekki yfir á reikningnum
þínum, það kostar.
5. Greiddu reikninga á
réttum tíma
Sjáðu til þess að reikningar
séu greiddir á réttum tíma
og komdu þannig í veg
fyrir óþarfa kostnað og
dráttarvexti.
6. Slepptu heimasíma-
num
Slepptu því að vera með
heimasíma ef þú þarft ekki
á honum að halda vegna
ungra barna eða einhverju
álíka. Farsíminn er orðin
nauðsyn þannig að ekki er
hægt að sleppa honum, en
það er vel hægt að komast
af án heimasíma.
7. Fáðu bækur lánaðar
Fáðu bækur lánaðar á
bókasafninu í stað þess
að kaupa þær. Það kostar
sama og ekkert að vera
með bókasafnskort og yfir-
leitt er mikið úrval bóka á
bókasöfnum. Að minnsta
kosti nægilega mikið.
8. Gerðu verðsaman-
burð
Gerðu verðsamanburð
á dýrum vörum áður en
þú kaupir, sérstaklega
raftækjum, og fylgstu með
tilboðum og útsölum.
9. Ekki kaupa án þess að
hugsa
Skoðaðu vel í innkaupa-
körfuna þegar þú ert kom-
in/n að afgreiðslukassan-
um og hugsaðu áður en þú
borgar. Þarftu nauðsynlega
á öllum vörunum
að halda?
Er eitthvað
sem má
bíða eða
þú þarfn-
ast kannski
alls
ekki?
10. Drekktu vatn úr
krananum
Þó svo að sódavatn sé
hressandi er ískalt krana-
vatn enn hollara og jafn-
framt ókeypis. Vertu með
flösku á skrifborðinu þínu
og fylltu á reglulega.
11. Forðastu sjálfsala
Flestallt sem selt er í
sjálfsala er dýrara en í búð.
Forðastu sjálfsala. Ef þú
þjáist af þörf á millibita í
vinnunni gættu þess að
eiga leynistað í vinnunni
þar sem þú geymir snarl
sem þú getur gripið í.
12. Geymdu að endur-
nýja bílinn
Reyndu að eiga bílinn þinn
eins lengi og þú getur.
Hugsaðu vel um bílinn
og sinntu honum vel, það
getur lengt líftíma hans.
Þú verður að finna jafn-
vægið á milli þess að eyða
of miklum peningum í við-
gerðir gagnvart því sem
það myndi kosta að skipta
bílnum út. Ef þú kaupir bíl,
kauptu þá notaðan. Mikið
verðfall er á bílum á fyrsta
árinu.
13. Hjólaðu
Hjólaðu hvenær sem þú
getur. Vegalengdir hér á
landi eru mun styttri en
margir gera sér grein fyrir.
14. Farðu í þriðjudags-
bíó
Ef þér finnst gaman að fara
í bíó, farðu í þriðjudagsbíó.
Það er miklu ódýrara. Og
ekki kaupa popp og kók,
það er dýrt og óhollt. Taktu
með þér ávöxt og biddu um
vatn í sjoppunni. Það er
ókeypis.
15. Sparaðu rafmagns-
notkunina
Taktu rafmagnstæki úr
sambandi þegar þau eru
ekki í notkun og slökktu
ljós þegar þeirra er ekki
þörf.
Það er sannarlega hægara sagt en gert að skera niður útgjöldin
en hér eru að minnsta kosti nokkrar leiðir sem hægt er að grípa
til. Best væri að sjálfsögðu að notast við þær allar en vænlegast
til árangurs er sennilega að breyta neysluvenjum sínum
smátt og smátt. Leiðirnar skila mismörgum krónum í
budduna en margt smátt gerir eitt stórt, eins og sagt er.